
Hörkunagli eins og þessi skór.
Ég get bara sagt ykkur það, að það að ég skuli fara út á morgnana með hundinn er ekkert annað en stórkostlegur dugnaður. Já - og hana nú.
Ég nenni því aldrei, hef aldrei tíma til þess og Bjartur svo óþægur að hann gerir hvern mann vitlausan -rífur í öxlina á mér, hendir hausnum á mér til og ég veit ekki hvað og hvað - fyrir utan geðvonskuna sem hann veldur mér!! Fótafúin.
Samt fer ég á hverjum degi (já já nema í gær) og mér finnst það alveg makalaust. Og verður enn merkilegra í vetur þegar það verður dimmt og kalt.
Nú meira af ræktinni for the record - fór í Styrk í dag og var mjög dugleg. Ég er búin að sjá að ég get ekki unnið í götunum mínum á þriðjudögum í skólanum - enda bara ómögulegt að vera ekki frammi og hjálpa til - þar er fullt af börnum sem vilja læra og næg verkefni. Hef samt bara tíma fyrir 30 mín brennslu en það verður að hafa það - ég líka get ekki mikið meira eins og ég er í fótunum. Lærvöðvarnir voru eiginelga alveg búnir frá því í gær eftir hjólatúrana miklu í Styrk :D svo ekki sé minnst á þennan verk undir hælnum sem er nú þannig að það er eins og hnífur fari í gegn ef eitthvað snertir þar - ái bara.
Svo var foreldrafundur - kynning hjá okkur - ekker er nóg með að nemendur okkar séu þeir bestu heldur eru foreldrarnir það líka. Það er gott og gaman að vinna með góðu fólki.
Takk í dag
Inga hörkunagli sem léttist um 400 gr frá því í gær og þar til í dag. Svoldið mikill gangur í þessu - er á meðan er. Rétt að njóta þess á meðan - nóg verður stoppið síðar ef ég þekki taktinn í þessu rétt :-)
1 comment :
ooooh, þú ert SVO dugleg. Ég dáist að þér!
Bið að heilsa,
Unna
Post a Comment