Showing posts with label markmið. Show all posts
Showing posts with label markmið. Show all posts

3.10.07

Ég get nú ýmislegt


Ég hef nú misst 3 kíló tralalalala. Í fyrsta sinn í nokkrar vikur er ég að léttast annars hafði ég staðið af vísindalegri nákvæmi í nákvæmlega sömu tölunni sí og æ. Allt utanumhaldi danska mataræðisins (ekki gott að tala um kúr - dugar víst ekki að vera á kúr ef ég er ég) að þakka. Við Palli höfum bara staðið okkur rosa vel og áætlun hefur haldist.


Nú er bara að láta ekki deigan síga og hugsa um eldamennskuna. Hreyfingin er amk alveg svellköld inni. Ég meira að segja skunda í sundleikfimi á hverjum morgni alveg sama hversu lítið ég nenni því ekki ;-). En svo nenni ég því eiginlega alltaf svo mér er engin vorkunn.


Ég fór í Styrk í gær og bætti mér þar með upp mánudagstímann. Já og fékk þá þessa fínu tölu á vigtina loksins. Ég hef reynt að vera ekki buguð og beygð yfir þessu havaríi að léttast ekki heldur líta á það eins og hvað annað - svonalagað gerist, þetta er ekki áhlaup - ekki spretthlaup heldur langhlaup og vissulega er það gott að vera offitusjúklingur og matarfíkill og óreiðupési og hafa ekkert þyngst í 18 mánuði. Nú stefni ég á annað kíló að viku liðinni.


Mummu bróðir sagði að ég yrði bara að gera eins og Magnús - ákveða að labba á Mont Blanc og svo Kilimanjaro og gera það svo bara! Engin undankomuleið.


Hvað gæti ég sagt? 2 kíló á mánuði til áramóta eru sex kíló. Fyrstu fjórir mánðurinir eru önnur 8 kíló - þetta gera 14 kíló sem þýðir að ég hef lést um 18 -19 kíló á öðru ári mínu í lífsstílsbreytingunni... Það yrðu 42 kíló alls! Það er nú ekki svo slæmt - ég léttist að jafnaði um 2 kg á mánuði á síðasta ári og ég hlýt að geta það á ný...


Þá er það ákveðið. 2 kíló hið minnsta á mánuði - minna í desember þó og erfitt verður það í janúar en þá er líka bara að vera búin að taka aðeins meira af sér í annan tíma!


1. nóvember ætla ég að vera orðin 139 kíló og fagna nýjum tug!


Og takið þið eftir því hvað ég er farin að tala frjálslega um kílóin mín. Já ég verð áreiðanlega farin að standa á götuhornum og boða frelsun ykkar allra innan tíðar!


Er nýkliptt og litið - ógeðslega mikil pæja. Hefði annars þurft að vera innan dyra for ever - hárið á mér var hræðilegt! Og ég þar með.


Svo væri gott ef ég lærði að fara með peninga einhvern tímann í millitíðinni.

31.8.07

Don't believe everything you think!


Það eru ákveðnar hugsanavillur í gangi hjá mér - já og svona ákveðin vafaatriði....

Einbeitingarleysi - afhverju?
Langar mig ekki í heilsbótina og kílóa-aflausnina? Jú ég verð að segja það. Vil að sjálfsögðu vera hraust - og good looking. Það væri áreiðanlega dásamlegt. Rétt að setja markið á það þá...

En leiðin að því að ná markmiðinu er einhvern veginn ekki mér að skapi. Stundum bara nenni ég þessu ekki. Þetta er ógnarinnar vesen og það er ekki einu sinni eins og kílóin hrynji af manni og heilsan sé alveg upp á glans. Heilsubótin lætur einhvern veginn bíða eftir sér..... Þó ég sé áreiðanlega ekki sama manneskjan og ég var. Áreiðanlega miklu betri - (ákveðins efa gætir þó í letrinu).

Trúi ég ekki að ég geti þetta?

Neibb - svo einfalt er það. Held að þetta sé glórulaust.

Þar er komin sú ruglaða hugmynd að Baldur eigi bara að gera þetta með mér og helst fyrir mig. Það er bara að ljúga að sjálfum sér að ætla öðrum að draga vagninn með mér. Enginn gerir þetta nema ég.

Einvera

Ég yrði ósköp glöð að hafa einhvern með mér í salnum. Gantast með og hlægja. Hvetja og berja mig áfram. Ipodinn getur verið einmanalegur félagi. Kannski hressir blakið upp á þá hlið...

Það er bara blekking að styðja sig við aðra. Það er bara blekking að horfast ekki í augu við það að ég léttist afskaplega hægt þessar vikurnar - og segja að þetta sé svo sem allt í fínum farvegi...

Ah kannski ekki....

Afsakanirnar hafa nú verið fínar síðar í vor: Skipsbrot í vinnunni, skipt um vinnustað, sýkingar í lungum og astmi (7 vikur af 13). Fótafúi dauðans. Sumarleyfi og ferðalög. Húsamálun...

En betur má ef duga skal - nú er að hrista af sér þessa berkjubólgu. Svona fyrst lappirnar eru ekki verri en þær eru...

Ég hef það nú bara ágætt og lifi fínu lífi. Ég set það á markmiðslistann minn að taka upp merkilega iðju þegar ég kem heim á kvöldin - ekki hlamma mér beint í sjónvarpsstólinn. Fara bara að snúa sér að handavinnu ha hu hummm?

Góða nótt

Ykkar Inga sem þrátt fyrir allt léttist örlítið þegar á heildina er litið og er virkilega að breyta um lífsstíl.

6.5.07

Kosningar, Evrovision, aðdáandi og prófagerð


...já og svo er einhver sjálfsmeðaumkvun þarna með líka! Hí hí það er sem sagt margt í mörgu.

