Showing posts with label Þyngd. Show all posts
Showing posts with label Þyngd. Show all posts

26.3.07

Er komið vor?


Ja amk í augnablikinu þó það hafi ekki verið vorlegt í morgun!

Ég massaði Styrk - sem ég er með áskrift í - munið þið ;-).

Var í 20 mín alls á stigvélinni 2x10 mín.

Ég tók 15 - 12 - 10 í Smith - í fyrsta skipti ever. Mest getað 12-10-8 ojá rassinn á mér er svolítið þungur en lærin eru farin að ráða við hann ;-)

Palli kemur heim á föstudaginn!

Ég er að fara að elda.

Ásta fór í ræktina í dag - til hamingju með það ÁSTA! Hún á Polla junior

Ég hef ekki borðað neina vitleysu í dag og stefni á að láta það vera í dag.

Ég stefni á að borða ekki neitt eftir 8 í kvöld nema þá í besta falli grænmeti!

Ég stefni á að vera 400 gr léttari á föstudaginn en ég er núna og hana nú er það orðið opinbert og ég get illa svikið það!

Ég bara verð að fara að breyta tölunni á vigtinni eitthvað smá;-)

En munið - ég er ánægð með að léttast um 20 kg á ári. Það er bara mín leið.

Hæstánægð.

Og ég er hætt í nuddi - fór ekki í dag og ekki á föstudaginn - jamm.

Alveg þangað til næst híhí.

Í þessu bloggi eru allnokkur markmið - tókuð þið eftir því!?!

2.3.07

Hva bara tveir dagar liðnir

Svona líður nú tíminn hratt á Þunguvöllum.

Síðasta dýfa stóð í einhverjar vikur - tvo mánuði kannski. Hún svona rjátlaðist af mér og mér finnst ég bara vera nýfarin að skynja litina í veröldinni á ný. Og þá kemur önnur. Og allt er þetta náttúrulega mjög aumingjalegt (takið eftir hvaða orð ég nota - vinsælasta orðið í síðustu dýfu). Þetta er ekki einu sinni almennilegt þunglyndi. Bara blues sem ég þoli ekki nema hæfilega vel.

Fór á vigtina í dag - var tveimur kílóum þyngri en ég var fyrir hálfum mánuði - það var nú alveg til að toppa liðanina. Enda í skemmtilegum takt við aumingjabraginn á mér. Ég veit ekkert hvaðan þessi kíló koma. Verð bara að skrifa dagbók og taka almennilega í lurginn á mér hvað mataræðið varðar. Kannski er þetta bara líka að breyta um æfingar - ég hef tekið eftir að það hefur alltaf smá áhrif. Kannski er þetta bara áfengið sem ég neytti um síðustu helgi. Þessi kíló eru ekki einu sinni stóra málið - veit alveg hvað þarf að gera til að losa mig við þau. Þau taka heldur ekki frá mér að ég er búin að brenna 3300 hitaeiningum þessa viku og brenndi 5400 í síðustu viku. Þau taka heldur ekki frá mér að ég fer alltaf í ræktina, gönguna, sundleikfimina og hvað þetta heitir allt - alls 7 skipti á viku. Það á ég bara og kalla mig samt aumingja. Svona getur þetta verið.

Geri bara eins og Sáli sagði - fylgist með ástandinu - kortlegg það og reyni svo að bregðast við eftir mætti. En það má víst ekki streitast á móti heldur vinna með þessum fjára. Ég get skilið það. (get samt eiginlega ekki skilið þessi 2 kg en skítt með það).

Það er matarboð á vegum skólans í kvöld. Ég get ekki hugsað mér að fara - og ég get ekki hugsað mér að fara ekki.

En stundum er maður bara ekki upplagður.

Og mér finnst hræðilegt að fara bara einu sinni í nudd á viku - þó mér finnist í sjálfu sér ekki svo hræðilegt að þurfa bara að fara einu sinni :-).

11.2.07

Sigh sigh sigh

Stundum verð ég svolítið þreytt á mér!

Fór Á Vigtina

áðan. Sem er svo sem í lagi nema ég var búin að ákveða að gera það ekki. Rökin voru þau að þá yrði ég ekki eins stressuð á föstudaginn - en ég held að raunveruleg ástæða sé almennt ístöðuleysi og forheimska.

Ég sem sagt stefni að því að fara ekki á vigtina oftar en á tveggja vikna fresti - gengur ekki sérlega vel í augnablikinu.

en það er þá bara að bæta úr því ha hu hummm!

3.2.07

Margt í mörgu


Sko ég elska samt Óla Stefáns -eða kannski einmitt vegna þess!



Ekki orð meira um handbolta.

Ég er ekki nógu dugleg í mataræðinu. Ég er hins vegar mjög duglega í hreyfingunni þó ég sé ekki eins yfirnáttúrulega dugleg og í sumar og haust en það á nú sér sína eðlilegu skýringu. Ég er í mjög erfiðri vinnu sem tekur út á mér.

Ég þoli ekki að ég sé að borða of margar hitaeiningar!

Af ofansögðu má sjá að ég steig á vigtina í gær! Það eru alltaf mjög slæmir dagar sem fylgja í kjölfarið. Það er alveg sama hvernig mér gengur mér finnst mér aldrei ganga nógu vel. Og þá skiptir engu máli að ég sé með hælspora dauðans og háls sem ber ekki uppi höfuðið. Set það ekki í nokkurt samhengi. Ef ég væri ekki að hreyfa mig svona mikið þá væri ég að þyngjast hugsa ég! Og samt þykist ég vera í einhverju aðhaldi - ja eða ekki...

Er líklega ekki í neinu aðhaldi því ég borða bara næstum það sem mér sýnist!

Ég bjó mér til matardagbók um daginn - sem náði yfir um 10 daga held ég. Þegar ég byrjaði að skrifa í hana ætlaði ég bara að skrifa niður allt það sem ég borðaði en ekki vera að breyta neinu til að fegra hana. Svo átti að hefja gáfulegt át með nýrri bók. Nú er komið að því.

Ekki í dag samt og ekki í gær- fuss og svei! Á morgun fer ég í Bónus og versla gáfulega inn og verð eins og manneskja í febrúar - reyni að taka þetta með trukki.

Baldur var svo sem ekki svo óánægður með bókarskrifið - finnst reyndar að hann hefði átt að vera óánægðari - held hann sé með aumingjagæsku í garð mín! Enda er ég svo sem ekki í neinum firna góðum gír.

Háls og herðar stífari en um langa hríð. Ég fékk nálar í gær og ég á alltaf góðan dag í kjölfarið. En þær virka svo sem ekki mikið lengur en það. En ég svaf fyrir vikið algjörlega dásamlega í nótt með smá hjálp lyfja að auki :-).

Ég fór svo í fínan göngutúr í Þrastarskóg í morgun og brenndi næstum 600 kal - fín ganga það. Sökk og rann og skautaði og því reyndi vel á kálfana. Hælsporinn bara þokkalegur. Við eigum eftir þrjú skipti í nálameðferðinni varðandi hann.

Baldur vill ég hætti að synda og sjái til hvort hálsinn lagist.

Ég fer þá í sundleikfimi, oftar í salinn (veit ekki alveg hvenær ég á að hafa tíma eða orku í það - sundið er nefnilega miklu meira slakandi en helv... salurinn).

Mér finnst ægilegt að hætta að synda. Það er svo gott að fara um kvöldmatarleytið... en það er kannski bara hreinlega ekki gáfulegt...

