6.3.12

Ef þetta er nú ekki ég þá veit ég ekki hvað :)


æðingartala: Nafnatala:


Líftala:


Fæðingartala: 7
Fæðingartalan er þversumma tölugildanna úr fæðingardeginum, mánuði og ári. Hægt er að reikna hana út með tveimur aðferðum, lárétt og lóðrétt og þess vegna er hægt að fá tvær mismunandi undirtölur, þó þversumman verði auðvitað alltaf sú sama. Fæðingartalan lýsir köllun þinni og tilgangi með lífinu. Hún gefur tóninn um hvaða braut þú fetar þig eftir í lífinu.


7. Er heilög tala. Sjöan stendur fyrir andlega leit og einlægni í því sem hún setur sér fyrir hendur hverju sinni. Hún kann að vera ein og á auðvelt með að rækta hina innri rödd, svo fremi sem hún finnur það sem hún er að leita að og fylgir þeirri leit eftir. Þetta er krefjandi tala sem hættir ekki fyrr en hún finnur, knúin áfram af ríkri réttlætis- og siðferðiskennd. Þetta er tala einveru og hins eilífa grúskara, sem er alltaf að læra eitthvað nýtt og prófa sig áfram. Hún er tilbúin að færa miklar fórnir til að fylgja köllun sinni. Þetta er eins og fimman tala hugsjónar og visku, sem leitar sífellt betri lausna og er sjaldan eða aldrei alveg fullnægð með hlutskipti sitt í dag.

Sjöan þarf að gæta hófs í leit sinni. Ekki fórna öllu fyrir hugsjónirnar. Hún þarf líka að gæta þess að einangra sig ekki og þar með staðna í leit sinni, eða falla í gryfju þunglyndis og óheilbrigðrar einveru. Einnig þarf hún að varast að taka á sig of miklar byrðir og kikkna undan hinni torsóttu braut sem hún hefur valið sér að feta á leið til andans uppljómunar.



Nafnatala: 44/8
Nafnatalan  er þversumma allra tölugildanna í nafninu okkar, hvort heldur persónu- og fjölskyldutölu eða drauma- og framkvæmdatölu. Hún lýsir bæði skapi og framkomu, tilfinningum og hegðun frá degi til dags.


44/8  Fjörutíu og fjórir gífurlega áþreifanleg og sterk efnisleg og vinnusöm tala. Þetta er tala uppbyggingar, sem lýtur að stórri heild, jafnvel heils samfélags. 44 er meistaraleg tala þrautseigjunnar, sem kann að loka sig inni yfir erfiðum málum af óvenju miklum dugnaði og finna lausn fyrir heildina í krafti hagsýni og þolinmæði. Talan gefst aldrei upp.

Þessi vinnusama meistaratala þarf að gæta þess að tapa sér ekki í vinnu, þó hún vinni meðvitað í krafti hugsjónar fyrir heildina. Gæta þess að staðna ekki og einangra sig í ranghugmyndum eða fordómum. 44 skilar jafnan fjárhagslega sterkri stöðu eða varanlegum ávinningi í þágu heildarinnar og stuðlar að töluverðum áhrifum til langframa, rétt eins og þversumma tölunnar, áttan, (talan 8) ber með sér.



Líftala: 33/6
Líftalan er sjálf heildarútkomutalan, markmiðið með lífi þínu, eða ásköpuð örlög. Hún er niðurstaða lífs þíns og samnefnari allra fyrri talnanna og þversummutala nafnatölunnar og fæðingartölunnar. Það er einstaklings-bundið hvenær fólk upplifir þessa tölu á lífsleiðinni, þ.e. hvenær það nær markmiðinu með því.


33/6  Þrjátíu og þrír lýtur að meðvitaðri köllun á sviði lista, samskipta og hvers kyns tjáningar og sköpunar. Þetta er hreyfanleg tala, tala ferðalaga og sveigjanleika. Og tala breytinga og þróunar. Þessi meistaratala lýtur að hreyfanlegri uppbyggingu á vettvangi uppgötvana, t.d. í vísindum, nýsköpunar og lista. Samskipti þessarar tölu lúta að stærri heild; hvort heldur félagi, fyrirtæki, miðstöð, hópi, skipulögðum samtökum eða öllu samfélaginu, eins og þversumma tölunnar, sexan, (talan 6), ber með sér og hvernig megi hjálpa þessari heild til þroska og viðgangs.

Yfirleitt kunna meistararnir sitt fag, en mikilvægt er að talan  33/6 dreifi sér ekki of mikið og tapi ekki einbeitingu ef árangur á að nást í því starfi sem henni er ætlað að vinna. Stöðnun er henni dauði og að sama skapi yfirborðsmennska í skvaldri og sýndarmennsku henni að falli þó hreyfingin sýnist mikil á ytra borði.