Ég er pólitískt viðrini. Samfylkingarkona af lífi og sál og það allt saman - en mér finnst stundum ég sjái óþarflega margar hliðar á málunum. Er ekki nógu einstrengingsleg til að ná mér á almennilegt flug. En ég er krati af gamla skólanum.

Ég trúi á gildi og mátt almannatrygginga

Ég vil að samfélagið hugsi um þá sem minna mega sín og hlúi að þeim allt eftir því sem aðstæður hvers og eins bjóða upp á.

Ég vil hraðvirka og góða heilbrigðisþjónustu fyrir alla og minnka kostnað fólks við hana. Það að fá blóðtappa í fótinn á ekki að kosta viðkomandi 18 þús krónur. Það finnst mér óforsvaranlegt.

Ég vil öflugt skólakerfi rekið af sveitarfélögum og ríki, þar sem áhersla er lögð á vellíðan nemenda, rólegt vinnuumhverfi og alúð sé lögð við hvern einstakling, hvort sem hann er nemandi eða starfsmaður.

Ég vil að skólinn sé vin í erli hversdagsins hjá börnum. Við þurfum að vega upp á móti flýtinum og stressinu í umhverfi þeirra með því að skapa þeim öryggar aðstæður þar sem samskipti skipta meginmáli. Í öryggi þroskumst við best þar sem við fáum krefjandi viðfangsefni og náum að láta ljós okkar skína. Í þessu finnst mér ýmislegt vanta í dag.

Skoðanirnar hér að ofan eru mér algjörlega inngrónar og ég hef skoðanir á mörgu fleiru. Ég hef hins vegar ekki leyft mér að fara á flug í stjórnmálunum því þá veit ég hvernig það myndi enda. Ég yrði stjórnmálanörd. Rétt eins og ég varð kennaranörd, bridgenörd eða F1 nörd - já eða líkamsræktarnörd. Ég nenni ekki að hafa áhuga á einhverju nema demba mér algjörlega í það. Þegar ég horfði á fótbolta þá sökkti ég mér algjörlega í það - þvældis á leiki hér og þar, og glápti á þennan fjanda í sjónvarpinu eins og ég kom því við. Úff sem betur fer gat ég bægt þeirri bakteríu frá mér og hef látið eins og hún sé ekki til - ætla að halda því sem allra mest áfram. Þarf samt að vera aðeins með á nótunum til að vera viðræðuhæf við krakkana!

Aumingja Palli fer illa út úr þessu ,,áhugaleysi" mínu á stjórnmálum. Honum finnst svo gaman að tala um stjórnmál, fjargviðrast yfir stjórninni og þessar stefnu sem hefur fært ogkkur græðgi og aukið völd Mammons þannig að við erum eins strengjabrúður andskotans þegar kemur að peningum - og hjá okkur er eiginlega ekkert annað sem kemst að! Ég umla bara og humma og þverneita að nenna því að tala um þessi ósköp öll. Enda yrði ég líklega alveg vitlaus um leið.

Ég er nú svoldið spennt út af Evróvision - skyldi Eiki ná að koma okkur upp úr tapdeildinni? Hann hefur einhvern sjarma karlinn - ef honum tekst vel upp á sviðinu gæti vel farið svo - annars er ég orðin vonlítil með að við komumst nokkru sinni lengra en í undankeppnina. Það eru nokkur ágætis lög þarna innan um og saman við. Og ég elska þættina skandinavísku (hægt að líta á þá hér) sem eru á RUV - þvílík krútt sem þar eru saman komin. Eitt allra besta sjónvarpsefni síðari ára svei mér þá. Húrra fyrir þeim. Samfylkingin er með Evrovisonpartý á fimmtudaginn í Inghól - maður ætti kannski að skella sér? Annars skelli ég mér aldrei neitt...

Ég hitti aðdáenda minn á föstudaginn (vonandi má ég kalla hana það) Það var alveg frábært. Það er mjög gaman að vita að það sem ég skrifa geri einhverjum gott. Hún kom að máli við mig í Styrk og sagðist alltaf lesa bloggið mitt og það hvetti hana til að gera eitthvað í sínum málum. Ég var ótrúlega glöð að heyra það. Gaman að þessar langlokur mínar skipti einhverju agnarlitlu máli fyrir fleiri en mig. Þó ekki væri nema vegna einhvers skemmtanagildis. Baldur átti líka aðdáenda í henni. Amk vakti hann forvitni hennar ;-). Hann er vel þess virði að eiga aðdáendur - ég hefði aldrei farið af stað án hans tilstilli og ég hefði heldur ekki þraukað þetta án hans. Hann hefur hvatt mig áfram, stutt mig og sjúkrað. Það er mikilvægt að hafa einhvern með sér í þessu sem hefur áhuga á því sem er að gerast hjá manni. Komið ykkur í samband við einhvern. Kannski bara æfingafélaga, sjúkraþjálfara, einkaþjálfara eða verið í hóp - sumum finnst það gott. Þetta er í raun einfalt mál:

Þú þarft að taka frá tíma í hreyfinguna
Þú þarft að ætla þér að breyta
Þú þarft að fara aftur eftir fyrsta skiptið...
Þú þarft að fara aftur og aftur alveg sama hvað

Þú þarft ekki að vilja gera þetta
Þig þarf ekki að langa til að gera þetta
Þér þarf ekki einu sinni að þykja þetta skemmtilegt

Hið eina sem þarf er ákvörðunin: Ég ætla að gera þetta.

Við vitum öll að við eigum að hreyfa okkur og við erum jafnvel öll tilbúin til að trúa því að hreyfingin bæti líf okkar og auki lífslíkur. Sú almenna skynsemi sem við höfum öll til að bera dugar fyrsta kastið. Við vitum að við eigum að hreyfa okkur.