Ég svo sem hætti því í sumar þegar ég fékk í hálsinn og lagaðist en ég var ekki í sundi í haust þegar ég fékk í hálsinn síðast -en það er kannski ekki til að bæta ástandið.

En ég átti góðan dag í gær - fínan fram að þessu í dag.

Nú fer ég að hvíla mig og kannski get ég lært á morgun. Það væri frábært.

Það væri bara frábært ef mér gæti liðið svolítið betur punktur!

Og svo er ég búin að læra á ownzone hjá Polla. Polli er hins vegar með leiðindi við mig og skilur ekki að brennslupúlsinn minn er frá 96 eða svo - hann er með rugluna varðandi það og ég verð að reyna að koma vitinu fyrir hann.

annars vill hann stundum að ég sé á moderate hjartslætti en ég er alltaf í light að hans mati. Það er eiginlega þar sem okkur greinir á. En ætli mér takist ekki að gera hann meðvirkan eins og alla!

22.1.07

Æ mig auma

Ég bý á rútustöð finnst mér stundum. Litli einverupúkinn Ingveldur er stundum alveg uppgefin á þessu mannlífi öllu sem er í kringum hana ;-). Núna er Páll að hlusta á útvarpið - fréttir og vill meina það að ég hafi áhuga á þeim líka og hefur útvarpið því af elsku sinni hátt stillt. Fúsi er kominn til að heimsækja Aðalstein og Jobbi og Ragnheiður eru hér að kærustuparast! Allt á fullu sem sagt - Sigh.

Ég var að koma úr nálum í hælinn - ekki nærri nærri eins vont og síðast þó löppin sé nú öll í steik þannig lagað skoho og hálsinn ekki betri en það er nú allt í lagi. Verður ekki betra að sinni vænti ég. Vinnan var allavega þolanleg í dag og það er alltaf bót í máli.

Ég fór ekki í sundleikfimi í morgun - fannst ég ekki geta það og svo var líka smá misskilningur með bílinn þannig að þó ég hefði viljað hefði ég ekki komist í tæka tíð - en líklega var þetta mest aumingjaskapur og leti. Baldri - sem er nú eiginlega alveg hættur að sinna mér (ja nema í dag þá var hann svolítið að rífast- mest til að halda sér í formi held ég frekar en mér ;-)), finnst eindregið að ég eigi að fara í sundleikfimina. Æ mér leiðist svo bara þetta kraðak og mannmergð - sigh. Verð líklega að troða mér á einhvern góðan stað því þó það fari að birta og allt mögulegt þá get ég ekki gengið eins og er útaf hálsinum og ekki get ég nema hæfilega verið í Styrk eins og ég er í hálsinum.

VÁ ÞVÍLÍKT væl. Auj barasta. En að leggja þetta á eina litla bloggsíðu.

En sem sagt. það eru til 97 sentimetrum minna af Ingveldi en fyrir ári síðan og ég er akkúrat einu kg. léttari en ég var fyrir tveimur vikum og þá var ég 700 gr þyngri en fyrir jól - sem ég ákvað að væri innan skekkjumarka varðandi það að þyngjast :-) - er það ekki bara rétt skilgreining?

Ég er ótrúlega uppgefin, ótrúlega illa upplögð en ótrúlega uppistandandi. Hælspori og hálsverkir venjast bara furðu vel - já eða þannig. Mig langar bara mest í sund upp á hvern dag en ég held ég láti það vera að sinni. Rúmið heillar ótrúlega satt að segja!

21.1.07

Mælingar


Það var með semingi sem Palli minn samþykkti að mæla horfna sentimetra á frúnni enda fóru síðustu mælingar í nóvember ekki sérlega vel fram! Reyndar gekk svo mikið á að hvorki Bjartur né Páll hafa almennilega borið sitt barr síðan. Og málbandið var rétt að koma í leitirnar nú um daginn! Það voru sem sagt farnir eitthvað færri sentimetrar þá en frúin vildi.

Páll samþykkti þó með semingi að mæla en einungis með því skilyrði að vera með hjálm og auða útgönguleið úr stofunni. Ég gekk að öllum skilyrðum og hét mér og honum því að vera ósköp blíð og góð. Hann setti nú Bjart út engu að síður enda engin vörn til handa honum önnur en útveggirnir!

Frá því í ágúst hef ég misst samtals 28 sentimetra og um 18 síðan í nóvember.

Þetta er svolítið merkilegt því frá nóvember og til dagsins í dag hef ég sáralítið - ef nokkuð lést en frá ágúst og fram í nóvember léttist ég allnokkuð og töluvert meira en ekki neitt.

Þetta sýnir mér rétt eina ferðina að ég verð að vera róleg, þolinmóð og skynsöm. Ég er greinilega enn að byggja upp líkamann og fá mér svolítið af vöðvum fyrir svo utan það að þetta virðist bara ganga svona -upp og niður - stopp. Langa stoppið nú frá því í nóvember er þó ekki kyrrstaða því ég hef glatað þessum sentimetrum út til efnisheimsins.

Nú snýst allt um það að vera sæmilega sátt, sallaróleg og halda ótrauð áfram. Nú birtir óðum, hlýir dagar framunda og ég hlýt að komast í styrk tvisvar sinnum í næstu viku nú eða ég bæti mér það upp með svona líka svakalegri sundferð eins og í gær - kannski verð ég tilbúin að leggja 40 mín að baki í sundi og þá er ég að brenna eins og á hjóli og ógeðstækinu á sama tíma. Svona á góðum degi :-).

Ég vaknaði sæmileg í hálsinum í gær og í dag - ekki verkjalaus en ekki með þessa rosalegu lömunartilfinningu og harðræðistilfinningu í aftan í hnakkanum og niður í bakið. Ég er hins vegar strax farin að þreytast núna en það er skref fram á við að opna augun öðruvísi en ég haldi að ég sé í gapastokknum.

En sem sagt Bjartur og Páll komust vel frá mælingunum og una nú sáttir við sitt. Svo ekki sé minnst á konuna sem hefur misst 97 sentimetra all frá því í lok apríl þegar hún byrjaði að léttast.
Posted by Picasa

8.1.07

Mont

Sko stundum þarf maður að pakka í vörn og verjast árás s.s. eins og pínu þunglyndis og jóla - og þá ekki síður áramóta og janúars!

Nú það er skemmst frá því að segja að ég hef ekki þyngst frá því fyrir jól og þar til nú nema ef ég skyldi telja með 200 grömm eða svo sem ég ætla ekki að gera!

Ég er rosa ánægð með það. Ég er svo sem ekkert himinlifandi með árangurinn í haust - það hefur lítið farið af kílóum síðan í október en ég ætla samt að vera ánægð að hafa náð því markmiði mínu að hanga á fengnum hlut yfir hátíðirnar.

Í dag brenndi ég 550 kal í sundi! Persónulegt met skal ég segja þér! Enda fékk ég bikar frá Polar vini mínum!
Í dag hef ég borðað tvær skyrdollur, banana, epli, kjúklingasalt, 400 gr grænmeti og fisk með smjörklípu. Ég hef líka drukkið rúman lítra af vatni.
Í dag fór ég í langþráð nudd og fékk bylgjur á hælinn. Er að vísu algjörlega ógöngufær eftir þær en af fenginni reynslu þá veit ég að þær hjálpa.
Í dag fór ég í toppsport og sá ekki Helgu Dögg og ég áttaði mig ekki neitt á neinu! Þeir verða nú að vinna svolítið meira í þessu svo ég fái einhvern botn í þetta. Finnst þetta allt mjög þröngt og sérkennilegt verð ég að segja.

