Showing posts with label mataræði. Show all posts
Showing posts with label mataræði. Show all posts

5.1.12

Matardagbókarskrif eru merkileg iðja!

Forsendur
Ég
Aðalsteinn að skera út laufabrauð að norðlenskum sið
32 stig (1600 kal) á dag miðað við 40 - 60 mín hreyfingu á dag 5 daga vikunnar = - 0,5 kg pr.  viku.

Nú jæja - lykillinn að því að léttast er að vita hvað maður etur. Til þess að vita það er mikilvægt að vigta matinn og skrá hjá sér. Nú jæja. Vigtun er nokkuð komin inn í augun mín - en sumt vigta ég nú. Reykjalundur lét mér í té kaloríuhefti mikið sem byggir á sama gagnagrunni og matarvefurinn.is. Bókin er týnd svo ég nota matarvefinn og færi svo inn í excel í lok hvers dags - eða eftir 2 -3 daga það sem ég hef etið og reikna vísindalega út.

Talningin - vigtunin er samt ekki aðalmálið heldur þessi meðvitund. Vinna með það sem maður borðar - alveg eins og maður vinnur með hreyfinguna sína: þyngir, gerir hraðar, er lengur að, o.s.f.v. En sem sagt.

Nokkur atriði eru mjög merkileg
 1 konfektmoli er 1 stig - njótið hans því vel - en vel að merkja - hann er þó ekki meira! Epli er líka 1 stig. Þitt er valið.

En vissuð þið að laufabrauð - þetta fis - er um 4 stig? Svoldið mikið verð ég að segja!

Agnarögn af kartöflusalati (e.t.v. ein msk) er 3 stig? Jamm - kannski er nú bara ekkert erfitt að sleppa því! Tvær vænar kartöflur eru 2 stig!

Og magurt hangikjöt eða magurt svínakjöt er bara snilld sem álegg á t.d. sólkjarnabrauð - má meira að segja vera þykk og væn sneið - alveg um 100 gr. til þess að jafnast á við 1 heimilsbrauðsneið með smjöri og osti - og þó létt og laggott sé!  Jamm það skiptir máli hvað maður velur krakkar mínir!

Og svakalega er nú gott að rifja þetta allt saman upp!

Ég fór í sundleikfimina í morgun þó ég væri algjörlega viss um að ég myndi ekki vakna og ef ég myndi vakna þá yrði ég svo þreytt og syfjuð og allt  - að þetta yrði tómur skandall - öðru nær. Þetta var yndislegt  - en erfiaðar en mig minnit - hnéð ekki til neinna sérstakra stórræða þarna - þá er bara að vera svoldið í djúpu - það er ágætt líka. En mikið er þetta yndislegt.

Blak á eftir - og eitthvað þarf ég að gera á morgun... laugardag og sunnudag - svoldið mikið plan í gangi. Samkvæmt áætlun er það sund tvo þessara daga - hlé einn daginn.

Sem sagt allt á áætlun - eða flest!

5.5.08

Á góðu róli

...að mestu.

næstum 4 kílóum léttari en ég var þyngst eftir usa ferðina. Hef ekki verið léttari síðan Aðalsteinn minn fæddist. -Þannig að nú er ég komin í töluna sem ég var léttust fyrir páska og heldur minna meiraað segja- nýr tugur og svona. Gaman að því.

Mest gaman er þó að VERA BARA YFIR HÖFUÐ FARIN AÐ LÉTTAST!

Langt síðan það hefur gerst.

Nú er sem sagt komið að því að léttast Ingveldur.

Morgungöngur eru æði - prófið sjálf ;-)

Ég er ekki frá því að Reductilið hjálpi líka - en það er með því að hreinlega hugsa daginn út og daginn inn: matur er ekki dægrastyttingur - ísaumur er, föndur er, quilt er, líkamsrækt er -en ekki matur. Því borðar þú ekki þegar þú átt dauða stund - heldur fyllir hana lífi og verkefnum því tíminn er lífið sjálft. Jamm en nóg um það: Reductilið tekur hungurtilfinninguna en ekki löngunina til að borða sér til afþreyingar. Hugurinn er því þjálfaður núna - Reductsins vegna getur ekki verið að þú finnir til svengdar svo - farðu og gerðu eitthvað annað við tímann en éta.

Annars er ég á bömmer yfir þessu prestsmáli hér á Selfossi. Hvernig svo sem allt snýst - sekt eða sakleysi. Þetta er bara hreinlega hið versta mál.

3.5.08

Fínasta slag

...eins og þeir segja í Færeyjum. Eða amk segir Palli að þeir segi það í Færeyjum. Kannski er þetta bara eitthvað sem hann segir á Íslandi ;-).

Fór í bæinn í dag og hitti systkini mín. Skoðuðum myndir frá USA. Endalaus upplifun náttúrulega. Endalaus. Óendanleg.

Jamm - ég myndi alveg vilja hafa eitthvað gáfulegt að segja en ég man ekkert af þessu snjalla öllu sem ég hugsa daginn út og inn. Híhí...

Það er laugardagur í dag og sunnudagur á morgun en mér finnst alveg eins og það sé sunnudagur í dag. Allt í plús sem sagt og I kid you not - drullan innan í þessu húsi er núna að mestu bundin við 3 herbergi. Algjört met ;-).

Af Ingveldi og Reductil er það að frétta að allt gengur samkvæmt áætlun. Tek það um miðjan daginn - finnst það taka of mikið af mér ef ég borða það að morgni - matarlystina það er að segja. List lyst sigh skiptir ekki máli - bæði er lyist. Verð að vera dugleg að borða fyrripartdagsins

Nú hugsa ég: Jamm gæti borðað - þarf þess ekki Reductilið segir mér að ég þurfi þess ekki. Ó langar mig samt í eitthvað? ÆÆ þá er bara að fá sér vatn... epli... sauma smá - jamm gera bara ekkert í þessu varðandi matinn híhí.

Ef ég þarf að læra að svelta mig tímabundið þá bara geri ég það. Þarf sko að taka matinn út úr lífsjöfnunni minni á nýjan leik - hér eins og um sumarið, matur er bara það en ekki dægrastytting. Neibb. Reyna að nýta Reductilið og heilaþvo mig. Ekki svöng, engin þörf fyrir mat, bara vatn. Tops híhí

Og svo koma bara prófin og hvur veit hvað. Ægilega skemmtilegt. Ætli ég komist í framhaldsnámið? Ætli við fáum þróunarstyrkinn?

Ja þá er nú um að gera að vera gáfulegur. Jamm það væri yndislegt!

3.10.07

Ég get nú ýmislegt


Ég hef nú misst 3 kíló tralalalala. Í fyrsta sinn í nokkrar vikur er ég að léttast annars hafði ég staðið af vísindalegri nákvæmi í nákvæmlega sömu tölunni sí og æ. Allt utanumhaldi danska mataræðisins (ekki gott að tala um kúr - dugar víst ekki að vera á kúr ef ég er ég) að þakka. Við Palli höfum bara staðið okkur rosa vel og áætlun hefur haldist.


Nú er bara að láta ekki deigan síga og hugsa um eldamennskuna. Hreyfingin er amk alveg svellköld inni. Ég meira að segja skunda í sundleikfimi á hverjum morgni alveg sama hversu lítið ég nenni því ekki ;-). En svo nenni ég því eiginlega alltaf svo mér er engin vorkunn.


Ég fór í Styrk í gær og bætti mér þar með upp mánudagstímann. Já og fékk þá þessa fínu tölu á vigtina loksins. Ég hef reynt að vera ekki buguð og beygð yfir þessu havaríi að léttast ekki heldur líta á það eins og hvað annað - svonalagað gerist, þetta er ekki áhlaup - ekki spretthlaup heldur langhlaup og vissulega er það gott að vera offitusjúklingur og matarfíkill og óreiðupési og hafa ekkert þyngst í 18 mánuði. Nú stefni ég á annað kíló að viku liðinni.


Mummu bróðir sagði að ég yrði bara að gera eins og Magnús - ákveða að labba á Mont Blanc og svo Kilimanjaro og gera það svo bara! Engin undankomuleið.


Hvað gæti ég sagt? 2 kíló á mánuði til áramóta eru sex kíló. Fyrstu fjórir mánðurinir eru önnur 8 kíló - þetta gera 14 kíló sem þýðir að ég hef lést um 18 -19 kíló á öðru ári mínu í lífsstílsbreytingunni... Það yrðu 42 kíló alls! Það er nú ekki svo slæmt - ég léttist að jafnaði um 2 kg á mánuði á síðasta ári og ég hlýt að geta það á ný...


Þá er það ákveðið. 2 kíló hið minnsta á mánuði - minna í desember þó og erfitt verður það í janúar en þá er líka bara að vera búin að taka aðeins meira af sér í annan tíma!


1. nóvember ætla ég að vera orðin 139 kíló og fagna nýjum tug!