Þegar þú hefur brotist út úr vananum og er farin(n) að hreyfa þig reglulega þá kemur viljinn, markmiðin og áhuginn. Og ef ekki þá bara tough shit - þú verður bara að halda áfram samt. Sá munaður að halda að maður hafi val um að hreyfa sig eða hreyfa sig ekki, fleytir manni ekki áfram.

Það koma erfiðir tímar - þetta er stundum hundleiðinlegt og virðist ekki skila miklu, fyrir nú utan það að maður hefur bara engan tíma í þetta- og það er þá sem þarf að bretta upp ermarnar - og fara aftur og aftur alveg sama hvað. Og það besta við þetta allt saman er að þó eitthvað bregði útaf í mataræði eða hreyfingaráætlun þá er alltaf hægt að byrja aftur strax - maður bara stendur upp, dustar af höndunum rykið og heldur af stað á ný. Það er bara eðlilegt að hrasa. En það er líka gott að hafa einhvern til að styðja mann á fætur og blása á meiddið.

Við getum þetta öll, við finnum okkar takt og fetum okkur áfram veginn. Mér þótti hreint ekki skemmtilegt í Styrk fyrst og leið bara hroðalega illa þar. Ég vildi aldrei hitta Baldur aftur eftir að ég sá hann fyrst, Styrkur var óvinveittur staður og ég engdist um - eins og fiskur í neti. Eða minnkur í búri eins og upplifun Baldurs var af þessum fyrstu tímum okkar... Þessar aðstæður voru mér framandi og ógnvekjandi.

En einhvers staðar kraumaði svo vitneskja að ég yrði að gera eitthvað og kannski væri Baldur rétti maðurinn til þess að koma mér af stað - nógu dj... væri hann beinskeittur og lítt meðvirkur. Ég var lengi af stað en þessir 10 fyrstu nuddtímar þar sem Baldur rausaði og rausaði um hreyfingu var upphafið að ferðalaginu sem ekki sér fyrir endann á. Fyrst ég get þetta (ekki ef) þá getið þið það líka. Það er bara að ákveða að maður ætli að hreyfa sig, hvenær og hvernig. Ákvörðunin þarf að standa og hefur ekkert með vilja að gera - heldur common sense. Og svo er að mæta aftur og aftur og aftur þar til það er orðið manni eins eiginlegt og hitt - að mæta ekki.

Á einu ári hef ég misst 24 kg og 110 sentimetra af ummáli mínu. Ég hef styrkst, orðið yfirvegaðari, ekki eins stressuð og orðið meðvitaðari um sjálfa mig, þarfir mínar og mörk. Eftir ár verð ég búin að missa 48 kg og eftir tvö ár héðan í frá - eða þrjá ár alls verð ég búin að missa massa sem nemur eins og einni meðalkonu. Ég ætla ekki að hafa neitt ef í þessu en ég veit að kannski næst þetta ekki - kannski tekur það mig 4 ár að ná markmiði mínu og það verður þá bara allt í lagi. Ég hef nefnilega lært ýmsilegt um markmið líka á síðastliðnu ári.

We can do it.

Verum bara vel byrg af plástrum og öðrum björgum því stundum gefur á bátinn ;-)
You go girl - aðdáandi minn. Það var ótrúlega hvetjandi að hitta þig og heyra frá þér. Takk fyrir það.

29.4.07

Skaðvaldurinn fundinn


...illa lyktandi bollu-limesneið sem hafði laumað sér hér í eitt hornið undir innréttingunni og spjó svo út úr sér allskonar ógeðseindum sem menguðu fyrir mér loftið. Fuss og svei! Drap kvikindið og kom því út í tunnu en þessi lime sneið var fölsk og viðsjárverð og hafði látið sér ryksugun, sópun og skúringu fram hjá sér fara. Eins og hún var falleg og ljúf á föstudaginn tuttugasta - þá var hún eins og þessi hér að ofan. Mynd af ófétinu í dag verður ekki látin fylgja!


Búin að fara í hjólatúr, Styrk og meira hjól í dag. Hreyfingaáætlun þessarar viku stóðst með ágætum. Það kemur svo í ljós á föstudag með afganginn. Það verður bara að taka hraustlega á í grænmetisáti og heilbrigðu líferni næstu viku. Maður er alltaf að reyna, alltaf að reyna. Og stundum tekst manni svo ljómandi vel upp!

14.4.07

Back to the basics

Ég og Bjartur vöknuðum árla í morgun en í gærkveldi bjó ég til lista yfir allt það sem ég þarf að gera næstu 7 dagana - hefur vísast valdið því hve snemma ég vaknaði. Það er ýmislegt- húslegt og garðlegt. Hér í garðinum er mikið rusl saman komið - jukkiti júkk bara - bæði frá okkur og svo fýkur mikið hingað inn líka - mjög sóðalegt og ég verð að gera eitthvað í þessu í algjöru snarhasti. Ja kannski ekki algjöru snarhasti en svona nokkru snarhasti....

Nú en það sem ríður mest á er að komast í taktinn í lífinu sjálfu aftur eftir hálf einbeitingarlausa viku síðast. Það dugir ekki að horfa bara á það sem betur má fara og gera ekkert í því heldur barasta koma sér í gírinn á ný.

Gærdagurinn var afleitur matarlega séð - en ég var mjög dugleg í ræktinni en fór ekki sundleikfimina. Var bara einfaldlega of þreytt - en það er nokkuð sem einkenndi mig í liðinni viku. Svo erfitt að vera í páskafríi ;-).