Á morgun ætla ég að drekka meira af vatni og fara í sund.
Á morgun ætla ég að borða 600 gr af grænmeti!

Á miðvikudag ætla ég að byrja í sundleikfimi hjá Betu. Ég er í eitthvað svo miklu sundstuði.
Hún byrjar korter fyrir sjö og er búin hálf átta - sem þýðir að ég kem út í skóla sprikluð og fín og fæ mér eitthvað að borða þar :-).

10.12.06

Verkefnið Lífsstílsbreyting Ingveldar


Baldur er stundum að reyna að koma vitinu fyrir mig - alltaf jafnvel og reynir að finna ýmis rök og líkingar máli sínu til stuðnings. Stundum er Ingveldur alveg mát í upphafi tafls og því þarf hann að byrja á því að raða mönnunum upp fyrir hana á ný. Það gerir hann stundum með líkingunni við barn sem er að læra að ganga. En á betri dögum vísar hann til maraþonhlauparans sem þarf að hafa ákveðna áætlun til að hlaupa eftir - ákveðin markmið til skemmri og lengri tíma - það er ekki byrjað á því að demba sér til New York og hlaupa hjá þeim Björk og Grími!

Í mörg horn að líta

Eftir því sem hefur liðið á haustið hefur mér orðið það betur og betur ljóst að þetta verkefni mitt - lífsstílsbreytingin, er ekkert sérlega auðvelt. Það er í sjálfu sér ekki erfitt að mæta í ræktina, einblína á að léttast og það allt saman - ég hef gert það - en það sem er erfitt er að halda út, missa ekki sjónar á því hvert skal haldið - vera viss um að maður vilji ná þangað. Mesta erfiðið er að breyta lífsmynstri sínu frá a til ö from now until eternity. Það er ekki bara mataræðið, heimilislífið, áhugamálin, lífssýnin - heldur það sem mér reynist kannski hve erfiðast - viðhorfið til vinnunnar. Þar þarf meira en lítið að ganga á, áður en ég næ lendingu. Ef maður er ófullnægður á einu sviði smitast það yfir á önnur svið. Maður getur sett upp augnhlífar eins og dráttarklárarnir einblínt á þyngdina, æfingarnar og saltað allt hitt en það kemur þá bara í hausinn á mér seinna. Það er bara ein leið til að gera þetta - og það er með því að taka á öllum hliðum mínum og þær eru margar, margbreytilegar og snúnar sumar hverjar. Kannski eins og hjá okkur flestum. Mesta kúnstin er þó að ætla sér ekki að gera það allt á sama tíma - og á sem skemmstum tíma!

Líkt er Ingveldi og íþróttamanni á leið á ÓL
The Mind Makes a Champion

Nú síðast þegar við Baldur spjölluðum þá var hann mér alveg sammála um það að verkefnið Lífsstílsbreyting Ingveldar væri vissulega erfitt - tröllaukið. Það var ákveðin fróun í sjálfu sér að fá staðfestingu á því fannst mér. Það væri ekki bara minn vesaldómur sem héldi því fram. Af því tilefni benti hann mér á að þetta væri eins og íþróttamaður ákveddi að fara á ÓL. Og mér fannst það nógu merkilega viðlíking til að hugnast hún vel ;-). Lífsstilbreytingin verður mín vegferð til Olympíu.

Það þarf að taka þátt í mörgum mótum, ná mörgum áföngum, þjálfa líkama og kannski ekki síður huga áður en settu marki er náð. Það eina sem truflar mig við þessa líkingu er að líklega hefur íþróttamaður sem ætlar sér stóra hluti traustari undirstöðu fyrir sinni ákvörðun en ég varðandi lífsstílsbreytinguna– ja að því gefnu að hann eigi eitthvað erindi á mótið – geti eitthvað í sinni grein en sé ekki eins og hvert annað nutcase!

Mér finnst ég bara hafa verið ferlega klár að hafa ekkert gert í mínum málum á skalanum almennilega fyrr – ekki eins klár að hafa látið hlutina þróast eins og þeir gerðu á bilinu 15 – 30 en um það er oft seint að fást núna. Ég hefði ekki komist úr sporunum ein – þetta er ekki eins manns verk það er alveg klárt og ekki heldur einhver hugdetta sem manni finnst eins og gæti verið sniðugt að framkvæma! Á einhvern undarlegan hátt hefur mér ekki dottið í hug fram að þessu að snúa ferlinu við, fara úr kyrrstöðu fíkilsins yfir á heilbrigða helminginn. Fyrir vikið er ég þó ekki með 100 skipsbrot á bakinu og veit blessunarlega lítið hvað bíður mín – annars gæti nú hörmungarhyggjan náð yfirhöndinni af enn meiri krafti en fyrir er! Ég hef sem sagt ekki skýra mynd af því að mistakast þetta verkefni í huganum – engin fyrirframgefin úrslit byggð á biturri reynslu.

Grunnurinn skiptir máli

En aftur að grunninum sem ég nefndi áður. Minn grunnur andlega er ekkert sérlega sterkur held ég ef við lítum til þess sem ég þarf að horfast í augu við. Lengi vel hef ég lítið leitt hugann að ókostum mínum og brestum. Hef haldið áfram á því sem ég hef talið mínar sterkar hliðar- falið hitt í algleymi þess sem þykist ekkert vilja af þeim vita nema þegar myrkirð sækir að. Þegar birtir er aftur horft fram á veginn og brestirnir víkja fyrir hinu sem ég get gert. Það þykir orðið nokkuð ljóst að ég er fíkill – það verður víst enginn svona feitur eins og ég nema hann sé fíkill. Mér finnst að vísu ekkert fínt að vera fíkill – myndi gjarnan vilja sleppa við þann stimpil en ég skal alveg venja mig við hann – tækla málin útfrá því. Er ég þá ekki komin með eina afsökunina enn? Ah mér er nú ekki sjálfrátt og því ætla ég bara að fá mér svolítið nammi og ,,njóta" lífsins? Ég tek því svo bara af þolinmæði og umburðarlyndi og geri eitthvað í því þegar ég er í betra standi til að berjast við fíknina? Fíklum er jú oft á tíðum ekki sjálfrátt!

Ekki er nóg með að ég sé fíkill heldur er ég óþolinmóð og óvægin. Ég skal alveg kaupa það að ég sé óþolinmóð og flumbra. Ég t.d. sleit í sundur jólaseríu í fyrrakvöld bara af því mér hugkvæmdist ekki að athuga afhverju hún væri föst – heldur væri ráðið bara að toga fastar. Meira vinnur vit en strit hjá hinum þolinmóðu trúi ég en mér. En ég held ekki óþolinmæðin stjórni lífi mínu, og hún er líka ákveðinn drifkraftur. Og hún er hluti af persónuleika mínum og ég vil helst ekkert breytast mikið í grunninn heldur vera færari um að takast á við sjálfa mig – og þá þarf víst þessa margfrægu þolinmæði og títtnefnt umburðarlyndi.

Glíman núna er sem sagt að finna þennan meðalveg í umburðarlyndinu. Ég held mér sé ekki hollt sérlega mikið umburðarlyndi. En ég má heldur ekki skjóta mig í tánna í hvert eitt sinn sem mér verða á mistök en einhvern veginn finnst mér þau vera óleyfileg hvað mig varða – í sumu að minnsta kosti.