Og takið þið eftir því hvað ég er farin að tala frjálslega um kílóin mín. Já ég verð áreiðanlega farin að standa á götuhornum og boða frelsun ykkar allra innan tíðar!


Er nýkliptt og litið - ógeðslega mikil pæja. Hefði annars þurft að vera innan dyra for ever - hárið á mér var hræðilegt! Og ég þar með.


Svo væri gott ef ég lærði að fara með peninga einhvern tímann í millitíðinni.

31.8.07

Don't believe everything you think!


Það eru ákveðnar hugsanavillur í gangi hjá mér - já og svona ákveðin vafaatriði....

Einbeitingarleysi - afhverju?
Langar mig ekki í heilsbótina og kílóa-aflausnina? Jú ég verð að segja það. Vil að sjálfsögðu vera hraust - og good looking. Það væri áreiðanlega dásamlegt. Rétt að setja markið á það þá...

En leiðin að því að ná markmiðinu er einhvern veginn ekki mér að skapi. Stundum bara nenni ég þessu ekki. Þetta er ógnarinnar vesen og það er ekki einu sinni eins og kílóin hrynji af manni og heilsan sé alveg upp á glans. Heilsubótin lætur einhvern veginn bíða eftir sér..... Þó ég sé áreiðanlega ekki sama manneskjan og ég var. Áreiðanlega miklu betri - (ákveðins efa gætir þó í letrinu).

Trúi ég ekki að ég geti þetta?

Neibb - svo einfalt er það. Held að þetta sé glórulaust.

Þar er komin sú ruglaða hugmynd að Baldur eigi bara að gera þetta með mér og helst fyrir mig. Það er bara að ljúga að sjálfum sér að ætla öðrum að draga vagninn með mér. Enginn gerir þetta nema ég.

Einvera

Ég yrði ósköp glöð að hafa einhvern með mér í salnum. Gantast með og hlægja. Hvetja og berja mig áfram. Ipodinn getur verið einmanalegur félagi. Kannski hressir blakið upp á þá hlið...

Það er bara blekking að styðja sig við aðra. Það er bara blekking að horfast ekki í augu við það að ég léttist afskaplega hægt þessar vikurnar - og segja að þetta sé svo sem allt í fínum farvegi...

Ah kannski ekki....

Afsakanirnar hafa nú verið fínar síðar í vor: Skipsbrot í vinnunni, skipt um vinnustað, sýkingar í lungum og astmi (7 vikur af 13). Fótafúi dauðans. Sumarleyfi og ferðalög. Húsamálun...

En betur má ef duga skal - nú er að hrista af sér þessa berkjubólgu. Svona fyrst lappirnar eru ekki verri en þær eru...

Ég hef það nú bara ágætt og lifi fínu lífi. Ég set það á markmiðslistann minn að taka upp merkilega iðju þegar ég kem heim á kvöldin - ekki hlamma mér beint í sjónvarpsstólinn. Fara bara að snúa sér að handavinnu ha hu hummm?

Góða nótt

Ykkar Inga sem þrátt fyrir allt léttist örlítið þegar á heildina er litið og er virkilega að breyta um lífsstíl.

1.5.07

Til hamingju með 1. maí Páll og fleiri



Palli verkamaðurinn minn er nú að vinna í dag í Færeyjum blessaður karlinn. Ekki fríinu fyrir að fara hjá honum. Ég hlakka mjög til að fá hann heim á föstudaginn. Vonandi snjóar ekki mikið þegar ég næ í hann ;-).

Við Bjartur vöknuðum eldsnemma - meira hann en ég samt. Hann langar svolítið út að labba en ég er svo steikt í fótunum að ég held ég komist ekki. Það voru nefnilega 2400 hitaeiningar sem fuku í gær í: Morgungöngu, morgunhjólreiðum, hjólatúr með krökkunum hálfan Votmúlahringinn, smá meira hjólaríi og einni Styrkferð. Ágætis afrek fyrir einn dag en ég er líka þreytt í morgunsárið. Ristabeinin eru að hrekkja mig eitthvað en það jafnar sig nú.

Ég þarf að taka til í dag smávegis. Langar svolítið að þrífa gólfin. Svo þarf ég að athuga hvort sá einstaki maður sé að vinna á N1 sem gat skipt um perur í bílnum mínum hér um árið. Það virðist hafa verið algjör snillingur því aðrir menn klóra sér bara í hausnum og segja mér að fara með bílinn á verkstæði. Það er svolítið hvimleitt að perurnar fara með nokkurra daga millibili og hviss búmm þá er bíllinn bara ljóslaus á dagljósum. Kannski er eitthvað bilað þó mér finnist eðlilegra að líftími pera sé bara nákvæmlega jafn langur. Mér finnst samt skrítið að þurfa að skipta þetta oft um perur, held á tæplega árs fresti... En það er kannski bara líka eðlilegt.

En hvað um það - ætli það séu einhverjar búiðir opnar í dag? Það er allt hálf matarlaust og ef ég man rétt þá ætlaði ég að vera svo dugleg í mataræðinu þessa vikuna. Það er varla að það hafi farið grænmeti inn fyrir mínar varir síðan á ... já síðan einhvern tímann!


Vigtun á föstudaginn. Ég hef ekkert svindlað og farið á vigtina - á ekki von á góðri tölu. Ég hef verið mjög dugleg í hreyfingunni en hálf einbeitingarlaus í mataræðinu þó slysin hafi kannski ekki verið stórkostlega að stærð þá eru þau bún að vera nokkuð reglubundin.

En það er alltaf hægt að bæta sig. Ég hef enn töluvert svigrúm í því hvað mataræðið varðar :-).

p.s. Fann flottar myndir hér - gamlar og fallegar.

29.4.07

Skaðvaldurinn fundinn


...illa lyktandi bollu-limesneið sem hafði laumað sér hér í eitt hornið undir innréttingunni og spjó svo út úr sér allskonar ógeðseindum sem menguðu fyrir mér loftið. Fuss og svei! Drap kvikindið og kom því út í tunnu en þessi lime sneið var fölsk og viðsjárverð og hafði látið sér ryksugun, sópun og skúringu fram hjá sér fara. Eins og hún var falleg og ljúf á föstudaginn tuttugasta - þá var hún eins og þessi hér að ofan. Mynd af ófétinu í dag verður ekki látin fylgja!


Búin að fara í hjólatúr, Styrk og meira hjól í dag. Hreyfingaáætlun þessarar viku stóðst með ágætum. Það kemur svo í ljós á föstudag með afganginn. Það verður bara að taka hraustlega á í grænmetisáti og heilbrigðu líferni næstu viku. Maður er alltaf að reyna, alltaf að reyna. Og stundum tekst manni svo ljómandi vel upp!

15.4.07

Formúla 1 og líkamsrækt

Það er nú meira klúðrið með Styrk og Formúlu 1 á sunnudögum! En F1 verður að herða sig ef hún ætlar ekki að bíða lægri hlut fyrir líkamsræktinni því satt að segja finnst mér það sem ég lagði á mig í morgun ekki alveg vera að gera sig fyrir þessa druslu Bahrain braut. Málið er nefnilega það að það er búið að búa til tvær ,,stórglæsilegar" brautir á síðustu árum - Kína og Bahrain en að það sé hægt að taka þar fram úr - svo ekki sé minnst á Malasíu sem kom litlu áður - ég bara skil ekki afhverju það má ekki búa til braut sem býður upp á framúrakstur - það er ekki glæta að fara út úr aksturslínunni á þessum brautum og beygjurnar svo ólíkar að þetta er allt í einhverju málamiðlunar fári - þá vil ég nú bara fá brautir eins og Spa takk fyrir.

En sem sagt til þess að ég næði ræsingunni kl 11:30 varð ég að fara í styrk kl 10 í stað 12. Nú til þess að ná að gera allan æfingahringinn þá þurfti ég líka að fara út að hjóla og taka upphitunina þannig svo þetta yrði nú allt í góðum gír.

Veðrið var viðbjóður, frekar kalt, haglél á köflum og rok eftir því! Þannig að þegar ég kom í Styrk var ég hundblaut og hrakin og varð að koma yl í skrokkinn á mér með því að bæta aðeins við upphitunina. En það var nú voða gaman í æfingunum sem voru fyrir efri hlutann í þetta sinnið - sem þýðir að þær eru léttari. Ég tók svo 24 mín á Stigvélinni á programmi oh yeah - voða gaman, híhí.

Jamm svo þurfti ég að drífa mig heim - fara í rennblautann hjólagallann - hroll hroll... sitja svo í svitastorknum ógeðsfötunum og horfa á kimi hanga fyrir aftan McLaren bíl, Massa með forystu og hver hefur nú á huga á að hann vinni? Ekki ég svo mikið er víst og mér leiðist Alonso líka svei mér þá. Þannig að í raun er mér slétt sama hvort liðið vinnur - fer bara eftir því hvað ég er með í liðsstjóranum svei mér þá.

En hvernig sem allt fer er ég búin að baka bollurnar ;-) og ég ætla líka í sundpottana á eftir. Veitir ekki af að fara í sturtu það get ég svarið!