En þar sem ég var minnt á það að ég ætti hjól í gær og að ég ætti að nota það brá ég undir mig betri fætinum og hjólaði í morgun til að koma brennslunni af stað. Það var nú ekki sérlega gott veður og rigningin æði köld á köflum en ég náði að hjóla góðan spotta á móti vindi sem er sérlega æskilegt því annars næ ég ekki púlsinum upp nema með mikilli langkeyrslu. Ég hjólaði í um 25 mínútur og er bara ánægð með það nú þegar ég hlusta á nauðið í vindinum og sé dropana falla skáhalt hér fyrir utan.

Í dag ætla ég að horfa á tímatökur í F1, baka bollur, taka til í ,,skrifstofugeymslunni" minni og slappa svo vel af inn á milli. Stefni á svolítið hlaup í lauginni um fjögur leytið - þarf enn að brenna um 400 hitaeiningum til að vera á áætlun dagsins. Vantar umtalsvert upp á að bæta hreyfingaleysi mánudags en þar sem ég fer í Styrk á morgun þá lítur jafnan ekki afleitlega út og ég hef snúið vörn í sókn.

Nú er bara að huga vel að mataræðinu og taka sig í gegn þar sem því er ábótavant. Auka grænmetisátið, minnka brauðát - helst setja það alveg út og borða ekki neitt nema grænmeti eftir kl 20 á kvöldin. Þá er ég í góðum málum.

Bless í bili

13.4.07

Hmm allt komið í vitleysu

Sögulegu hámarki hefur verið náð í þyngdaraukningu en það var svo sem við því að búast eftir páskana - það er nú meiri hátíðin og fermingaveislurnar voru síst til þess að bæta úr. Páskaeggið ekki heldur.... og allt sem því fylgdi. Og því ætlaði ég að spýta í lófana þessa viku en það hefur nú ekki tekist:

Mánudagur: Engin hreyfing
Þriðjudagur: Engin hreyfing
Miðvikudagur: Brennsla í 45 mín - hey og ég var í 25 mín samfleytt á stigvélinni - oh yeah
Fimmtudagur: Ekkert
Föstudagur: Ja það er sko eins gott - það er þó ekki sundleikfimi því í hana fór ég sko bara ekki neitt.

Mataræði: Gott en með alvarlegum misbrestum þó! Einbeitingin ekki í lagi.

Afraksturinn bullandi hálsverkir - sem líklega komu á undan hreyfingaleysinu og ég virðist ætla að láta þá stoppa mig að þessu sinni. Svefnleysi hefur verið viðvarandi þessa viku og alls konar böggl á næturnar enda þarf ég að setjast upp í hvert skipti sem ég sný mér þar sem ég get ekki snúið herðum og hálsi.

Ég man núna hvað var leiðinlegt að finna til í hálsinum!

Og nú þarf að spýta í lófana. Ég þarf helst að léttast um 2 kg þessa vikuna...

8.4.07

Aðgerðaáætlun 1 - uppfærð 11:30


Nú þarf að grípa til breiðu spjótanna:
Borða páskaegg hratt og vel og eiga ekkert eftir á morgun!
Reyna að ákveða hvort það var gott eða slæmt að McLaren vann 1-2 í Malasíu!
Enn engin niðurstaða þar.
Fara a.m.k. 2 sinnum út að hjóla í dag.
Oh yeah - fór Votmúlahringinn og hann er skoho langur og við hjóluðum stanslaust í klst. 1000 hitaeiningar þar í yndislegu veðri, úða og logni. Hæfilega aum í rassinum en í mun betra standi en aumingja Pallarass ;-).
Þvo margar margar margar þvottavélar og það sem er ekki minna um vert - hengja upp úr þeim (held ég ætti kannski að safna mér fyrir þurrkara - það er ekki hemja að vera hvorki með þurrkaðstöðu né þurrkara!).
1 búin
Finnast alveg æðislegt að vera í fríi.
Gengur vel.
Hugsa sem fallegast um þriðjudaginn!
ohhhh vil ekki af honum vita!!!!
Halda áfram að taka til í geymslunni sem á að verða skrifstofa...
Bjóða tengdó í svínslæri ala Helga Sigurðar!
Mallar í ofninum
Hmm þetta er kannski fullmikið verkefni fyrir einn dag...
Sjáum til sjáum til það þarf víst ekki að ná öllum markmiðum - alltaf, strax...
En þetta með hjólið stendur!!!!

2.4.07

Morgunstund gefur gull í mund

Góðan daginn

Nú er fyrsti í fríi :-).

Ekki leiðinlegt. Ég er vöknuð og svellfín árla morguns - það er nú ekki leiðinlegt heldur. Það verður nú að segjast ;-).

Þegar Palli er heima er alltaf ákveðin hætta á því að allt fari í vitleysu. Það er allt í einu ekki nærri eins einfalt að halda einstrengingslega áætlun mína þegar maður þarf að taka tillit til (eða ætti amk að gera það) annars. Ég þarf meira að segja að vera svolítið notaleg okkar allra vegna. Það er nú ekki gaman að koma heim til fúllar kerlu - eða fá fúlan karl heim. Annars er það náttúrulega ekki sérlega erfitt því ég er svo notaleg manneskja eins og þið vitið, híhíhí.

En sem sagt - mataræði, hreyfing, svefn gengur allt nokkuð úr lagi og ég má hafa mig alla við að halda áætlun. Annars á Páll ekki marga úrkosti blessaður. Hann getur jú verið heima á meðan ég sprikla eða komið með. Um helgina hefur hann komið með. Eiginlega alveg undrandi á því að rassinn á sér skuli enn halda eftir hjólreiðar helgarinnar.