Ofan á allt annað er ég móðursjúk – sem mér finnst nú kannski verst af þessu öllu því það vil ég síst af öllu vera. Sáli reyndi þó að útskýra fyrir mér að þessi móðursýki fælist í næmni fyrir umhverfi mínu og slík en ekki almennri hysteríu – og mér finnst það nú ekki vera neitt ljótt eða slæmt, nema náttúrulega þegar maður verður fyrir slæmum áhrifum vegna þessa. Ég tel hins vegar að þessi næmni sem ég hef – og ég hef mikið af henni það skal viðurkennast, geri mig að góðum kennara en hún getur líka verið slítandi. Og svo nemur maður ekki alltaf allt rétt. Það er náttúrulega ekki gott – þá verður maður kannski svolítið móðursjúkur!

Ég efast um að íþróttamaður sem ætlar sér í fremstu röð hafi þessi ósköp öll, – nema þau séu þá hluti af styrk hans og þori - hann hafi lært að nýta sér skrattakollana sína sér til framdráttar og það er það sem mig langar að gera. Þess vegna fór ég til sálfræðings og þess vegna tel ég mig hafa fullt erindi þangað.

En ég hef líka kosti sem hjálpa: Ég get séð skondnu hliðarnar á málunum, ég er úrræðagóð, ég horfi á heildina, ég hef kroppinn í verkefnið, ég hef líka keppnisskap þó ég vilji helst ekki viðurkenna það og kunni lítið með það að fara! Ég get hrundið ótrúlegustu verkefnum af stað og það sem meira er ég get fylgt þeim eftir (ef ekki áður þá héðan í frá ;-)). Ég er dugleg!

Meðganga lífsstílsbreytingarinnar

Það eru komnir 9 mánuðir – heil meðganga síðan ég fór fyrst í salinn. Það telst ekki langur tími af mannsævinni og það er ekki langur tími í samanburði við þann tíma sem ég eyddi utan ræktarinnar.

Mér finnst þetta samt vera langur tími – og mér finnst eins og mér hafi átt að miða lengra en raun ber vitni. Ég sit hér og hef ekkert hreyft mig í síðustu viku – hvorki gengið úti, farið í salinn, né synt. Ét sælgæti núna – þó skammturinn hafi átt að vera etinn í gær og það sem verra er mér finnst eins og ég standi frammi fyrir þeim valkosti að halda áfram að éta nammi og hætta að hreyfa mig. Mér finnst það raunverulegur möguleiki að hætta að leggja þetta á mig – það sé hreinlega ekki framkvæmanlegt að gera þetta hvort sem er og því sé það í boði að halda áfram fyrri háttum, vinna, reyna að bæta mataræðið og hreyfa mig á sumrin.
Ég veit samt alveg hvað ég vel – ég vel að hreyfa mig og halda áfram að róa með í átt að bættri heilsu en afhverju er ég að sökkva? Og hvenær hefst ferðin upp á yfirborðið?

Ætti ég að hafa farið vigtina – mér finnst eins og hún veiti ákveðið aðhald og ekki veitir mér af aðhaldinu? Eða á ég að hugsa um að ná mér á flot og ekki vera að lemja á mér fyrir það sem ég veit að er ekki í lagi – einbeita mér að því að laga það og sækja svo fram og hafa þá vigtina með mér í sókninni frekar en að hafa hana sem andstæðing eins og staðan er óneitanlega núna?

Mér finnst hver dagur sem ég léttist ekki, hver vika sem ég stend mig ekki vera nagli í líkistuna – sönnun þess að ég geti þetta ekki. Sé ekki fær um að breyta mínum háttum. Sé aumingi. Ég horfi til þess að ég ætti að vera orðin 24 kílóum léttari 1. apríl 2007 en ég var 1. apríl 2006. Hvað ef ég verð það ekki? Þá hef ég fullkominn stimpil á rassinum sem á stendur auli!

En um leið og ég skrifa þetta þá kannski finnst mér nú kannski að ég nái þessu... 2 kg á mánuði og það eru kannski farin 15 – 20 kg þá kannski á ég möguleika. Þegar ég set dæmið svona upp...
Kannski bara get ég þetta? Kannski er ég bara fær um að gera eitthvað í mínum málum eftir allt saman! Kannski gengur þetta bara svona – niðursveifla og íhugun, sókn og dirfska.

Nú stend ég bara frammi fyrir því hvort ég fer í Styrk á eftir eður ei á eftir. Eða nei – ég stend ekki frammi fyrir því. Ég stend frammi fyrir því að ég fer í Styrk á eftir. (Fór ekki þar sem ég sofnaði fram á lyklaborðið eða því sem næst. Annað stendur óbreytt - óhaggað. Fyrri einbeitni verður tekin upp!)Næsta vika bíður með hreyfingu og vonandigóðri líðan. Vonandi fær Bjartur að njóta góðs af því – hann er búinn að vera í hálfgerðri einangrun því enginn labbar með hann ef ég geri það ekki. Ef ég næ ekki að hreyfa mig eins og hér segir hafa markmiðin verið of mörg. Markmið þar næstu viku gætu verið önnur bæði með tilliti til þess hvernig gengur að ná þessum en þó ekki síður breyttar aðstæður, jólafrí og það allt saman.

Markmið

Sem sagt markmið næstu viku:
Sofa – sem hefur vel að merkja gengið vel síðustu 3 nætur eða svo þó ég vakni ótrúlega oft sérstaklega fyrri partinn.
Slaka á í vinnunni – Róm var ekki byggð á einum degi
Huga vel að mataræði – muna 1 nammidag!
Svona ætla ég að hreyfa mig því ég ætla að vera dugleg næstu viku - ekkert múður.
Sunnudagur – Styrkur
Mánudagur – morgunbrennsla – helst ganga með Bjart.
Þriðjudagur – spinning
Miðvikudagur – morgunbrennsla og/eða
Fimmtudagur – morgunbrennsla

Föstudagur - salur

10.11.06

Ok ok nokkuð fyrirsjáanlegt kast en samt...


Er að fá nett fitt hérna!

Skyldi það vera vigtin sem ég steig á og var sú hin sama vigt bara með tóman skæting! Hugsi hugsi hugs - gerði ég eitthvað vitlaust í þessari viku ha hu hummmm! (gæti það verið???)
Hef líklega borðað í minnsta lagi - og eitthvað var síðasta helgi sérkennileg en annað ekki - ég fer sko ekki ofan af því! Kannski miðvikudagskvöldið samt.... hummm

Nú...
Hvað hef ég verið að hreyfa mig? Sunnudagur- fínn, ekkert á mánudag - var jú svo syfjuð eftir Mýrina sjáiði til - um morguninn, þriðjudagur brennsla um morguninn og hinn margrómaði spinningtími, nú svo var ég náttúrulega svo þreytt að ég gat ekki gert neitt á miðvikudegi ja nema labba til Dísu og til baka , í gær fór ég í brennslu og í dag - bramm ekki neitt! Og föstudagarnir eru sko skotheldu og bestu og flottustu dagarnir mínir sem ég hef ALDREI klikkað á.
Sem sagt ekki góð vika í hryeyfingu en maturinn ekki svoooooooooooooo slæmur en ég verð að bæta mig!
Dj.. ég þarf alltaf að vera að bæta mig - hundleiðinlegt helv..


en þá er nú svei mér gott að vita að það er gott að léttast hægt því lífstíllinn þarf að breytast með ha hu humm- sá er nú að breytast mar en bara aldrei alveg nóg ha hu hummm!!!!!!


Best að éta nammi og vín og osta og mat þangað til mig langar að æla og vera svo eins og manneskja það sem eftir er vikunnar.
En hvort hefur nú betur - afskanirnar góðu í næstu viku eða líkamsræktin? Er það raunveruleg spurning? Ég veit að mataræðið bíður lægri hlut - og svo kemur Palli heim í kjölfarið og þá er hin ultimate afsökun komin til að geta ekki gert neitt. Það er svo flókið lífið þegar hann er heima sjáið þið til!