En sem sagt F1 verður að bæta sig - gera eins og Heidfeld þegar hann fór fram á Alonso!!!! Það var skoho flott. Er að hugsa um að halda með Sauber bara.

Annars var ég að lesa bloggið mitt og þar er æði oft talað um að ég verði að taka mig á í mataræðinu. Nú held ég að það sé komið að því að hætta að tala um það og gera eitthvað í því.

14.4.07

Back to the basics

Ég og Bjartur vöknuðum árla í morgun en í gærkveldi bjó ég til lista yfir allt það sem ég þarf að gera næstu 7 dagana - hefur vísast valdið því hve snemma ég vaknaði. Það er ýmislegt- húslegt og garðlegt. Hér í garðinum er mikið rusl saman komið - jukkiti júkk bara - bæði frá okkur og svo fýkur mikið hingað inn líka - mjög sóðalegt og ég verð að gera eitthvað í þessu í algjöru snarhasti. Ja kannski ekki algjöru snarhasti en svona nokkru snarhasti....

Nú en það sem ríður mest á er að komast í taktinn í lífinu sjálfu aftur eftir hálf einbeitingarlausa viku síðast. Það dugir ekki að horfa bara á það sem betur má fara og gera ekkert í því heldur barasta koma sér í gírinn á ný.

Gærdagurinn var afleitur matarlega séð - en ég var mjög dugleg í ræktinni en fór ekki sundleikfimina. Var bara einfaldlega of þreytt - en það er nokkuð sem einkenndi mig í liðinni viku. Svo erfitt að vera í páskafríi ;-).

En þar sem ég var minnt á það að ég ætti hjól í gær og að ég ætti að nota það brá ég undir mig betri fætinum og hjólaði í morgun til að koma brennslunni af stað. Það var nú ekki sérlega gott veður og rigningin æði köld á köflum en ég náði að hjóla góðan spotta á móti vindi sem er sérlega æskilegt því annars næ ég ekki púlsinum upp nema með mikilli langkeyrslu. Ég hjólaði í um 25 mínútur og er bara ánægð með það nú þegar ég hlusta á nauðið í vindinum og sé dropana falla skáhalt hér fyrir utan.

Í dag ætla ég að horfa á tímatökur í F1, baka bollur, taka til í ,,skrifstofugeymslunni" minni og slappa svo vel af inn á milli. Stefni á svolítið hlaup í lauginni um fjögur leytið - þarf enn að brenna um 400 hitaeiningum til að vera á áætlun dagsins. Vantar umtalsvert upp á að bæta hreyfingaleysi mánudags en þar sem ég fer í Styrk á morgun þá lítur jafnan ekki afleitlega út og ég hef snúið vörn í sókn.

Nú er bara að huga vel að mataræðinu og taka sig í gegn þar sem því er ábótavant. Auka grænmetisátið, minnka brauðát - helst setja það alveg út og borða ekki neitt nema grænmeti eftir kl 20 á kvöldin. Þá er ég í góðum málum.

Bless í bili

2.4.07

Morgunstund gefur gull í mund

Góðan daginn

Nú er fyrsti í fríi :-).

Ekki leiðinlegt. Ég er vöknuð og svellfín árla morguns - það er nú ekki leiðinlegt heldur. Það verður nú að segjast ;-).

Þegar Palli er heima er alltaf ákveðin hætta á því að allt fari í vitleysu. Það er allt í einu ekki nærri eins einfalt að halda einstrengingslega áætlun mína þegar maður þarf að taka tillit til (eða ætti amk að gera það) annars. Ég þarf meira að segja að vera svolítið notaleg okkar allra vegna. Það er nú ekki gaman að koma heim til fúllar kerlu - eða fá fúlan karl heim. Annars er það náttúrulega ekki sérlega erfitt því ég er svo notaleg manneskja eins og þið vitið, híhíhí.

En sem sagt - mataræði, hreyfing, svefn gengur allt nokkuð úr lagi og ég má hafa mig alla við að halda áætlun. Annars á Páll ekki marga úrkosti blessaður. Hann getur jú verið heima á meðan ég sprikla eða komið með. Um helgina hefur hann komið með. Eiginlega alveg undrandi á því að rassinn á sér skuli enn halda eftir hjólreiðar helgarinnar.

Þegar nýtt hjól kemur í hús er náttúrulega ekki annað að gera en nota það og það hefur verið gert. Hún Þórunn elskuleg lánaði mér hjólið sitt í haust og Páll hefur verið að nota það - það er eins hjól og mitt. Frábærir gripir báðir tveir, takk Þórunn mín. Kannski get ég einhvern tímann launað þér greiðann.

Þar sem einu mjúki göngustígarnir sem mér hugnast hér í nágreninu eru í hinum blauta Þrastarskógi fer ég ekki þangað né annað því hælsporarnir mínir bjóða ekki upp á göngur. Á laugardaginn fórum við því í hjólreiðatúr og í gær var stefnan tekin á upphitun á hjólum og svo Styrkur.

Það fór hins vegar svo að eftir að við hjóluðum vítt og breitt um Selfoss, Laugardæli og nærliggjandi þjóðvegi í um 40 mín vorum við svo hrakin og köld að við sáum okkur ekki annað fært en fara í heitan pott. Sem við og gerðum og ég synti svolítið og hljóp í lauginni. Brennslan var þó ekki sambærileg á við Styrk - þ.e. eftir því sem Polli sagði en ég þarf að stilla hann þannig að hann taki mið að lækkuðum púls í vatni.

Eftir ferminguna hans Ingþórs var komið þetta ofsalega góða veður og fullur vilji til þess að hjóla svolítið meira og þá bættist við allnokkuð af kaloríubrennslu þannig að dagurinn í gær var mjög góður. Það er svo gaman að hjóla! Ég ætla svo að hjóla í dag og fara svo í Styrk - gaman að breyta aðeins til og sleppa við ógeðstækið við og við :-). Mér sýnist vera hið ágætasta veður - en það má svo sem alveg vera leiðinlegt - þá brennir maður bara meira - ef vindurinn blæs manni í fang.

Framundan bíður svo sex hæða fermingarterta fyrir Kristínu, Borgarfjarðar ferð en áður en það allt saman gerist þarf að taka til í eins og einni geymslu - sem klárlega verður allnokkur brennsla ;-).

Inga mælir með að allir fái sér Swhinn hjól og komi með út að hjóla. Munið bara eftir hjálminum því of seint er að byrgja brunninn þegar barnið er dottið ofan í :-).

p.s. Þess bera að geta að markmið síðustu viku náðist ekki varðandi þyngdina nema þá til hálfs... Nú tekur bara við damage conrol og hörku brennsla alla daga. Það er eiginlega ekki hægt að léttast um páska...

24.3.07

Dagur fullur af fyrirheitum

Það er svo merkilegt að stundum er bara hreinlega eins og það eigi fyrir manni að liggja að gera a. ekki neitt eða b. eitthvað.

Í dag er svona eitthvað dagur. Mér finnst einhvern veginn eins og það sé ár og dagur síðan ég hafi haft heila helgi fyrir framan mig og ég geti gert það sem mér sýnist við hana. Sú er þó auðvitað ekki raunin. Ég geri svo sem aldrei neitt um helgar og hef unun af því.

Ætli léttirinn felist ekki í því að stormviðri heilabúsins míns sé um garð gengið - um tíma amk. Ég hef verið að hugsa svo margt.

vinnuna mína
Launin mín
Nám eða ekki nám
Verkir
Fyrirkomulag æfinga
Skómál
Mataræði
Börnin mín
Heimilið
Sjúkraþjálfun/nudd


Sem sagt allt sem við öll erum með á okkar könnu - mér er bara lagið að gera svolítið vesen úr þessu

Vinnan. Á ég að kenna áfram? Hvað á ég að kenna? Verð ég ánægð ef ég a. hætti að kenna b. hætti umsjón? Er ég ánægð að kenna?

Finnst mér ásættanlegt að fá í laun fyrir fulla vinnu um 160 þús kr. næstu árin? Liggur minn metnaður þar?

Til hvers að læra eitthvað meira sem tengist kennslu? Í skólum er engin goggunarröð, annað hvort ertu bara kennari eða kennari. Þú getur líka orðið deildarstjóri en langar mig eitthvað að vera deildarstjóri? Og ekki langar mig að vera skólastjóri þannig að...

Fyrir mastersnám fær maður 12 þús kr launahækkun. Skólagjöldin kosta 45 þús krónur hvern vetur. Þetta tæki mann með vinnu um 6 ár. Maður er bara allnokkurn tíma að vinna sér upp í skólagjöldin. Fyrir masterinn fengi ég svo sem ekki neitt, mig langar helst að vera kennsluráðgjafi starfandi innan skóla eða semja námsefni og það er hreint ekki á vísan að róa í þeim efnum. Mér sýnist ekki að kennsluráðgjöf sé á leið inn í skólanum og námsefnisgerð er í besta falli ókönnuð lönd.