28.2.12

..þegar bitið er í skjaldarrendur

...þá er konunni e.t.v. ekki alls varnar. Nú hef ég sett af stað ferli til þess að athuga með magaaðgerð. Ég hef ekki ákveðið að láta verða af henni - en hún er komin inn í myndina. Ég get ekki hugsað mér að vera hreyfihömluð það sem eftir er - ekki meira en nú þegar er vegna kílóa.

Ég hef nú tekið til minna ráða, elda minn mat sjálf, finn mér til mit snarl sjálf og læt mér í léttu rúmi liggja hvað aðrrir gera hér á heimilinu - come on ég gerði þetta í 3 ár með góðum árangri hér í den - þetta er ekki óyfirstíganlegt, yfirnáttúrulegt ferli né nokkuð annað. Það þarf hins vegar að hemja sig, beita sig aga og sýna sjálfstjórn. Það þarf ekki að láta allt eftir sér sem mann langar í! Það er nú heila málið. Eiginlega eina málið. Og ég verð bara að dansa sóló.

Nú hef ég gefið eina viku í senn og í hverri viku skal ég léttast - á meðan ég léttist er ég á réttri leið til lífs án aðgerðaren annars stefni ég hraðbyri í aðgerðarátt - sem þó er ákveðin rangfærsla því til þess að fá að fara í aðgerðina verða ég að léttast - en ég er með strangari tímaramma á léttinginn núna en e.t.v. aðgerðin krefst.

Ég veit það munar gríðarlegu fyrir hnén mín ÞEGAR  ég léttist, það dugir e.t.v. því ég er með fina vöðva í leggjunum og hreyfivön.

Þetta hafa verið mér erfiðar pælingar - ég kann því illa að tapa - og sérstaklega í baráttunni við sjálfa mig - ég vil vera sjálfs míns herra!

Það er því bara eitt markmið - að það er núna sem ég léttist.


25.2.12

Magaaðgerð

Nú er ég alvarlega farin að íhuga magaaðgerð....

Get ekki gengið þar sem brjóskeyðing er orðin umtalsverð í vinstra hné og hægra orðið aumt. Ekki útlit fyrir nokkur hreyfisport nema sund og sundleikfmi svona þegar ég er vel rólfær og treysti mér frá heimili og ofan í.

Nú er úrslita tilraun til að léttast.

Síðustu tveir dagar hafa ekki gengið í þá átt.

Það er eins og ég bara hemjji mig ekki - undirliggjandi djúp sjálfseyðingarhvöt? Ég veit það ekki....

15.2.12

Bitið í skjaldarrendur

Aðgerðir síðustu 2 - 3 vikna eru ekki að skila árangri. Það þarf því að bregðast við og gera betur. Bæta við ýmsum björgum eins og að herða sig í því að skrifa matardagbók. Ég er samt alveg svakalega svekkt því ég er búin að vera að standa mig þvílíkt vel... En árangurinn mun skila sér... Einn daginn og marga þá næstu :).

Spennandi dagur í dag!

14.2.12

Verkefni við hæfi


Með þolinmæðinn hefst það!

Nú er konan öll að koma til og hnéð heldur ágætlega. Ég stunda rope yoga, vatnsleikfimi og blak í hæfilegum skömmtum, les Aðalnámskrá mér til ánægju og yndisauka þess á milli.

Og mikið er veðrið yndislegt.

Það er núna :)

5.2.12

Sumarbústaðalíf

Eftir ýmis skipbrot í annars vel skipulagðri árás á ofát og leti ákvað mín að koma sér í skjól og lifa lífi einsetukonunnar. Ég hef  hreiðrað um mig í sumarbústað - dregið að mér heilsusamlegar vistir, skóladót og prentara - og ætla nú að hefja skriftir. Smá setbakk í skipulaginu í dag - þarf að hugsa þetta eitthvað aðeins öðruvísi en ég hef gert - en klárt er að ég verð að fara að skrifa eitthvað af viti - ég get ekki vonast eftir þessu koma til mín með dúfu...

Ætli sé ekki best að lesa svoldið meira fyrst...

Ástæðan fyrir veru minni hér er fyrst og fremst mataræðið - þegar ég er ein þá gengur mér betur að borða það sem er mér hollt og eftir þær fréttir að brjóskið væri verulega eytt í mínu vinstra hné - veit að það er ekki björgulegt í því hægra heldur - þá bara veit ég að nú er komið að því.