God hvað ég á langt í land með að taka mig í gegn þannig að það skili einhverju!


Slagurinn sem sagt - slagurinn!

28.10.06

Af hálsi og letilífi - varúð væl pistill mikill

Ég átti alveg arfa slaka nótt eftir ágætan gærdag. Ég fór í Styrk og stóð mig bara vel og svo í nudd. En í fyrsta skipti á ferlinum datt mér það í hug í nótt að kannski ætti ég bara ekkert að vera að fara í nudd á meðan hálsinn er svona!
Ég var bókstaflega að drepast. Ég hafði nú etið vel af Norgesic í gær og fyrir svefninn - auðveldar mér til muna lífið verð ég að segja - hélt jafnvel að ég væri bara að verða góð! En ég hafði ekki undan í nótt að vorkenna mér. Ég fann svo ótrúlega til í hálsinum. Það var eins vinstri hliðin langt upp eftir haus væri opin kvika. Norgesic gerði sko ekkert gagn, og ég fór því fram í ísskáp og náði mér í kælipokann og lagði hann við. Þá fyrst fékk ég einhverja bót ég meina það. Svo hitnaði hann nú en ég tók hann aftur fram undir morgun. Ég er ekkert afleit í dag en ég get nú ekki snúið hausnum hratt til hægri eða vinstri og öll sveigja er óþægileg.
Bjartur er mjög óánægður með lífið og tilveruna. Ég fer ekki með hann út í dag - ég er algjörlega ákveðin í því að hvíla mig í dag enda fer ég í Styrk nú eða Toppsport á morgun og veitir bara ekkert af hvíldinni ;-) Ég nenni ekki einu sinni í sund og þó er veðrið eins og best verður kosið. Mest langar mig að skríða upp í rúm og gera ekki neitt nema sofa en ég hef ekki góða reynslu af viðureign minni við koddana eða ekki koddana.
Mataræðið er ekki að gera sig. Aðallega af því það er ekkert til. Ætla samt að reyna að gera eitthvað gáfulegan fisk núna svo ég fái eitthvað almennilegt. Þetta er eilíf barátta við halda matnum að sér á réttum tíma og í réttu magni. Ekki vil ég vera étandi fram eftir öllu. Rétt að venja sig ekki á þann fjanda á ný.
En jæja svo sem ekkert að frétta, nema bara hvíld og róleg heit og almennt væl. Voða sem ég er orðin vælin - en það er svo sem ágætt að fá útrás hér á blogginu - hef engan til að væla utaní annan ;-) Svo afsaka ég þetta með sjálfri mér með því að segja að það sé bara gott að koma þessu út úr myndinni með því að pústa - sneðugt ekki satt?
Maður er svona að taka pólinn upp á nýtt eftir skrítið tímabil í október. Hélt einhvern veginn ekki að október yrði erfiðasti mánuðirnn af þeim 6 sem liðnir voru. En svona getur þetta verið. Vandræðin gera ekki boð á undan sér og líklega þarf maður bara að ganga í gegnum ákveðnar sveiflur og líta svo á heildina.
Ég er mikið að hugsa um vigtina - ég er næstum viss um að ég stíg á hana á morgun - en vil það samt hálfpartinn ekki og eiginlega alls ekki. Mér finnst bara svo asnalegt að stíga á hana með Baldri með lokuð augun eitthvað- eins og maður sé ekki fær um að bera ábyrgð á því sjálf... En kannski er það bara sniðugt... (not) Er samt ekki alveg búin að kaupa það!

27.10.06

Snör viðbrögð og ný aðgerðaráætlun


Það er margt sem getur ruglað litla sál eins og mína. Meira að segja fyrirfram þokkalega fyrirsjáanleg birtuskilyrði geta haft ótrúleg áhrif. Ég hef síðan ég byrjaði að vinna farið með Bjart á morgnana upp í Hellisskóg og gengið þar. Ástæðan er fyrst og fremst sú að þá þarf ég ekki að halda í kvikindið sem er í meira lagi leiðinlegt verk eins illa og hann er upp alinn blessaður. Við getum því bæði um frjálst höfuð strokið.
Þetta gekk allt saman vel á meðan það var bjart. Ég gat verið búin að borða hafragrautinn og komin út í skóla bara rétt um sjö ef ég vildi. Náð andanum og hugsað minn gang og unnið svolítið líka ;-).
En svo fór þetta að verða erfiðara og erfiðara. Ég komst alltaf seinna og seinna og stressið jókst í samræmi við það. Nú svo fór ég að fara á hjólinu í skólann og hafði gaman af en það er ekki hægt í kulda og hálku snjó og slabbi. Og því fór að líta illa út með morgunbrennsluna mína (sem hefur samt skilað ótrúlega litlu í þyngdartapi miðað við væntingar verð ég að segja! en svöng er ég þannig að ég borða meira fyrri partinn en ég gerði og minna seinni partinn). Nú svo er bara svoldið mikið að gera í vinnunni og einhvern veginn er vikan þannig upp sett að ég þarf að vinna skrambi langt fram á kvöld á þriðjudögum og mánudögum sem voru báðir líkamsræktardagar.
Ég var líka hætt að hvíla um helgar heldur fór t.d. bæði í langa göngu í Þrastarskógi bæði laugardaga og sunnudaga enda veðrið og haustlitirnir eitthvað sem ekki var hægt að láta fram hjá sér fara. Þannig að ég var orðin ansi þreytt á miðvikudegi eftir vinnu, labb og líkamsrækt.
Smám saman dró því af mér. Ég átti erfiðara og erfiðara með brennslutímann og enn erfiðara með að halda í við verkefnin í skólanum. Þetta bjó svo um sig í mér og ég varð kvíðin og fannst ég ekki alveg ráða við þetta allt saman að því svo viðbættu að ég léttist ekki neitt svo árangurinn þeim megin var ekki góður. Fannst mér.
Eitthvað hefur þetta síast út í umhverfið og mínum helsta styrktaraðila var ekki farið að lítast á blikuna og hefur nú í nokkurn tíma bent mér að hætta að hugsa um vigtina heldur einbeita mér að heilsunni, mataræðinu og því hvernig mér líður eftir æfingarnar. Allt annað sé aukaatriði - bónus í besta falli. Ég get nú alveg fallist á að það sé rétt viðhorf. Það er ekki eins og það hafi einhvern veginn alltaf skipt mig svo miklu máli að léttast... Ég vil svo sem frekar vera heilsuhraust en best þætti mér að léttast líka. Mér finnst að ég eigi bara að gera það! En það er eitthvað sem skilar sér ekki þó mér finnst að það ætti að gera það! Baldur segir að það sé ekki línuleg fylgni á milli þess að hreyfa sig og léttast. Mér finnst nú samt að það eigi að vera rökrétt samhengi þar á milli - ég verð nú að segja það!!!! En ég þarf að venja mig við hina nálgunina - hún er hvort sem skynsamlegri og meira í mína veru. Ég er því komin með svar við því þegar fólk spyr hvort ekki gangi vel og ég sá alltaf jafn dugleg. Já og hvort ég sé ekki búin að léttast heilmikið og það allt saman. Ég ætla sem sagt að segja að ég sé alltaf jafn dugleg og ég styrkist með hverjum deginum! Þetta láti mér líða svo dáindis vel - en það segi ég nú bara ef ég er í rosa uppsveiflu! Gott plan ekki satt?!?
Og svo er ég komin með nýja aðgerðaráætlun varðandi hreyfinguna:
Passa mig gríðarlega í mataræðinu þessa viku!- Einbeiti mér að því að borða svakalega ofboðslega hollt og fínt viku og viku. Annars tek ég einn dag í einu og reyni að standa mig með að borða máltíðir með fullum grænmetisskammti sem allra oftast. Ekki borða á kvöldin - sem vel að merkja hefur gengið dásamlega vel í flestum tilfellum

Fer í Styrk (sem heitir eitthvað annað) á þriðjudögum



Fer í Styrk á föstudögum og djöflast vel og lengi - gæðatími
Prófa að fara í Styrk á sunnudögum eftir hádegið.