Þegar nýtt hjól kemur í hús er náttúrulega ekki annað að gera en nota það og það hefur verið gert. Hún Þórunn elskuleg lánaði mér hjólið sitt í haust og Páll hefur verið að nota það - það er eins hjól og mitt. Frábærir gripir báðir tveir, takk Þórunn mín. Kannski get ég einhvern tímann launað þér greiðann.

Þar sem einu mjúki göngustígarnir sem mér hugnast hér í nágreninu eru í hinum blauta Þrastarskógi fer ég ekki þangað né annað því hælsporarnir mínir bjóða ekki upp á göngur. Á laugardaginn fórum við því í hjólreiðatúr og í gær var stefnan tekin á upphitun á hjólum og svo Styrkur.

Það fór hins vegar svo að eftir að við hjóluðum vítt og breitt um Selfoss, Laugardæli og nærliggjandi þjóðvegi í um 40 mín vorum við svo hrakin og köld að við sáum okkur ekki annað fært en fara í heitan pott. Sem við og gerðum og ég synti svolítið og hljóp í lauginni. Brennslan var þó ekki sambærileg á við Styrk - þ.e. eftir því sem Polli sagði en ég þarf að stilla hann þannig að hann taki mið að lækkuðum púls í vatni.

Eftir ferminguna hans Ingþórs var komið þetta ofsalega góða veður og fullur vilji til þess að hjóla svolítið meira og þá bættist við allnokkuð af kaloríubrennslu þannig að dagurinn í gær var mjög góður. Það er svo gaman að hjóla! Ég ætla svo að hjóla í dag og fara svo í Styrk - gaman að breyta aðeins til og sleppa við ógeðstækið við og við :-). Mér sýnist vera hið ágætasta veður - en það má svo sem alveg vera leiðinlegt - þá brennir maður bara meira - ef vindurinn blæs manni í fang.

Framundan bíður svo sex hæða fermingarterta fyrir Kristínu, Borgarfjarðar ferð en áður en það allt saman gerist þarf að taka til í eins og einni geymslu - sem klárlega verður allnokkur brennsla ;-).

Inga mælir með að allir fái sér Swhinn hjól og komi með út að hjóla. Munið bara eftir hjálminum því of seint er að byrgja brunninn þegar barnið er dottið ofan í :-).

p.s. Þess bera að geta að markmið síðustu viku náðist ekki varðandi þyngdina nema þá til hálfs... Nú tekur bara við damage conrol og hörku brennsla alla daga. Það er eiginlega ekki hægt að léttast um páska...

16.3.07

FATT




ég er hætt að hugsa um að léttast. Gengur hvort sem er ekki neitt. Ég ætla bara að verða massaðasta fitubolla á Íslandi.

Sounds good - yeah!

Ég geri bara það sem mér sýnist!

Þetta er vænlegt markmið ekki satt?

Áhyggjulaust líf here I come!


Ég er líka hætt í námi hjá KHÍ - ég ætla aldrei að læra neitt sem viðkemur kennslu framar? Tilhvers? Álíka gáfulegt og að henda peningum tíma og heilsu út um gluggann!

Vill einhver koma í slag? Ég er til ;-)

21.2.07

Liðnir dagar

Það er hægt að hafa svo mikið að gera að maður barasta:

borðar sama og ekki neitt
Fer ekki í Þrastarlundargönguna sína
Fer ekki í mánudagsspriklið sitt
Fer ekki í sundleikfimi á miðvikudögum
Heldur að maður eigi að mæta einhversstaðar en á þá ekki að gera það fyrr en daginn eftir!
Vinnur allan laugardaginn frá morgni til kvölds
Vinnur þar til þjófavarnarkerfið hendir manni út á mánudegi
Hlustar ekki á þjófavarnarkerfið á þriðjudegi og er barasta að vinna fram yfir miðnætti ;-)

Þess vegna ætla ég að hætta snemma í dag og vera búin með námsmatið ekki seinna en um hádegi. Og ef ég verð ekki mjög syfjuð - því það er ég nákvæmlega núna, ætla ég í Styrk á eftir og reyna að brenna fyrstu opinberu kaloríum þessarar viku.

Svo verður Polli líklega bara að fyrirgefa mér það þó ég brenni ekki tilætluðum hitaeiningum þessa vikuna - þó ég eigi nú eftir að innbyrgða þær nokkrar og þá kannski helst á föstudaginn í partýi gamalla Ljósfyssinga :-)

Það versta við þetta allt saman er að ég fæ ákveðið kikk að vera í vinnunni eins og mér sýnist og helst gott betur!

Sigh

19.2.07

Argh pargh

Ég þoli ekki bleik blóm! Eru alltof dömuleg fyrir mig og þar að auki væmin.

Jamm í þannig skapi er ég.

Þó ég hafi verið alsæl með gærdaginn og vikubrennsluna upp á 42oo kaloríur er ég svo geðvond núna, ráðvillt og illa upplögð að það verður bara heppni ef ég kemst heil frá þessum degi!

En ég ætla nú að reyna að vera almennileg og halda mínu striki en fjandi verður það erfitt vænti ég.

Argh pargh

Og mér er illt í hálsinum enn og aftur!

6.2.07

Fara yfir um




...eða ekki?

Ég er svona að velta því fyrir mér...

Það er nebbilega árshátíð og svo námsmat í næstu viku! Foreldraviðtöl og hvur veit hvað!

Svo er ég líka að velta því fyrir mér hvort ég eigi að verða vitlaus á sælgætisáti og kvöldnasli sem ég taldi mig algjörlega vera búna að venja mig af. Mér finnst ekkert galið að fá mér mjólk og kex (ætli það séu nema svona 4 ár síðan ég borðaði kex síðast sem kvöld nasl). Nammi og brauð, já nefnið það bara. Hvað finn ég í neðstu skúffum, innstu skápum - já eða jafnvel í frysti eða inni hjá krökkunum. Name it ég er til!