Verkir eru slítandi. Sá sem finnur alltaf til verður alltaf lélegri og lélegri að þola þá - alveg öfugt við það sem mætti ætla. Hálsinn er skaplegur en býsna snúinn oft og úthaldið ekki sérlega mikið í herðum og hálsi. Þar býr spennan mín og af henni á ég víst nóg. Hælsporarnir eru orðnir tveir eða amk eru þeir orðnir einn og hálfur. Vöðvakerfin í fótunum eru að ibba sig - sundfimin ýtir við þeim og þreytan liðir við mig. Verkir stundum, teygjur og tog virðist duga upp að ákveðnu marki en svo tekur bara stirðleikinn við. Nenni ég þessu? Er þetta það sem ég vil? Já var og er svarið nokkuð einarðlega.

Er ég að æfa of mikið? Er ég að æfa rétt? Er ég að gera æfingar sem mér finnast skemmtilegar? Er ég á réttu róli í þessu öllu? Svarið var já - með áherslu á að fara að hjóla þegar veðrið batnar. Ég hlakka til þess.

Skórnir blandast svo inn í þetta alls staðar og allt um kring - ekkert verður úr neinu nema vera í góðum skóm og þeir kosta sitt. Hvernig skóm á ég að vera í, inniskór kosta líka ógó mikið ;-) og óþarflega langt í mánaðarmót en ég fann nú lausn á þessu sem betur fer. Vonandi líður mér betur í fótunum fljótlega.

Mataræði er klassískt. Ég verð að taka það fastari tökum til að ég verði ánægðari með mig. Ég verð að vera einbeittari - það er kannski helst spurning um það. Það gekk ágætlega þessa viku en betur má ef duga skal. Ég lít þó á það með stóískri ró að það er vel ásættanlegt að hafa lést um 2o kg eða svo á ári. Það er minn hraði og sá hraði sem ég ætla að halda mér við. Það væri amk allnokkuð í mínum huga ef það hefði bæst á mig á liðnu ári. Á þessum hraða lifi ég því lífi sem ég vil og hef ánægju af. Matur skiptir jú máli og gefur mér gleði. Fjölbreytnin mætti hins vegar aukast og einbeitnin varðandi sumt sömuleiðis. Enda hver er fullkominn en to tre?

Börnin mín og börnin mín. Hver hugsar ekki um börnin sín?

Heimilið er allt í voða og vitleysu og nú þarf ég að fara að gera eitthvað í því. Ég geri það kannski í dag og svo í páskafríinu ;-) - ásamt því að fara í allnokkrar fermingar.

Sjúkraþjálfun og nudd? Þarf ég á því að halda? Ég þarf amk á sjúkraþjálfaranum mínum að halda. Enginn í veröldinni hjálpar mér að halda kúrsi eins vel og hann og ég veit nú ekki alveg hve góð ég væri í því að halda honum óstudd. Ég er alveg orðin sannfærð um að þessu verkefni dugir ekki að vera einn. Samspilið er svo kannski eitthvað sem maður bara lætur þróast. Rétt eins og það hefur þróast. Stundum þarf svo kannski að koma til nudd og eitthvað til að laga það sem fer úr lagi. Kannski hjálpar það bara ekki neitt, hreyfingin dugar. En nú er ég sem sagt að minnka nuddið og þar með fækkar fundunum með sjúkra þó Baldur sé ótrúlega duglegur að tala við mig þegar ég er í salnum að bauka. Eftir ár er líklega kominn tími til að standa á eigin fótum og horfast í augu við það að vöðvabólgan þarfnast ekki nudds við heldur hreyfingar, slökunar og skynsemi. Ég verð líklega að skríða upp úr vasanum á honum og standa á eigin fótum ;-)

Annars var ég að reyna eina æfingu í gær sem Valgerður kenndi mér úr jóganu - halla höfðinu og láta það hvílast á milli herðablaðanna (sem ég veit núna hvar eru á mér ;-)), hún sagði að það væri svo ægilega gott og ég horfði á hana gera þetta - virtist ekki vera mikið eða merkilegt en afskaplega afslappandi og fínt. Prófaði þetta svo í gær og ég kom höfðinu varla hálfhring án þess að hálf drepa mig. Púff það er sem sagt ekki alveg farið vesenið í herðunum og klárlega ekki í hálsinum en það er ekkert víst að neitt nudd bjargi því. Einhver sagði mér að nudd væri hvort sem er alveg tilgangslaust ;-). Ég gæti hugsað mér að trúa því næstu dagana meðan ég er í afnuddeitrun ;-))

Og nú ætla ég annað hvort í sund eða taka til í einhverjum skápum hér á heimilinu. Nóg er af draslinu í þeim.

Þá er bókhaldi yfir líf Ingveldar lokið að sinni. Helgin bíður ekki lengur og ég þarf að nýta tímann vel ef ég ætla að brenna 600 hitaeiningum í dag, taka til, hugsa um þvottinn, hundinn, börnin og sjálfa mig :-). Á morgun eru það 1400 hitaeiningar, vinna og kannski meiri tiltekt og í kringum þetta allt er svo eldamennskan ljúfa.

Og ég held ég sakni hans Palla bara svolítið. Já mikið verð ég fegin þegar ég fer í páskafrí það segi ég satt.

20.3.07

Mín að átta sig

Jæja nú er ég búin að prófa að vera ekki í ræktinni í 4 daga - sleppa tveimur skiptum sem sagt. Svo er ég búin að bera þessi ,,sinnaskipti" mín undir ýmsa og fengið mjög einsleit viðbrögð ;-).

Ja að vísu er eins og sumir taki ekki alveg mark á mér en hinum finnst þetta arfavitlaus hugmynd og eru ekki til í að ræða hana á nokkurn hátt. Henni er svona ýtt til hliða með orðum eins og Inga sem fer ekki í heilsuræktina sé ekki nein kona sem þau þekki, eða já það er nú ekki í boði að hætta að hreyfa sig og svona nokkuð!

Mótrþróaþrjóskuröskunin rjátlaðist af mér eftir því sem leið á gærdaginn (en hún stóð nú samt í fjóra daga sem er nú met held ég - nema hvað Baldri finnst ég alltaf vera illa haldin af henni sem ég skil ekki því ég geri bókstaflega allt sem maðurinn segir mér að gera - utan einu sinni!).

En sem sagt Björk og Baldur náðu nú eiginlega í sameiningu að stilla kúrsinn hjá mér - auk mín náttúrulega en ég tel það reyndar mjög mikilvægt að skoða hug sinn vel og íhuga afhverju maður gerir hlutina og ekki síður - hvernig maður geri þá. Nú og ég var sem sagt að því. Og nú er komið nokkuð nýtt plan.

Ég er sko hundleið á því að vera alltaf illt í fótunum en ég ætla að hvíla mig þessa viku nokkuð vel - bara fara í sundleikfimina. Á móti ætla ég að passa mataræðið sérlega vel og borða vel af grænmeti og skyri - skyr er ógeðslega sniðugut megrunafæði ef maður kemur því niður á annað borð!

Ég ætla að kaupa mér nýja skó því dempararnir eru búnir í þeim gömlu og því held ég að mér sé svona illt í ristunum og ökklunum og finn svona fyrir hælsporanum mínum nýja hægra megin! Sá eldri í vinstri hælnum lætur lítið fyrir sér fara flesta daga orðið.

En sem sagt ég ætla bara að vera aum í fótunum áfram því það er eiginlega alveg jafn slæmt að hreyfa sig ekki því seturnar og það helv... er alveg eitur fyrir mig svo ég get allt eins verið heilsufrík eins og sófa og stóladýr.

Ég ætla að reyna nei ég ætla að borða mikið grænmeti og sleppa frönskum og djúpsteiktum mat sem ég hef stundum laumað inn fyrir mínar varir. Hugsa svolítið meira um annars gjörbreytt mataræði.

Svo ætla ég að reyna að vera ánægð með 22 kg mín sem eru farin frá því í endaðan apríl í fyrra. Annað er náttúrulega bara bilun. Ég hef lifað sældarlífi, borða bara flest og hef gaman af. Já í raun hefur líf mitt bara batnað síðasta árið á ýmsan hátt og ég er betur áttuð á sjálfri mér. Ég samt ekkert betri manneskja eða gjörbreytt en svolítið öðruvísi er mér þó sagt ;-). Ég hef svo sem ekki skoðun á því hvernig ég hef breyst. Ég veit þó að ég sit beinni í baki í stólnum við tölvuna. Þvílíkt sem ég er komin með fína bakvöðva til þess að ná því. Svo vagga ég minna í göngulagi - vonandi er hálsinn ekki eins framsettur og því minni ég minna á gæs... Ja ég vona það amk. Baldur vill meina að ég sé rólegri og yfirvegaðri - skil nú ekkert hvað hann hefur fyrir sér í því! Og svo veit ég að ég er ógó sterk - sá það í kassaburðinu hjá Ástu.