Í millitíðinni labba ég og hjóla – fer í morgunsárið í Styrk og hjóla smá ef mér finnst of kalt úti eða færðin úti leiðinleg!

Eyk brennslutímann upp í 50 mín þrisvar í viku en hef hann um 20 - 30 mín í hin skiptin.
Flott aðgerðaráætlun ekki satt?
Opinbert markmið Ingveldar er að léttast um 2 kg fram að áramótum. Það finnst mér lélegt markmið en Baldur segir að það sé nógu gott. Það sé þá bara ágætt ef það gengur betur en sé ekkert atriði. Já og sá böggull fylgir reyndar skammrifi að ég á að halda þyngd minni yfir jólin...
Ég er reyndar með ráð við því. Ég reyni bara að léttast meira, segi honum ekki frá því og þyngist svo bara sem því nemur um jólin! Klárt ekki satt?
Reyndar hef ég einhvern grun um að hann ætli mér ekki að stíga eftirlitslaust á vigtina hér eftir og halda reyndar fyrir augun á mér á meðan. Honum finnst ég verða eitthvað svo geðvond við að stíga á vigtina... Skil nú ekki afhverju hann kemst að þeirri niðurstöðu ;-). Vill taka þann þátt út. Ég á samt svolítið erfitt með að skilja hvað ég græði á því að hann sjái tölurnar en ekki ég - og til hvers þarf ég þá að vera að stíga á vigtina? Hvað þarf hann að vita hvað ég er þung ef ég veit það ekki sjálf? Skil þetta ekki alveg. En hann veit kannski hvað hann syngur. En bara kannski....
Nú jæja nóg er líklega komið af rausi í dag. Ég er bara ánægð með mig. Fór í 50 mín í brennslutækin á miðvikudaginn, 40 mín í gær (sem var svona auka sprikl því ég labbaði bara með Bjart en hjólaði ekki í vinnuna) og 45 í dag eftir að hafa hjólað í hálftíma um plássið í morgun í roki og rigningu - ja amk svolitlum vindi. Lærvöðvarnir mínir sem eru nú engin smá smíði voru þreyttir í dag, helvíta uppgefnir greyin þannig að það var mér töluvert mál að hjóla í 25 mín ;-) en ég gerði það. Og er stolt af mér.
Mér líður miklu betur í hálsinum þó ekki sé ég góð. Ég hef líka ekki mikið gert reyni bara að slæpast og hvíla mig. Borða svoítið Norgesic. Ægilega fínt efni! Og hælsporinn er að koma aftur. Orðin hölt og ferlega stíf fyrst á morgnana. eins og var gaman að ,,halda" að ég væri laus við hann. En svona gengur þetta til.
Ætli ég fari svo ekki að fara í spinning? Ja það væri þa.

25.10.06

Leiðin mín

Það er skrítið með þessa vegferð mína sem lífið er. Er það ekki svo með okkur öll? Einhver sérkennileg undarlegheit sem saman mynda lífið.

Afhverju ætli ég geti ekki bara farið í megrun og látið þar við sitja. Afhverju þarf ég að leggjast í einhverja sjálfsskoðun. Glíma við fortíðina, mistökin, mótunaröflin?

Ég veit ekki svarið, ég veit samt að fyrir mér er engin önnur leið til. Ég einhendi mér í þetta, endurskoða, endurupplifi og set saman í myndina af mér. Hver er ég? Hvers vegna er ég feitari en maðurinn við hliðina á mér? Hvað get ég gert til að breyta því - sætta mig við eða fyrirgefa mér að vera sú sem ég var og umfaðma þá sem ég er og verð og ætla að verða?

Hið eina sem ég get gert er að takast á við þetta verkefni - mig. Sinna því eins og flestum öðrum verkefnum sem mér hafa verið falin um ævina; af kostgæfni og alúð. Nú er komið nóg af því að setja sjálfan sig í aftursætið, nú þarf að huga að og gefa sér tíma til að íhuga og ígrunda sitt líf. Einungis þannig get ég breytt því sem þarf að breyta.

Oft er erfitt að finna það sem er að, kannski er ekkert að sem orð er á gerandi en raunveruleikinn er þó sá að sjálfsmyndin og sjálfstraustið er ekki upp á sitt besta. Sjálfsmyndin myndast í bernskunni og unglingsárunum og þá gerðist margt sem ég finn núna að hefur skipt máli og flest gott - afskaplega gott. Ég átti 9 eldri systkini sem öll höfðu skoðanir á yngstu leiðinda frekjudósinni, dekurdúkunni og sjálfstæðisinnanum Ingveldi. Ég fékk eitt og annað að heyra og ég er sannfærð um að það sé allt satt enn þann dag í dag. Alveg sama þó ég reyni að halda öðru fram við sjálfa mig. Og einhvern veginn er það svo að hrós var í minna mæli en umvandanirnar. Ég var bara lítið barn sem gat ekki verið annað en ég var og systkini mín þau sem þau voru. Engum er um að kenna en eftir stendur það sem var sagt og sýnt. Sumt hafði neikvæð áhrif á stelpuhnokkann annað gerði mig að þeirri hetju sem ég er ;-) - sumt man ég enn og á eftir að fyrirgefa. Bara smá atvik, orð - fjölskyldulíf af bestu gerð en ég sver það er ekki auðvelt að vera yngst 9 systkina og eiga aldraða foreldra. það eru æði margir sem hafa álit á uppeldinu og afurðinni. Þetta myndar sjálfsmyndina og mín er hálf brengluð held ég. Og það er svolítið erfitt að takast á við þetta allt saman.

það er líka glíma að takast á við ræktina og hreyfinguna. Þar koma oft fram brestir á sál og líkama sem þarf að taka á, áður en næsta skref er stigið. Baldur þarf að laga hælsporann og auman háls, ég þarf að laga það sem er fyrir innan og styrkja það og efla í senn með hans hjálp og annarra. Dj... sem þetta getur verið erfitt. Og þegar steitir á er auðveldast að fara í gamla farið - það er ekki best en það er auðveldast.

Það sem er mér erfiðast núna er að sinna vinnunni, ræktinni, labbinu, heimilinu, náminu, Bjarti, börnunum, Páli þannig að allir fái sitt og mér líði vel. Það gengur ekki vel. Ég vildi geta unnið miklu meira. (minnumst ekki á allt hitt) Miklu miklu meira... Og verkefnin hrannast upp...

Það er líka erfitt að vera svo illt aftan í hálsinum og níður í bak og ætla sér að láta eins og ekkert sé. Þá er gott að hugsa með sér að hvíld sé nauðsynleg. Hægja á og ná sér góðri. En gerist það með hreyfingarleysi? Náði ég mér góðri þannig í vor spurði Baldur og svarið er reyndar nei.... Og þar sem mér varð það ljóst fór ég í Styrk í dag og tók 50 mín í brennslu þar af 12 á svitavélinni ;-) og þunginn hvíldi ekki allur á höndum takk fyrir pent.