Matur - æ ég hef ekki neinn sérlegan áhuga á honum. Þetta ástand á mér kemur í kjölfar þess að ég ætlaði að verða sérlega einbeitt í mataræði. Jamm - þannig fer það nú!

Ég held þetta sé því ég get ekki sofið vegna hálsins - eða jafnvel vegna einhverja af þessum lyfjum sem ég er að éta! Er svo óglatt seinni partinn en fýrist upp matarlystin um miðnættið - já og hvað er ég að gera vakandi þá?

Og ekki hreyfði ég mig í dag. Það er allt úr lagi gengið þar sem ég má ekki fara að synda - og ekki nenni ég út að labba í þessum kulda - get jafnvel talið mér trú um að ég myndi bara verða enn verri við kuldann!

Jamm - best að rétta úr kryppunni, kýla hálsinn aftur og vagga minna.

Mér finnst enn ekki nema hæfilega flott að vera vaggandi í göngulagi og með framstæðan háls. Minnir óþarflega á hænu satt að segja!

Engin hreyfing í dag - en nálar. Er að vonast til að ég komist í gegnum morgundaginn með þeirra hjálp.

5.2.07

Svosem ekkineitt



Er mest að skrifa til að segja að ég fór EKKI í styrk í dag.





Já og hálsinn kom inn í dag eftir þessa fínu helgi eftir nálar og nudd á föstudaginn. Er alltaf svo skrambi góður eftir nálar. Ég og nálar erum nú svoldið góð saman eftir svolítið bumpy start :-)





Fékk líka nálar í hælinn í dag. Fjórða skipti af sex. Fer viku batnandi þó ég sé nú svolítið slæm fyrst á eftir.





Jamm nálar eru galdrar held ég.





Samkvæmt reiknimeistara er ég 1,6 kg léttari en 8. janúar. Það er svo sem ekki slæmt þó heildarárangur síðustu mánaða sé ekki sérlega mikilfenglegur.

Ætli kommentin séu biluð á blogginu mínu?






En þá er bara að halda áfram.

4.2.07

Polli og ég ég og Polli


Polli er búinn að vera með tóman skæting þessa viku. Hann vill þetta og hitt og mér gengur ekki nema hæfilega vel að fylgja honum eftir! Þórunn heldur jafnvel að Polli sé með það að að markmiði að drepa mig - en ég held hann sé nú ekki svo slæmur ;-)


En ég sem sagt er með það markmið að brenna 3800 hitaeiningum og fara að æfa mig ekki sjaldnar en 5 sinnum í viku.


Og á mánudaginn þegar ég var að koma vitinu fyrir kvikindið þá hugsaði ég með mér að ég ætti aldrei eftir að ná því!


En viti men - ég skoho náði því! Að vísu bara með herkjum og ég er ekki alveg viss um að ég fái bikar frá Polla en ég er meira að segja orðin svo sjóuð að mér finnst næstum að maður eigi ekki að fá bikar í hverri viku. Betra að hafa þá takmarkaða umbun ;-).


Styrkur í dag sem sagt. Allt eftir áætlun.


Sófar só gúdd

Sunnudagur og markmið




Haldið þið ekki bara að ég hafi sofið vel aðra nóttina í röð! Að vísu með ýmsum hjálparmeðulum en mér er eiginlega orðið sama um þau! Bara það að leggjast á koddann og sofa í nokkra klukkutíma samfleytt eru forréttindi sem ég get vel hugsað mér að nýta mér á ný.


Ég ætla að fara í Styrk á eftir þar sem markmið næstu viku hljóða þannig að ég á:


Ekki að synda - bara fara í sundleikfimi

Ganga meira

Fara oftar í salinn

Ekki drekka coffein seinnipartinn


Einhvern tímann hefði mér nú þótt þetta vera arfaslök markmið en svona er ég nú skynsöm orðin - sé að þetta verður mér alveg yfrið verkefni því:


Það eru bara sjö dagar í vikunni

Þriðjudagur, mikðvikudagur og fimmtudagur eru hroðalegir dagar og því ekki sérlega líklegir til þess að vera íþróttadrottningardagar ;-)

Það er árshátið á miðvikudaginn

Ég á að heita í námi og er með allt á eftir mér þar - af mjög svo góðum ástæðum!

Og því má ég hafa mig alla við að koma fimm æfingum fyrir í vikunni.


En það eru bjartar hliðar.


Ég get með léttum leik farið í sundleikfimi - það er bara gaman og notalegt amk síðustu skipti. Það geri ég á miðvikudag og föstudagsmorgnum.


Á laugardag fór ég í mega göngutúr

Í dag sunnudag ætla ég að gera góða æfingu í Styrk og fara svo í pottana í lauginni

Á mánudag get ég líka farið í Styrk ef ég haska mér

Þriðjudag hugsa ég að ég geri ekki neitt og eitthvað lítið á fimmtudag. Kannski get ég samt labbað smá - það væri nú gáfulegt! Ef Ragnheiður labbar með Bjart á daginn þá get ég skotist ein og sjálf - vandræðin tengjast hvort sem er því að halda í kvikindið og þjálfa hann í því að vera slakur í taumi -ekki endilega mjög mikil brennsla í því þó það reyni á geðið.


Föstudagur er góður dagur í Styrk - er að vísu farinn að bera mark af því að ég fer í leikfimina um morguninn þannig að seinni hluti brennslunnar er alltaf svolítið strembinn - ;-)


En nú þarf ég að fara að bæta í hraðann og taka betur á til að auka þolið - hef verið í svolítilli kyrrtöðu í vetur.


Bakvið eyrað hvílir svo mataræðið sem þarfnast kannski fyrst og fremst frekari einbeitingar við.