Sem sagt áfram með smjörið. Hjól, sund, ganga, Styrkur, og hvað þetta heitir allt. Já og vitið þið hvað - ég þarf að fá mér nýja sundboli - þeir gömlu eru bara eiginlega ekki hægt lengur. Skemmtilegt ekki satt ;-)

Og ég ætla að vinna fram á kvöld - og lífið er bara harla gott þrátt fyrir allskonar blankheit og bölmóð inn á milli. Peningamálin reddast fyrr eða síðar, tekur því ekki að vera á bömmer yfir þeim lengi eða ítrekað.

Engu nær um hverjum ég eigi að halda með í Formúlunni - er ekki bara fínt að geta skipt á milli Kimi og McLaren? Jamm held það bara að sinni ;-).

17.3.07

Kimi á ráspól og er ég glöð?

Ég veit það satt að segja ekki... Það er bara eitthvað við þennan strák sem mér finnst algjört æði. Hann rennir sér í hlutina og maður getur ekki annað en haldið að einmitt svona eigi að gera þetta - algjörlega eins og bráðið smér. Og manni finnst það jafn eðlilegt þegar hann hviss bamm bang sprengir vélina - auðvitað gat vélin ekki þolað þetta áreynsluleysi ökumannsins sem náttúrulega var nákvæmlega ekki það heldur ofurkraftur þess sem hefur ekkert gert og um ekkert annað hugsað annað en að keyra þar til druslan springur - eða þar til hann stendur á miðpallinum. Hvort heldur sem gerist fyrst.
BMW Sauber gengur vel - rétt eins og Palli var búinn að spá. Ég lét hann nú samt hafa all Ferrari line up í liðssstjóranum en sjálf fékk ég mér Sauber bíl - svona getur maður nú látið :-S.
Baldur þverskallast hins vegar að sýna mér liðið sitt - og hann er ekki búinn að bíta úr nálinni með það!
Og ég nenni ekki enn að hugsa um mataræðið (alveg síðan kl 20 í gærkveldi) Ætla sko ekki að fá mér hollan morgunmat - onei. Ég bara ét það sem mér sýnist. Ég trúi því nú ekki að ég ætli að þverskallast við og detta í það matarlega séð en mér finnst það alveg koma til greina...
Ég þykist vera að hugsa um mataræðið en léttist ekki neitt. Horfi bara í andakt á vöðva sem eru að kíkja undan fitulaginu - heilu sinfoníunum reyndar... Ég held ég vilji ekkert endilega gera það sem þarf til að léttast. Ég vil bara hreyfa mig og skemmta mér við það - og þessi aðdáun annarra sem fylgir er bara ágæt.
Ég hef ekki tíma til þess að elda allan þann mat sem þarf í danska - fyrir nú utan að ég hef ekki efni á þeim ósköpum öllum! Ég hef ekki einu sinni ráð og rænu til að taka með mér nesti í skólann - er alltaf í einhverjum reddingum þar því matarlaus get ég ekki verið nú orðið framan af degi sem er náttúrulega framför.
Ef ég nenni ekki að stússast í þessum matarmálum ætti ég þá ekki bara að vera heiðarleg og segja það og hætta að þykjast - detta bara á rassgatið og sprikla svo í Styrk eins og mér sýnist best henta?
Þetta er hvort sem bara hundlélegur árangur að léttast um 20 kg á ári eða svo miðað við öll ósköpin sem ég er búin að leggja á mig í ræktinni - ég get sagt ykkur það að engin fitubolla í mínum þyngdarflokki hefur hreyft sig meira eða oftar en ég á liðnu ári. Svo fer fólk í danska og léttist um það sama og ég á hálfu ári. Það er allt í lagi að léttast um 1 kg á viku en ég geri það nú ekki neitt - læt mér nægja þetta hálfa kíló!!!!
Æ ég er svo dauðþreytt á þessu lífi. Og vil ég eitthvað vera með umsjón á næsta ári? Nei! En vertu viss ég tek hana að mér og einhverja fleiri vitleysu líka! Og fer ég að hugsa um eitthvað nám og breyta lífsmynstrinu sem ýtir mér oftar og oftar í einhverja þunglyndisdýfu - nefnilega því mynstri að kennslan gefur mér ekki það sem hún gerði! Nei örugglega ekki því ég breyti aldrei neinu - ég er svo stöðnuð manneskja að ég líkist helst volvo föstum í skafli!
Og ég get ekki einu sinni verið glöð yfir því að Kimi var á ráspól!
Og ég er að drepast í hálsinum! Og ég er ekki í fýlu eða þunglyndisblús - bara almennt hunduppgefin á því að vera sú sem ég er ;-)



12.3.07

Og enn er ég hér

Það er svo sem skemmtilegt til þess að hugsa að ég skuli eiga mér líf - meira að segja svo innihaldsríkt að ég blogga sjaldnar ;-). En ég er ekki viss um að það sé gott að minnka það. Mér veitir í raun ekkert af því að halda hugsunum mínum til haga - og geyma þær á einhverjum þeim stað að ég geti rifjað þær upp þegar ég man ekki eftir þeim lengur - ég held nefnilega stundum að ég sé alveg í fyrsta skipti að upplifa hluti. Hef bara aldrei lent í neinu svipuðu um ævina.

Það hjálpar líka að sjá heildarmyndina. Þetta er ferðalag og það er gott að doka við og íhuga, velta fyrir sér og svo jafnvel bregðast við.

Ég hef nú ákveðið að taka mataræðið svolítið föstum tökum. Það eru ýmsir í fjölskyldunni sem hafa náð frábærum árangri í því að léttast á síðustu vikum og þó það sé algjörlega borðliggjandi að mér sé ekki hollt að léttast meira en um 500 - 750 gr á viku langar mig nú að léttast um kannski heldur meira en ég hef gert. Kannski er það bara rangt af mér.

Kannski langar mig bara meira að vera með hreina samvisku. ,,Svindla" með opin augun, borða hollt og hámarka þar með árangurinn - kannski ekkert endilega léttast um svo miklu meira - heldur ná því sem ég get. Rétt eins og Polli - púlsmælirinn minn heldur mér við efnið í æfingunum. Mér leiðist að erfiða og ná ekki þeim árangri sem ég ætti að gera.

Vinna

Ég er líka að hugsa um vinnuna mína. Ég get ekki unnið annan vetur svona mikið eins og í vetur og þar með er ég með um 156 þús útborgaðar næsta vetur. Töluvert minna en ég hef í dag - en ég vinn líka allt of mikið og ég ætla aldrei að vinna svona mikið - svona erfiði get ég ekki upplifað eftir.

Ég hef ákveðnar hugmyndir um þau laun sem Palli þarf að hafa en ég hef einhvern veginn aldrei gert þær launakröfur til mín - litið meira á mín laun sem náttúrulögmál. En nú er ég að hugsa um þetta. Ég held í raun að ég ætti að hætta að kenna og þá kemur nýtt starf til mín. Ég ætla þó ekki að gera það næsta vetur - en ég ætla í alvöru að íhuga þetta. Ég er kona með ágæta greind, fína hæfileika á ýmsum sviðum og afhverju ætti ég ekki að reyna að fá meira út úr þeirri blöndu?

Jamm ég ætla að hugsa þetta svolítið meira. Kennslan er hvort sem algjörlega að drepa mig - ræð ekki sérstaklega vel við álagið orðið... En þetta er nú ekkert að gerast á morgun eða hinn. Bara svona að gerjast...

Ég held ég sé komin með hælspora hægra megin líka - amk er ég að drepast undir hælnum - en þó grunsamlega mikið til hliðar....

Kannski er þetta bara sinin að pípa. Ég er eiginlega öll úr lagi gengin en þetta jafnar sig nú allt saman á endanum. Kannski þarf ég bara að drífa mig að léttast meira - til að minnka álagið sem er víst ærið að koma sér í form í mínum þyngdarflokk.

Þegar ég verð orðin 99,9 kg þá held ég að ég geti ekki skilið hvernig ég gat þetta! Ég held þetta sé svolítið erfitt...

En svona ljómandi skemmtilegt ;-)

Þriðjudagur, miðvikudagur og fimmtudagur framundan. Skyldi ég lifa þá af?

3.2.07

Margt í mörgu


Sko ég elska samt Óla Stefáns -eða kannski einmitt vegna þess!



Ekki orð meira um handbolta.

Ég er ekki nógu dugleg í mataræðinu. Ég er hins vegar mjög duglega í hreyfingunni þó ég sé ekki eins yfirnáttúrulega dugleg og í sumar og haust en það á nú sér sína eðlilegu skýringu. Ég er í mjög erfiðri vinnu sem tekur út á mér.

Ég þoli ekki að ég sé að borða of margar hitaeiningar!