Ég verð ekki ánægð nema ég stundin ræktina af þeim krafti sem ég veit ég þarf. Ég þarf bara að setja upp nýja áætlun - nýtt plan og hætta að væla. Ég bara missi stundum stjórn á mér í vælinu. Ég ætti að rifja upp það títtnefndur sjúkraþjálfari sagði við mig í sumar: Hættu að segja oh alltaf þetta er ekkert erfitt.

Það er hvort sem er bara skilgreiningaratriði.

En ég fór á vigtina í dag. Held mig langi ekki aftur á hana. hafði ekki þyngst frá síðustu vigtun. Ég hafði jafnvel búist við því. Og nú er bara að vera dugleg og hugsa um hitaeiningar. Og brennslu. Ég verð að brenna og brenna og brenna.

Ég fór í nálar í dag og ég sver að þetta er engu líkt. Þær held ég að hafi allar lent á sálinni í mér og ollu stormviðri þar. Svo ekki sé minnst á verkinn í vinstri hluta líkamanum frá toppi til táar en vinstra megin er hælsporinn sem er ekki eins góður og ég hélt hann væri orðinn, kálfi sem verkjar, vinstra megin í hálsinum er allt verra. Ólýsanleg tilfinning. Óskiljanleg líka

15.10.06

Það dugir ekki að láta svona



Sem sagt ég er haldin einhvers konar sjálfseyðingarhvöt. Ég hef komist að því.

Baldur hafði rétt fyrir sér að ég ætti ekki að vera alltaf á vigtinni heldur hugsa um að koma mér í stand og hafa léttinginn on the side því vigtin gerir mig mjög geðvonda.

Nú steig ég á hana á föstudaginn og hitti ekki á góðan dag! Og ég er búin að vera alveg vitlaus síðan. Gott ef ég er ekki búin að bæta á mig öllum 16 kg sem voru farin og gott betur allt fyrir afli hugarorkunnar.

Og ég held að ég sé meira að segja búin að fatta ástæðuna fyrir þessu. Ok það er í sjálfu sér ekki neitt mál að gera það sem ég er að gera - það þarf ,,bara" að gera ákveðna hluti og s.s. eins og breyta vinnutímanum sínum, ganga í gegnum ýmsa líkamlega verki, taka til í sálarlífinu, fást við þá bresti sem koma í ljós undir álagi - og vísast valda því að maður er eins og maður er -og ég er viss um að það eru fleiri en bara offitusjúklingar sem hafa sína bresti. Þetta er sem sagt svolítið mál allt saman ;-) en ég er viss um að það sé ekkert sérlega erfitt að léttast. Maður þarf einfaldlega að finna brautina sína - og það er erfitt.

En þarna komum við einmitt að kjarnanum. Ég hef í gegnum tíðina verið fullkomlega sátt við að synda sundsins vegna og áhrifa þess á mig. Ég hef verið alsæl með golfið golfsins vegna og sjálfs mín vegna. Og framan af í vor var ég alsæl með Styrk og ferðirnar þangað hreyfingarinnar vegna en svo fór það að léttast að skipta öllu máli. Ég er heltekin af því og allt í einu er ég bara að þessu til þess að léttast - kannski vegna þess að ég er ekki lengur það flak sem ég var og finnst ég vera hressari.

Það er góð og gild ástæða fyrir því að ég hef aldrei á ævinni farið í megrun. Það bara hentar mér ekki. En nú er ég allt í einu farin að haga mér eins og ég sé í henni án þess þó að hafa mataræðið þar inni. Ég vil bara að ég léttist vegna þess ég hreyfi mig og ég borða ekki eins vitlaust og ég gerði. Ég er farin að hreyfa mig á morgnana, verða svöng árla dags, hætt að borða eftir 8 á kvöldin og samt finnst mér ekkert gerast. Afhverju léttist ég t.d. ekki meira núna en ég gerði í sumar? Ekki labbaði ég fyrst á morgnana þá - ekki var brennslan komin af stað þá og ekki hjólaði ég svona mikið þá - og ég borða ekki tóma vitleysu núna - ég get bara sagt ykkur það strax.

Allt í einu er allt farið að snúast um þetta - hreyfingin og áhrif henna á mig hætti að skipta mig máli - ég varð bara heltekin af því að léttast en gerði þó ekkert róttækt í því hvað mataræðið varðar enda nenni ég því ekki. Og nú þarf ég að breyta þessu - ég þarf að skipta um sjónarhorn.

Ég þarf að hugsa um hreyfinguna og hvað hún gerir mér gott og hve skemmtileg mér finnst hún vera. Mér finnst ótrúlega gaman að hjóla og reyna á mig í salnum, gaman og gott að hitta Helgu Dögg og þá sem eru að æfa þar svo ekki sé minnst á hvetjarann minn og bjargvætt. Ég hef lést vel og ágætlega - þeir á Reykjalundi þverneita að það sé gott fyrir mann að léttast meira en um 500 gr á viku og það er MARGsannað að þeir sem missa meira en það safna fljótar á sig aftur fitu.

Afhverju er ég þá ekki ánægð? Afþví ég er haldin sjálfseyðingarhvöt.

Ég held að ég sé að leita að ásætðu til að hætta þessu og fara í sama farið - ég get ekki beitt hreyfingunni fyrir mig en léttingurinn er ekki að gera sig að því er ég tel mér trú um og þetta sé vonlaus margra ára barátta. Ég geti svo sem bara hætt þessu strax þetta sé hvort sem er ekki hægt - ég geti þetta ekki - ég sé ekki manneskja í þetta. Ég verði því bara að borða það sem hendi er næst og láta þetta sigla sinn sjó. Það að stíga á vigtina færir mér heim sanninn um það - það eru sveiflur upp á 1 kg búnar að vera alveg síðan í vor - sumar vikur er ég að bæta við mig og svo hrapa ég niður og bæti aðeins við mig aftur og svo koll af kolli. Ég veit alveg hvernig mynstrið er en samt læt ég það trufla mig - eyðileggja fyrir mér. Kannski af því ég veit að ég gæti alltaf gert betur í mataræðinu og hreyfingunni. Og ég lem á mér fyrir það að vera ekki fullkomin - gera ekki allt rétt - fá mér stundum óhollan mat. Það er náttúrulega fullkomin ástæða til þess að hugsa neikvætt - maður hlýtur að sakna þess eins og ég barði á mér hér í eina tíð fyrir að geta mig varla hreyft og láta rétta mér allt eftir að ég kom heim útkeyrð úr vinnu - farin á sál og líkama. Þá var nú aldeilis hægt að lemja á sér - ókeypis og af ákefð. Nú get ég sakað mig um að vera allt annað en fullkomin. Það er náttúrulega dauðasynd.

En aftur á móti þarf ég að laga nokkra hluti og það er kannski bara rétt að gera það og vera ekki að lemja á sér vegna þeirra. Ég þyrfti að léttast um 2,8 kg í október og það lítur ekki vel út - en ef ég geri það ekki - þá hef ég hreyft mig fullt, orðið betri af hælsporanum, hjólað mér til yndisauka og upplifað haustið og litina í göngum með litla krílið mitt hann Bjart - ekki svo slæmt! Hitt kemur - það hlýtur að koma eins og það hefur komið hingað til og ég verð hraustari og hraustari!