Ég man enn hvar ég stóð og hvar Baldur stóð þegar hann var að reyna að fá mig til þess að taka átakið alvarlega - blása lífi í baráttuna við kílóin. Hann nefndi ýmsa þætti sem ég gæti nýtt mér - líðan, heilsuna, - hjarta og æðakerfi, liðina og reyndi að fá mig til þess að líkja þessu við reykingar....

Ég stóð þver og í afneitun - og sagði bara að mér liði ágætlega og ég gæti ekki nýtt mér neitt af þessu því þetta væri ekki raunverulegt fyrir mér - heldur svo sem bara vitneskja sem jú kannski dræpi mig á endanum en það bara var ekki nóg... Kannski ef mér væri illt í hnénu eða einhvers staðar myndi það hjálpa....

Og þar er ég nú stödd - ógöngufær að mestu - ófær um að fara í blak og hvað þá golfið í sumar ef ekki léttir verulega á. Og þá þarf bara að létta verulega á - litli ofvirki heilinn minn ræður ekki við hvunndaginn nema hann sé mjög einfaldur og því gefst þetta mér vel - amk er dagurinn í dag búinn að vera ágætur. Mikið vatn og soðið grænmeti í hádeginu. Perur og meira vatn ;).

Ég þarf nú samt alltaf að vera á einhverju Selfossrandi - þannig að það verður spennandi að sjá hvað ákvörðunin um að borða bara hollt (og í hæfilegu magni) er sterk...

Það er núna....

31.1.12

Beðið eftir Ragnheiði

Jæja þá er hvunndagurinn runninn upp - joga, vatnsleikmi og blak - já meira að segja blak. Ég hef ekki spilað blak af neinu viti síðan fyrir jól - áreiðanlega 2 mánuðir síðan ég var fulla æfingu... Ég hef sem sagt verið algjörlega frá í hnénu - og ég er að reyna að beina því í þann farveg að ég hugsi nú af alvöru um að léttast. Það gengur hins vegar á ýmsu. Ég verð að skrifa matardagbók - það er ekki nóg fyrir mig að passa mig og halda að ég sé að gera allt rétt en svo er oft einhver sprengja... Það kemur - það þýðir ekki að gefast upp....

En ég er mjög glöð yfir því að fóturinn er að lagast - ég fer í myndatökuna á morgun og svo sjáum við til hvað verður gert með hnéð. En svarið er alltaf það sama - léttast léttast og léttast - og halda svo áfram að hreyfa mig og styrkja. Ekki flókið eða hvað?

11.1.12

Matardagbókarskrif

...ganga skrikkjótt :) - En þau eru nú samt gerð. Og skulu vera gerð. Algjört lykilatriði að telja þetta saman og hafa í lagi! Dj... sem maður er fljótur að sleppa tökunum annars....

Ég er alveg handónýtí hnénu og búin að vera síðan fyrir jól - það er alltaf eitthvað. Nú hefur rope yogað hjálpað mér með mjaðmirnar þannig að ég veit varla af þeim - og þá kemur náttúrulega hnéð inn. Vonandi nýtast þeir verkir og helti mér til þess að leggja harðar að mér í því að léttast. Það þarf að styrkjast en ekki veikjast í andanum :)

Nú er norðurferð í pípunum - mikið hlakka ég til! Við Dísa verðum í viku við nám og kannski svona eilítið kigg á Herdísi Maríu - eða hvað ;).

Þar hlýtur mataræði að vera í algjöru himnalagi - býst ekki við öðru.

Bara spennandi.

Kveðja Inga fótalausa sem fann hækjuna hans Palla og styður sig við hana.

8.1.12

VIGTUN!!!

...
Þetta var það sem Baldur sagði við mig - einhvern tímann þegar mér ofbauð líkamsræktarálagið! Ég trúði honum svo sem - enda var hann ekki að skafa utan af því þá né nú!

Það er ekki nein hálftíma hreyfing við og við sem fellur honum í geð...

En það var nú ekki aðalmálið. Ég hef kviðið svo svakalega fyrir því að fara á vigtina eftir desember og jólin... Var helst á því að fara ekki neitt - en er nú orðin nokkuð þjálfuð í að eiga við  mína. Niðurstaðan er að 1,5 kg hafa bæst við - og það er innan marka þess sem mér var kennt að mætti búast við af slíku át tímabili. Ég er því sátt - og held áfram að paufast við að halda í við mig. Það er allmikið mál að minnka matarskammtana hjá konunni - en verður gert. Þetta er nefnilega bæði spurning um skammtastærðir og hvað er borðað þó síðari liður stæðunnar sé sem betur fer oftar í lagi en hitt...