Af ofansögðu má sjá að ég steig á vigtina í gær! Það eru alltaf mjög slæmir dagar sem fylgja í kjölfarið. Það er alveg sama hvernig mér gengur mér finnst mér aldrei ganga nógu vel. Og þá skiptir engu máli að ég sé með hælspora dauðans og háls sem ber ekki uppi höfuðið. Set það ekki í nokkurt samhengi. Ef ég væri ekki að hreyfa mig svona mikið þá væri ég að þyngjast hugsa ég! Og samt þykist ég vera í einhverju aðhaldi - ja eða ekki...

Er líklega ekki í neinu aðhaldi því ég borða bara næstum það sem mér sýnist!

Ég bjó mér til matardagbók um daginn - sem náði yfir um 10 daga held ég. Þegar ég byrjaði að skrifa í hana ætlaði ég bara að skrifa niður allt það sem ég borðaði en ekki vera að breyta neinu til að fegra hana. Svo átti að hefja gáfulegt át með nýrri bók. Nú er komið að því.

Ekki í dag samt og ekki í gær- fuss og svei! Á morgun fer ég í Bónus og versla gáfulega inn og verð eins og manneskja í febrúar - reyni að taka þetta með trukki.

Baldur var svo sem ekki svo óánægður með bókarskrifið - finnst reyndar að hann hefði átt að vera óánægðari - held hann sé með aumingjagæsku í garð mín! Enda er ég svo sem ekki í neinum firna góðum gír.

Háls og herðar stífari en um langa hríð. Ég fékk nálar í gær og ég á alltaf góðan dag í kjölfarið. En þær virka svo sem ekki mikið lengur en það. En ég svaf fyrir vikið algjörlega dásamlega í nótt með smá hjálp lyfja að auki :-).

Ég fór svo í fínan göngutúr í Þrastarskóg í morgun og brenndi næstum 600 kal - fín ganga það. Sökk og rann og skautaði og því reyndi vel á kálfana. Hælsporinn bara þokkalegur. Við eigum eftir þrjú skipti í nálameðferðinni varðandi hann.

Baldur vill ég hætti að synda og sjái til hvort hálsinn lagist.

Ég fer þá í sundleikfimi, oftar í salinn (veit ekki alveg hvenær ég á að hafa tíma eða orku í það - sundið er nefnilega miklu meira slakandi en helv... salurinn).

Mér finnst ægilegt að hætta að synda. Það er svo gott að fara um kvöldmatarleytið... en það er kannski bara hreinlega ekki gáfulegt...

Ég svo sem hætti því í sumar þegar ég fékk í hálsinn og lagaðist en ég var ekki í sundi í haust þegar ég fékk í hálsinn síðast -en það er kannski ekki til að bæta ástandið.

En ég átti góðan dag í gær - fínan fram að þessu í dag.

Nú fer ég að hvíla mig og kannski get ég lært á morgun. Það væri frábært.

Það væri bara frábært ef mér gæti liðið svolítið betur punktur!

Og svo er ég búin að læra á ownzone hjá Polla. Polli er hins vegar með leiðindi við mig og skilur ekki að brennslupúlsinn minn er frá 96 eða svo - hann er með rugluna varðandi það og ég verð að reyna að koma vitinu fyrir hann.

annars vill hann stundum að ég sé á moderate hjartslætti en ég er alltaf í light að hans mati. Það er eiginlega þar sem okkur greinir á. En ætli mér takist ekki að gera hann meðvirkan eins og alla!

11.1.07

Yfirlit

Þriðjudagur - unnið til átta eða svo ;-)
Matur að mestu í fínu lagi
Miðvikudagur - vatnsleikfimi - var að venjast fyrirbærinu. Sund um kvöldið, alls brenndi ég 600 hitaeiningum í vatninu yfir daginn. Matur í fínu lagi nema 2 smákökur og einn súkkulaðimoli og ég borðaði of seint eða 20:30. Fór í nudd og bylgjur á hælinn. Er mjög þreytt í hálsinum og komin með verki um 11 leytið alla virka daga. Geng hölt eftir setur. Er með seiðingshausverk alltaf hreint, gleymi honum stundum hann er orðinn svo viðvarandi.
Fimmtudagur. Besti morguninn varðandi hálsinn en var með dúndrandi hausverk þegar ég vaknaði. Keypti mér fínt nesti yfir daginn :-). Stefni á hvíld í dag nema kannski sund seinni partinn því ég er á fundi í kvöld- það yrði þá bara til að létta á spennunni sem er ynnra með mér.

Svo er það toppsport á morgun og það verður nú svolítið gaman að sjá hvað Polli vinur minn segir þá. Hann þverneitar að taka sundið í gærkveldi inn í kaloríur vikunnar - skil ekkert í því. Æfingin birtist í dagsyfirlitinu fyrir 10.01 en kemur ekki inn í vikuna. Verð að athuga þetta :-).

Við Polli, við erum annars góð saman ;-).

En best að leggja í daginn sem vísast verður með skrautlegasta móti.

17.12.06

Góðan daginn!


Ég held það séu 7 dagar til jóla.

Það eru 3 dagar eftir í skólanum.

Og ég á eftir að gera mjög margt:



  • Kaupa allar jólagjafirnar og sýsla með þær - pakka inn og koma á sinn stað

  • Skrifa jólakortin - öll 70 eða hvað þau eru

  • Gera nokkrar jólagjafir sem mér finnst endilega að ég ætti að gera!

  • Kaupa allt inn til jólanna

  • Finna á mig einhver föt sem ég get verið í sem og fyrir Pál

  • Vorkenna Páli svolítið - það er heilmikil vinna skal ég segja ykkur

  • Athuga með jólatré - afhverju langar mig allt í einu í gervijólatré - nokkuð sem ég hef aldrei þolað?

  • Hætta að vera svona þreytt - afhverju er ég svona þreytt? ÉG meina hvers þreyttur getur maður verið.


Verst af öllu er að ég er á sælgætisfylleríi. Hef ekki guðmund um hvernig ég á að stöðva það. Og Styrkur er svo ógó staður að ég get ekki hugsað mér að stunda neina hreyfingu þar innan daga.


Áformin eru þó fögur og fín - sund og göngur næstu daga. Ég treysti á að Páll hjálpi mér við að koma mér af stað í þær - því mig svo sannarlega veitir ekki af hvatningunni og jafnvel toginu út fyrir hússins dyr.


En nú ætla ég að smyrja kremi á sörur, kíkja á pippmarengeið og jafnvel finna til handavinnuna og stilla henni upp á vel sýnilegan stað og ég geti gripið í hana á milli þreytuofsakastanna.


Lof jú Inga þreytta sem er búin að fatta allt mögulegt en er nú ekki farin að nýta sér það á nokkurn hátt - ja nema þá þannig að ég er ekki að drepast úr geðvonsku - bara þunglyndi ;-)

10.12.06

Verkefnið Lífsstílsbreyting Ingveldar


Baldur er stundum að reyna að koma vitinu fyrir mig - alltaf jafnvel og reynir að finna ýmis rök og líkingar máli sínu til stuðnings. Stundum er Ingveldur alveg mát í upphafi tafls og því þarf hann að byrja á því að raða mönnunum upp fyrir hana á ný. Það gerir hann stundum með líkingunni við barn sem er að læra að ganga. En á betri dögum vísar hann til maraþonhlauparans sem þarf að hafa ákveðna áætlun til að hlaupa eftir - ákveðin markmið til skemmri og lengri tíma - það er ekki byrjað á því að demba sér til New York og hlaupa hjá þeim Björk og Grími!

Í mörg horn að líta

Eftir því sem hefur liðið á haustið hefur mér orðið það betur og betur ljóst að þetta verkefni mitt - lífsstílsbreytingin, er ekkert sérlega auðvelt. Það er í sjálfu sér ekki erfitt að mæta í ræktina, einblína á að léttast og það allt saman - ég hef gert það - en það sem er erfitt er að halda út, missa ekki sjónar á því hvert skal haldið - vera viss um að maður vilji ná þangað. Mesta erfiðið er að breyta lífsmynstri sínu frá a til ö from now until eternity. Það er ekki bara mataræðið, heimilislífið, áhugamálin, lífssýnin - heldur það sem mér reynist kannski hve erfiðast - viðhorfið til vinnunnar. Þar þarf meira en lítið að ganga á, áður en ég næ lendingu. Ef maður er ófullnægður á einu sviði smitast það yfir á önnur svið. Maður getur sett upp augnhlífar eins og dráttarklárarnir einblínt á þyngdina, æfingarnar og saltað allt hitt en það kemur þá bara í hausinn á mér seinna. Það er bara ein leið til að gera þetta - og það er með því að taka á öllum hliðum mínum og þær eru margar, margbreytilegar og snúnar sumar hverjar. Kannski eins og hjá okkur flestum. Mesta kúnstin er þó að ætla sér ekki að gera það allt á sama tíma - og á sem skemmstum tíma!