Svona ætla ég að reyna að hugsa í dag - taka því fagnandi þegar einhver segist sjá mun og þakka honum fyrir það. Og vona svo að Pallinn minn komi heim í dag. Þetta er nú búin að vera meiri biðin eftir ljósinu mínu.

19.9.06

Geggjað stuð að sprikla


Hörkunagli eins og þessi skór.
Ég get bara sagt ykkur það, að það að ég skuli fara út á morgnana með hundinn er ekkert annað en stórkostlegur dugnaður. Já - og hana nú.
Ég nenni því aldrei, hef aldrei tíma til þess og Bjartur svo óþægur að hann gerir hvern mann vitlausan -rífur í öxlina á mér, hendir hausnum á mér til og ég veit ekki hvað og hvað - fyrir utan geðvonskuna sem hann veldur mér!! Fótafúin.
Samt fer ég á hverjum degi (já já nema í gær) og mér finnst það alveg makalaust. Og verður enn merkilegra í vetur þegar það verður dimmt og kalt.
Nú meira af ræktinni for the record - fór í Styrk í dag og var mjög dugleg. Ég er búin að sjá að ég get ekki unnið í götunum mínum á þriðjudögum í skólanum - enda bara ómögulegt að vera ekki frammi og hjálpa til - þar er fullt af börnum sem vilja læra og næg verkefni. Hef samt bara tíma fyrir 30 mín brennslu en það verður að hafa það - ég líka get ekki mikið meira eins og ég er í fótunum. Lærvöðvarnir voru eiginelga alveg búnir frá því í gær eftir hjólatúrana miklu í Styrk :D svo ekki sé minnst á þennan verk undir hælnum sem er nú þannig að það er eins og hnífur fari í gegn ef eitthvað snertir þar - ái bara.
Svo var foreldrafundur - kynning hjá okkur - ekker er nóg með að nemendur okkar séu þeir bestu heldur eru foreldrarnir það líka. Það er gott og gaman að vinna með góðu fólki.
Takk í dag
Inga hörkunagli sem léttist um 400 gr frá því í gær og þar til í dag. Svoldið mikill gangur í þessu - er á meðan er. Rétt að njóta þess á meðan - nóg verður stoppið síðar ef ég þekki taktinn í þessu rétt :-)

18.9.06

Fótafúin Ingveldur í hjólreiðaham


Halið þið að það sé - þetta er mánaðarskórinn minn! Svei mér ljótur skór og á ekkert skylt við apríl - fuss og svei.
Jæja hjólið búið að vera í húsi í sólarhring. Vantar lás og hjálm - vil ekki hjóla hjálmlaus - fyrirmyndin og það allt saman. Hver veit nema ég fjárfesti í þessu tvennu innan tíðar.
Nú en ég fór í Styrk í dag eftir að ágætan vinnudag - mætti út í skóla kl. 06:00 og kláraði stöðvabækurnar sem ég byrjaði á í gær - vonandi eru þær réttar blessaðar. En sem sagt var komin í Styrkinn um 15 og það var bara ágætur tími en orðið alveg crowded um 17 þegar ég fór heim næstum rænulaus úr hungri - sulti og seyru (ælti það sé Y?) Púff - ég borðaði eitthvað grunsamlega lítið í skólanum í dag og ekkert frá 11:30 - mæli ekki með því - enda orðin algjör undantekning ef slíkt kemur fyrir.
Nú jæja sem sagt - þar sem mér er frekar illt í mínum fúnu fótum eftir göngurnar - sem styður enn þá bjargföstu trú mína að ég hafi EKKI getað farið út að labba fyrr en ég gerði - og ekki heldur þá reyndar., - þá ákvað ég að hjóla bara í dag í brennslunni en láta öll önnur brennslutæki vera. Og ég skemmti mér bara ágætlega. Hjólaði í 2X25 mín - og það var nú bara ekkert sérlega auðvelt - ekki þegar maður velur eitthvað svona fínaríis prógramm og þarf að halda ákveðnum hraða - assgoti gott bara. Ég svitnaði sem aldrei fyrr - með þessari dásemdar vellíðunartilfinningu samfara því- sem er einhvern veginn svoldið kinky.
Ferlega gott og hressandi - eldaði fyrir Ragnheiði og fór svo til Dísu systur að sauma smá en nennti því nú eiginlega ekkert. Talaði bara og talaði - það var ágætt líka. Hef ekki marga að tala við hér heima - Aðalsteinn segir að ég sé ekki viðræðuhæf ég sé svo leiðinleg og mikill tuðari og svo talar maður víst ekki um ákveðin málefni við móður sína - eins og kærustur og svoleiðis. Það takmarkar töluvert umræðuefnin verð ég að segja.
Ragnheiður leit nú hér við í dag - það er voða notalegt að fá hana heim við og við annars er hún mest hjá Jobba sínum.
Þar sem ég sit hér og slæ á lyklaborðið þá horfi ég á æðarnar á handabakinu á mér - ég vissi nú eiginlega ekki að ég hefði svoleiðis. En þær koma svona ægilega vel í ljós orðið.
Eins er það með rifbeinin. Ég var svo sem ekki sérlega vel áttuð á því að ég hefði svoleiðis heldur - var svona bara meira að ganga útfrá því en vita það.
Það var svo eftir sturtu um daginn að ég fékk hálfgert tilfelli því það var eitthvað hart á mér og ókennilegt í laginu sem heldur ónotalegt var að reka hendina uppundir. Var þetta þá ekki neðsta rifbeinið mitt sem er bara komið þarna í ljós. Ja hérna - ég veit það þá er með svoleiðis. Einu áhyggjuefninu færra ;-). Ég á líka orðið svoldið flotta holhönd tíhíhí....
Maður er bara að koma í ljós - í fyrsta sinn í mörg mörg ár - ja eða svona frá því að ég fór í kaf...
En sem sagt - bara ánægð með mig, lífið og tilveruna þannig lagað. Ég er eiginlega búin að sjá það að á meðan ég get labbað um í Þrastarskógi í veðurblíðu sem stormi, með Bjart skoppandi um kjarrið og jafnvel í eðal félagsskap Þórunnar þá er ekki hægt að kvarta undan neinu - heldur bara ástæða til þess að þakka fyrir lífið sjálft, Sogið og kjarrið. Þetta er bara næstum eins og heima enda ég tengd Soginu og vatni þess langt aftur.
En nú er ég farin að sofa - verð að fara að labba í fyrramálið - ekkert múður með það - fór ekki í morgun því ég taldi mig hafa svo mikið að gera - sem reyndist alveg rétt -mátti ekki miklu muna að ég næði ekki að gera það sem ég vildi.
Over and out...
Inga
P.s: Já og ég hafði jafnvel lést enn meira í dag - en ég á nú von á að fá sveiflutölurnar á ný - þannig gengur þetta. Upp og niður - en vonandi alltaf heldur meira niður.

7.9.06

Stigvélin þann 4. sept og vigtin




Það er svolítið síðan ég sagði eitthvað um kg. mín sem eru farin. Þau eru nokkur og jafnast út að vera um 700 gr á viku frá því ég byrjaði að léttast í lok apríl. Er það ekki bara eitthvað sem ég get verið sátt við - sumarið er jú ekki endilega besti tíminn til að stunda reglulega hreyfingu og gæta mataræðisins eins og minu lífi er háttað amk. Já ég ætla bara að vera stolt af þessu. Á ekki nema um 6 kg í að 1. áfanga sé lokið. Þá er mér sagt að ég eigi að gera eitthvað skemmtilegt fyrir mig. Með sama áframhaldi eru það 2 mánuðir þangað til - þ.e. í byrjun nóvember. Nú er bara að standa sig.