Svona eru markmiðin mín þessa vikuna.


Kannski ætti ég líka að hugsa um að vera ekki stressuð. Ég er svolítið tense þessa dagana. Finnst lífið vera svolítið erfitt og snúið. Og er ekki frá því að það sé rétt mat hjá mér :-).

3.2.07

Margt í mörgu


Sko ég elska samt Óla Stefáns -eða kannski einmitt vegna þess!



Ekki orð meira um handbolta.

Ég er ekki nógu dugleg í mataræðinu. Ég er hins vegar mjög duglega í hreyfingunni þó ég sé ekki eins yfirnáttúrulega dugleg og í sumar og haust en það á nú sér sína eðlilegu skýringu. Ég er í mjög erfiðri vinnu sem tekur út á mér.

Ég þoli ekki að ég sé að borða of margar hitaeiningar!

Af ofansögðu má sjá að ég steig á vigtina í gær! Það eru alltaf mjög slæmir dagar sem fylgja í kjölfarið. Það er alveg sama hvernig mér gengur mér finnst mér aldrei ganga nógu vel. Og þá skiptir engu máli að ég sé með hælspora dauðans og háls sem ber ekki uppi höfuðið. Set það ekki í nokkurt samhengi. Ef ég væri ekki að hreyfa mig svona mikið þá væri ég að þyngjast hugsa ég! Og samt þykist ég vera í einhverju aðhaldi - ja eða ekki...

Er líklega ekki í neinu aðhaldi því ég borða bara næstum það sem mér sýnist!

Ég bjó mér til matardagbók um daginn - sem náði yfir um 10 daga held ég. Þegar ég byrjaði að skrifa í hana ætlaði ég bara að skrifa niður allt það sem ég borðaði en ekki vera að breyta neinu til að fegra hana. Svo átti að hefja gáfulegt át með nýrri bók. Nú er komið að því.

Ekki í dag samt og ekki í gær- fuss og svei! Á morgun fer ég í Bónus og versla gáfulega inn og verð eins og manneskja í febrúar - reyni að taka þetta með trukki.

Baldur var svo sem ekki svo óánægður með bókarskrifið - finnst reyndar að hann hefði átt að vera óánægðari - held hann sé með aumingjagæsku í garð mín! Enda er ég svo sem ekki í neinum firna góðum gír.

Háls og herðar stífari en um langa hríð. Ég fékk nálar í gær og ég á alltaf góðan dag í kjölfarið. En þær virka svo sem ekki mikið lengur en það. En ég svaf fyrir vikið algjörlega dásamlega í nótt með smá hjálp lyfja að auki :-).

Ég fór svo í fínan göngutúr í Þrastarskóg í morgun og brenndi næstum 600 kal - fín ganga það. Sökk og rann og skautaði og því reyndi vel á kálfana. Hælsporinn bara þokkalegur. Við eigum eftir þrjú skipti í nálameðferðinni varðandi hann.

Baldur vill ég hætti að synda og sjái til hvort hálsinn lagist.

Ég fer þá í sundleikfimi, oftar í salinn (veit ekki alveg hvenær ég á að hafa tíma eða orku í það - sundið er nefnilega miklu meira slakandi en helv... salurinn).

Mér finnst ægilegt að hætta að synda. Það er svo gott að fara um kvöldmatarleytið... en það er kannski bara hreinlega ekki gáfulegt...

Ég svo sem hætti því í sumar þegar ég fékk í hálsinn og lagaðist en ég var ekki í sundi í haust þegar ég fékk í hálsinn síðast -en það er kannski ekki til að bæta ástandið.

En ég átti góðan dag í gær - fínan fram að þessu í dag.

Nú fer ég að hvíla mig og kannski get ég lært á morgun. Það væri frábært.

Það væri bara frábært ef mér gæti liðið svolítið betur punktur!

Og svo er ég búin að læra á ownzone hjá Polla. Polli er hins vegar með leiðindi við mig og skilur ekki að brennslupúlsinn minn er frá 96 eða svo - hann er með rugluna varðandi það og ég verð að reyna að koma vitinu fyrir hann.

annars vill hann stundum að ég sé á moderate hjartslætti en ég er alltaf í light að hans mati. Það er eiginlega þar sem okkur greinir á. En ætli mér takist ekki að gera hann meðvirkan eins og alla!

4.1.07

Vinna og kaffipása

Jahá - bara kominn 4. janúar og ekkert komið um áramótaheitin enn! Hvað er kerlan að hugsa! Nú um þau náttúrulega en á bara svolítið erfitt með að setja þau inn því maður verður náttúrulega að stand við þau!

En ég er nú búin að hreyfa mig alla daga þessa árs og synti á gamlársdag þannig að:

Þann fyrsta fór ég í fínu gönguna á Þingvöllum
2. jan fórum við í háskalega hálkugöngu í Hellisskógi og svo fór ég og synti í Hveragerði einhverja litla 600 metra varla verið meira
3. janúar synti ég 800 metra og hljóp svolítið í lauginni og brenndi við það 360 hitaeiningum! Tíhíhí

Í dag... hummm er nú svoldið þreytt sko... en fer nú líklega í sund.

Staðan er annars svona:
Illt í fótunum - framan á þeim sérstaklega, hælsporinn að drepa mig á köflum, höfuðverkur og hálsverkir út í eitt með nokkrum hreyfanleika þó!

Stutt í þunglyndið en ég flýt samt - stuttur dagur á morgun hjá mér og ég kemst í nudd á mánudaginn - það verður frábært.