Líkt er Ingveldi og íþróttamanni á leið á ÓL
The Mind Makes a Champion

Nú síðast þegar við Baldur spjölluðum þá var hann mér alveg sammála um það að verkefnið Lífsstílsbreyting Ingveldar væri vissulega erfitt - tröllaukið. Það var ákveðin fróun í sjálfu sér að fá staðfestingu á því fannst mér. Það væri ekki bara minn vesaldómur sem héldi því fram. Af því tilefni benti hann mér á að þetta væri eins og íþróttamaður ákveddi að fara á ÓL. Og mér fannst það nógu merkilega viðlíking til að hugnast hún vel ;-). Lífsstilbreytingin verður mín vegferð til Olympíu.

Það þarf að taka þátt í mörgum mótum, ná mörgum áföngum, þjálfa líkama og kannski ekki síður huga áður en settu marki er náð. Það eina sem truflar mig við þessa líkingu er að líklega hefur íþróttamaður sem ætlar sér stóra hluti traustari undirstöðu fyrir sinni ákvörðun en ég varðandi lífsstílsbreytinguna– ja að því gefnu að hann eigi eitthvað erindi á mótið – geti eitthvað í sinni grein en sé ekki eins og hvert annað nutcase!

Mér finnst ég bara hafa verið ferlega klár að hafa ekkert gert í mínum málum á skalanum almennilega fyrr – ekki eins klár að hafa látið hlutina þróast eins og þeir gerðu á bilinu 15 – 30 en um það er oft seint að fást núna. Ég hefði ekki komist úr sporunum ein – þetta er ekki eins manns verk það er alveg klárt og ekki heldur einhver hugdetta sem manni finnst eins og gæti verið sniðugt að framkvæma! Á einhvern undarlegan hátt hefur mér ekki dottið í hug fram að þessu að snúa ferlinu við, fara úr kyrrstöðu fíkilsins yfir á heilbrigða helminginn. Fyrir vikið er ég þó ekki með 100 skipsbrot á bakinu og veit blessunarlega lítið hvað bíður mín – annars gæti nú hörmungarhyggjan náð yfirhöndinni af enn meiri krafti en fyrir er! Ég hef sem sagt ekki skýra mynd af því að mistakast þetta verkefni í huganum – engin fyrirframgefin úrslit byggð á biturri reynslu.

Grunnurinn skiptir máli

En aftur að grunninum sem ég nefndi áður. Minn grunnur andlega er ekkert sérlega sterkur held ég ef við lítum til þess sem ég þarf að horfast í augu við. Lengi vel hef ég lítið leitt hugann að ókostum mínum og brestum. Hef haldið áfram á því sem ég hef talið mínar sterkar hliðar- falið hitt í algleymi þess sem þykist ekkert vilja af þeim vita nema þegar myrkirð sækir að. Þegar birtir er aftur horft fram á veginn og brestirnir víkja fyrir hinu sem ég get gert. Það þykir orðið nokkuð ljóst að ég er fíkill – það verður víst enginn svona feitur eins og ég nema hann sé fíkill. Mér finnst að vísu ekkert fínt að vera fíkill – myndi gjarnan vilja sleppa við þann stimpil en ég skal alveg venja mig við hann – tækla málin útfrá því. Er ég þá ekki komin með eina afsökunina enn? Ah mér er nú ekki sjálfrátt og því ætla ég bara að fá mér svolítið nammi og ,,njóta" lífsins? Ég tek því svo bara af þolinmæði og umburðarlyndi og geri eitthvað í því þegar ég er í betra standi til að berjast við fíknina? Fíklum er jú oft á tíðum ekki sjálfrátt!

Ekki er nóg með að ég sé fíkill heldur er ég óþolinmóð og óvægin. Ég skal alveg kaupa það að ég sé óþolinmóð og flumbra. Ég t.d. sleit í sundur jólaseríu í fyrrakvöld bara af því mér hugkvæmdist ekki að athuga afhverju hún væri föst – heldur væri ráðið bara að toga fastar. Meira vinnur vit en strit hjá hinum þolinmóðu trúi ég en mér. En ég held ekki óþolinmæðin stjórni lífi mínu, og hún er líka ákveðinn drifkraftur. Og hún er hluti af persónuleika mínum og ég vil helst ekkert breytast mikið í grunninn heldur vera færari um að takast á við sjálfa mig – og þá þarf víst þessa margfrægu þolinmæði og títtnefnt umburðarlyndi.

Glíman núna er sem sagt að finna þennan meðalveg í umburðarlyndinu. Ég held mér sé ekki hollt sérlega mikið umburðarlyndi. En ég má heldur ekki skjóta mig í tánna í hvert eitt sinn sem mér verða á mistök en einhvern veginn finnst mér þau vera óleyfileg hvað mig varða – í sumu að minnsta kosti.

Ofan á allt annað er ég móðursjúk – sem mér finnst nú kannski verst af þessu öllu því það vil ég síst af öllu vera. Sáli reyndi þó að útskýra fyrir mér að þessi móðursýki fælist í næmni fyrir umhverfi mínu og slík en ekki almennri hysteríu – og mér finnst það nú ekki vera neitt ljótt eða slæmt, nema náttúrulega þegar maður verður fyrir slæmum áhrifum vegna þessa. Ég tel hins vegar að þessi næmni sem ég hef – og ég hef mikið af henni það skal viðurkennast, geri mig að góðum kennara en hún getur líka verið slítandi. Og svo nemur maður ekki alltaf allt rétt. Það er náttúrulega ekki gott – þá verður maður kannski svolítið móðursjúkur!

Ég efast um að íþróttamaður sem ætlar sér í fremstu röð hafi þessi ósköp öll, – nema þau séu þá hluti af styrk hans og þori - hann hafi lært að nýta sér skrattakollana sína sér til framdráttar og það er það sem mig langar að gera. Þess vegna fór ég til sálfræðings og þess vegna tel ég mig hafa fullt erindi þangað.

En ég hef líka kosti sem hjálpa: Ég get séð skondnu hliðarnar á málunum, ég er úrræðagóð, ég horfi á heildina, ég hef kroppinn í verkefnið, ég hef líka keppnisskap þó ég vilji helst ekki viðurkenna það og kunni lítið með það að fara! Ég get hrundið ótrúlegustu verkefnum af stað og það sem meira er ég get fylgt þeim eftir (ef ekki áður þá héðan í frá ;-)). Ég er dugleg!

Meðganga lífsstílsbreytingarinnar

Það eru komnir 9 mánuðir – heil meðganga síðan ég fór fyrst í salinn. Það telst ekki langur tími af mannsævinni og það er ekki langur tími í samanburði við þann tíma sem ég eyddi utan ræktarinnar.

Mér finnst þetta samt vera langur tími – og mér finnst eins og mér hafi átt að miða lengra en raun ber vitni. Ég sit hér og hef ekkert hreyft mig í síðustu viku – hvorki gengið úti, farið í salinn, né synt. Ét sælgæti núna – þó skammturinn hafi átt að vera etinn í gær og það sem verra er mér finnst eins og ég standi frammi fyrir þeim valkosti að halda áfram að éta nammi og hætta að hreyfa mig. Mér finnst það raunverulegur möguleiki að hætta að leggja þetta á mig – það sé hreinlega ekki framkvæmanlegt að gera þetta hvort sem er og því sé það í boði að halda áfram fyrri háttum, vinna, reyna að bæta mataræðið og hreyfa mig á sumrin.
Ég veit samt alveg hvað ég vel – ég vel að hreyfa mig og halda áfram að róa með í átt að bættri heilsu en afhverju er ég að sökkva? Og hvenær hefst ferðin upp á yfirborðið?

Ætti ég að hafa farið vigtina – mér finnst eins og hún veiti ákveðið aðhald og ekki veitir mér af aðhaldinu? Eða á ég að hugsa um að ná mér á flot og ekki vera að lemja á mér fyrir það sem ég veit að er ekki í lagi – einbeita mér að því að laga það og sækja svo fram og hafa þá vigtina með mér í sókninni frekar en að hafa hana sem andstæðing eins og staðan er óneitanlega núna?

Mér finnst hver dagur sem ég léttist ekki, hver vika sem ég stend mig ekki vera nagli í líkistuna – sönnun þess að ég geti þetta ekki. Sé ekki fær um að breyta mínum háttum. Sé aumingi. Ég horfi til þess að ég ætti að vera orðin 24 kílóum léttari 1. apríl 2007 en ég var 1. apríl 2006. Hvað ef ég verð það ekki? Þá hef ég fullkominn stimpil á rassinum sem á stendur auli!

En um leið og ég skrifa þetta þá kannski finnst mér nú kannski að ég nái þessu... 2 kg á mánuði og það eru kannski farin 15 – 20 kg þá kannski á ég möguleika. Þegar ég set dæmið svona upp...
Kannski bara get ég þetta? Kannski er ég bara fær um að gera eitthvað í mínum málum eftir allt saman! Kannski gengur þetta bara svona – niðursveifla og íhugun, sókn og dirfska.

Nú stend ég bara frammi fyrir því hvort ég fer í Styrk á eftir eður ei á eftir. Eða nei – ég stend ekki frammi fyrir því. Ég stend frammi fyrir því að ég fer í Styrk á eftir. (Fór ekki þar sem ég sofnaði fram á lyklaborðið eða því sem næst. Annað stendur óbreytt - óhaggað. Fyrri einbeitni verður tekin upp!)Næsta vika bíður með hreyfingu og vonandigóðri líðan. Vonandi fær Bjartur að njóta góðs af því – hann er búinn að vera í hálfgerðri einangrun því enginn labbar með hann ef ég geri það ekki. Ef ég næ ekki að hreyfa mig eins og hér segir hafa markmiðin verið of mörg. Markmið þar næstu viku gætu verið önnur bæði með tilliti til þess hvernig gengur að ná þessum en þó ekki síður breyttar aðstæður, jólafrí og það allt saman.

Markmið

Sem sagt markmið næstu viku:
Sofa – sem hefur vel að merkja gengið vel síðustu 3 nætur eða svo þó ég vakni ótrúlega oft sérstaklega fyrri partinn.
Slaka á í vinnunni – Róm var ekki byggð á einum degi
Huga vel að mataræði – muna 1 nammidag!
Svona ætla ég að hreyfa mig því ég ætla að vera dugleg næstu viku - ekkert múður.
Sunnudagur – Styrkur
Mánudagur – morgunbrennsla – helst ganga með Bjart.
Þriðjudagur – spinning
Miðvikudagur – morgunbrennsla og/eða
Fimmtudagur – morgunbrennsla

Föstudagur - salur

30.11.06

Magavöðvar og leti

Sko - það er ekki hægt að skilja þetta mannslíkamadót og alls ekki þá minn. Ég vil bara fá svona einhverja einfalda mynd af vöðvum mannslíkamans en það er eins og það sé verið að drepa þetta internet með því að biðja um það!

Hvað er að þessum íslensku heilsufríkum að hafa ekki almennilega síðu um þetta einhvers staðar. Nú sem sagt þarf ég að fara að læra um þessa vöðva all by myself og það er ekki eins og ég skilji eitthvað í þessu! Veit ekki einu sinni að ég er með vöðva nema þá í kálfunum og ekki veit ég hvernig þeir liggja eða hvers vegna! Dj...

Svo bara allt í einu og skyndilega er ég með einhverja ,,verki" í maganum og kemst ekki að neinni annarri niðurstöðu en að þetta séu harðsperrur eftir gríðarlegar magaæfingar á sunnudaginn og þennan líka litla spinningtíma dauðans á þriðjudag!

En veit ég og trúi að það sé til vöðvi innan í mér sem liggur þvert á kviðinn og inn í mig einhvern veginn! Vissi ég að það væru vöðvar þversum í mér inn að ... einhverju? 1 cm breiður eða svo? Nei það vissi ég ekki! OG VEIT EKKI ENN því þetta internet getur ekki sýnt mér neitt um þetta þannig að ég skilji það! Sigurlín segir að það sé til svoleiðis harðsperrur og þá líklega vöðvi! Trúi henni nú ekki alveg - vil sjá almennilega mynd af þessu svo ég haldi ekki að ég sé með samgróninga ;-).

Ég geri áreiðanlega aldrei nóg - ég fæ svo sjaldan harðsperrur - en ég vil nú meina að það sé vegna þess að ég sé svo dugleg að teygja!
´
Afrekaskráin mín í dag:

nennti ekki í búð
Fór ekki í morgunbrennslu
alls ekki í spinning
ekki í afternoon brennslu
ekki út með hundinn sem er í stofufangelsi
Mataræði - eplakaka með rjóma,kjúklingabitar, franskar, hmmmm já og nammi á kennarafundi! Borðið fulla lúku af súkkulaðirúsínum í gær - já og svolítið af piparkökum í dag!

Brilliant og ég get ekki einu sinni sagt með sæmilegri festu að mér þyki það miður. Ég er búin að missa alla einurð og einbeitingu - fer í Styrk ef ég man eftir því - hmm hvar eru íþróttabuxurnar? Já eða skórnir - iss piss geri bara það sem mér sýnist. Lífið er hvort sem er svo snúið um þessar mundir ha hu hummm

OG ÉG VAR AÐ FREGNA AÐ STYRKUR ER LOKAÐUR FRÁ 20 DES TIL GUÐ MÁ VITA HVAÐ! Christ og ég sem ætlaði að vera svo dugleg um jólin!

shit

Og svo get ég ekki einu sinni sagt að afköstin í vinnunni séu svo mjög gasaleg!

Lengi lifi Coke lite - vatn er vont og nammi gott! Elda er óþarfi og Bónus er óvinur númer 1 - 100. Jább hún Inga litla er á góðri leið með bros á vör og kampakát. Ætlar í bólið snemma og láta sem ekkert sé því það koma hvort sem er alltaf svona tímabil þar sem hlutirnir ganga ekki vel - og það er bara eðlilegt og ekki er hægt að halda sama tempói alltaf og það er bara í lagi að slaka aðeins á - Maður má nú ekki ofgera sér. Já og nóvember er nú erfiðasti mánuðurinn í kennslu!

oh í svona niðursveiflu er svo mikilvægt að halda haus og vera umburðarlyndur og þolinmóður!

Oh yeah

Er ekki bara kaffi krús eftir skóla á morgun og enginn Styrkur? Tjú tjú trallalala

Life is a wonderful thing

Fíkn, offita, þunglyndi, móðursýki, orkuleysi, búseta í skýjaborgum, kenna öðrum um, allt eru þetta gjafir sem svo gaman er að vinna með - styrkja persónuleikann, auka manni umburðarlyndi og þroska. þetta er allt lífsreynsla.

En kvíðn er konan ekki og það er nú fyrir mestu!

Ég hef samt eiginlega engan áhuga á því að verða umburðarlynd og þolinmóð - ég meina hver yrði ég þá? Ekki hún Inga og ég hef svo sem engan áhuga á að segja skilið við hana.

En nú er ég farin í bólið að leas bók um óþolinmæði!

Og ég bara verð að fara að setja hann Bjart ofar í forgangsröðina - þetta er ekki að gera sig!

Og auðvitað fer ég í Styrk og eitthvað fleira sem ég man ekki í augnablikinu af markmiðslistanum - en mig rámar í að mér hafi verið bent á að bæta svefninn. Nú fer ég í það.

Lof jú still

Inga

21.11.06

Ein ég sit hér og bíð

Búin að drekka kaffi þannig að það bunar út um eyrun á mér, láta eins og fífl á kennarafundi, svíkja sjálfan mig á því að vinna það sem ég ætlaði að gera í vinnunni - mér miðar ekkert með það. Ég er bara orðin letihaugur og er samt enn í vinnunni en er nú formlega hætt að vinna enda farin að blogga!


Ég er að fara í spinning! Og ég held ég kvíði því svolítið þó ég segi mér að þessi tími verði betri en sá síðasti - ég meina þetta er ekkert svo erfitt - bara erfitt :-)

Enda sjáið þið að þetta er tóm sæla og ekkert annað. Tóm sæla. Hélt nú annars að Baldur ætlaði einhvern tímann að koma með mér en hann hefur nú eiginlega alveg svikið mig um það! Þorir kannski ekki, tíhíhí!

Heyrið þið mig - ég er búin að búa mér til markmið og ég ætla að setja þau hér inn því ég svoldið eftir að gleyma þeim held ég - ekki alveg búin að tileinka mér þau - enda á maður víst að gera það smám saman! Þau eiga ekki að nást á fyrsta degi heldur með æfingunni. Maður er bara alltaf að læra skoho.

Og nú ætla ég líka að anda svolítið - því ég er svoooo stressuð út af þessu spinning dæmi - þessari sælu og því!

En Ingveldur hér eru markmiðin þín og hana nú!

Markmið:
Skammtímamarkmið sem yrðu nú fín lífstiðarmarkmið fyir kaos-istann Ingveldi

Rautt er erfiðast - bleikt er svoldið erfitt

Ljósblátt er minnsta málið (kannski auðvelt en ekki ægilegt) - dökkblátt aðeins erfiðara.


Matur
Versla reglulega inn
(það fer um mig hrollur)
Elda (er einfaldara ef maturinn er til – þá er ég ekki svo slæm í því sko)
Vera komin heim ekki seinna en 18 til að elda
Borða skyr – jukk
Útbúa nesti og eiga eitthvað gáfulegt í skólanum
Endurskoða nammidagana – eitthvað annað en nammi!

Hreyfing
Fara í Styrk alla sunnudaga
Fara í morgunbrennslu/göngu með Bjart á mánudögum
Spinning á þriðjudögum
Hvíld á miðvikudegi
Morgunbrennsla á fimmtudegi (og mig langar gasalega prófa að fara tvisvar í viku í spinning við og við en það verður nú svoldið í það – miðtímamarkmið kannski ;-))
Föstudagur er uppáhaldið í Styrk.
Og svo er kominn sunnudagur enn á ný.
Ganga með Bjart á laugardegi og helst á sunnudegi líka. Þarf ekki endilega að vera mjög langt en amk 20 - 40 mín.

There you are!