Stefni á pistil um markmið og áform og það allt á allra næstu dögum :-)

10.12.06

Verkefnið Lífsstílsbreyting Ingveldar


Baldur er stundum að reyna að koma vitinu fyrir mig - alltaf jafnvel og reynir að finna ýmis rök og líkingar máli sínu til stuðnings. Stundum er Ingveldur alveg mát í upphafi tafls og því þarf hann að byrja á því að raða mönnunum upp fyrir hana á ný. Það gerir hann stundum með líkingunni við barn sem er að læra að ganga. En á betri dögum vísar hann til maraþonhlauparans sem þarf að hafa ákveðna áætlun til að hlaupa eftir - ákveðin markmið til skemmri og lengri tíma - það er ekki byrjað á því að demba sér til New York og hlaupa hjá þeim Björk og Grími!

Í mörg horn að líta

Eftir því sem hefur liðið á haustið hefur mér orðið það betur og betur ljóst að þetta verkefni mitt - lífsstílsbreytingin, er ekkert sérlega auðvelt. Það er í sjálfu sér ekki erfitt að mæta í ræktina, einblína á að léttast og það allt saman - ég hef gert það - en það sem er erfitt er að halda út, missa ekki sjónar á því hvert skal haldið - vera viss um að maður vilji ná þangað. Mesta erfiðið er að breyta lífsmynstri sínu frá a til ö from now until eternity. Það er ekki bara mataræðið, heimilislífið, áhugamálin, lífssýnin - heldur það sem mér reynist kannski hve erfiðast - viðhorfið til vinnunnar. Þar þarf meira en lítið að ganga á, áður en ég næ lendingu. Ef maður er ófullnægður á einu sviði smitast það yfir á önnur svið. Maður getur sett upp augnhlífar eins og dráttarklárarnir einblínt á þyngdina, æfingarnar og saltað allt hitt en það kemur þá bara í hausinn á mér seinna. Það er bara ein leið til að gera þetta - og það er með því að taka á öllum hliðum mínum og þær eru margar, margbreytilegar og snúnar sumar hverjar. Kannski eins og hjá okkur flestum. Mesta kúnstin er þó að ætla sér ekki að gera það allt á sama tíma - og á sem skemmstum tíma!

Líkt er Ingveldi og íþróttamanni á leið á ÓL
The Mind Makes a Champion

Nú síðast þegar við Baldur spjölluðum þá var hann mér alveg sammála um það að verkefnið Lífsstílsbreyting Ingveldar væri vissulega erfitt - tröllaukið. Það var ákveðin fróun í sjálfu sér að fá staðfestingu á því fannst mér. Það væri ekki bara minn vesaldómur sem héldi því fram. Af því tilefni benti hann mér á að þetta væri eins og íþróttamaður ákveddi að fara á ÓL. Og mér fannst það nógu merkilega viðlíking til að hugnast hún vel ;-). Lífsstilbreytingin verður mín vegferð til Olympíu.

Það þarf að taka þátt í mörgum mótum, ná mörgum áföngum, þjálfa líkama og kannski ekki síður huga áður en settu marki er náð. Það eina sem truflar mig við þessa líkingu er að líklega hefur íþróttamaður sem ætlar sér stóra hluti traustari undirstöðu fyrir sinni ákvörðun en ég varðandi lífsstílsbreytinguna– ja að því gefnu að hann eigi eitthvað erindi á mótið – geti eitthvað í sinni grein en sé ekki eins og hvert annað nutcase!

Mér finnst ég bara hafa verið ferlega klár að hafa ekkert gert í mínum málum á skalanum almennilega fyrr – ekki eins klár að hafa látið hlutina þróast eins og þeir gerðu á bilinu 15 – 30 en um það er oft seint að fást núna. Ég hefði ekki komist úr sporunum ein – þetta er ekki eins manns verk það er alveg klárt og ekki heldur einhver hugdetta sem manni finnst eins og gæti verið sniðugt að framkvæma! Á einhvern undarlegan hátt hefur mér ekki dottið í hug fram að þessu að snúa ferlinu við, fara úr kyrrstöðu fíkilsins yfir á heilbrigða helminginn. Fyrir vikið er ég þó ekki með 100 skipsbrot á bakinu og veit blessunarlega lítið hvað bíður mín – annars gæti nú hörmungarhyggjan náð yfirhöndinni af enn meiri krafti en fyrir er! Ég hef sem sagt ekki skýra mynd af því að mistakast þetta verkefni í huganum – engin fyrirframgefin úrslit byggð á biturri reynslu.

Grunnurinn skiptir máli

En aftur að grunninum sem ég nefndi áður. Minn grunnur andlega er ekkert sérlega sterkur held ég ef við lítum til þess sem ég þarf að horfast í augu við. Lengi vel hef ég lítið leitt hugann að ókostum mínum og brestum. Hef haldið áfram á því sem ég hef talið mínar sterkar hliðar- falið hitt í algleymi þess sem þykist ekkert vilja af þeim vita nema þegar myrkirð sækir að. Þegar birtir er aftur horft fram á veginn og brestirnir víkja fyrir hinu sem ég get gert. Það þykir orðið nokkuð ljóst að ég er fíkill – það verður víst enginn svona feitur eins og ég nema hann sé fíkill. Mér finnst að vísu ekkert fínt að vera fíkill – myndi gjarnan vilja sleppa við þann stimpil en ég skal alveg venja mig við hann – tækla málin útfrá því. Er ég þá ekki komin með eina afsökunina enn? Ah mér er nú ekki sjálfrátt og því ætla ég bara að fá mér svolítið nammi og ,,njóta" lífsins? Ég tek því svo bara af þolinmæði og umburðarlyndi og geri eitthvað í því þegar ég er í betra standi til að berjast við fíknina? Fíklum er jú oft á tíðum ekki sjálfrátt!

Ekki er nóg með að ég sé fíkill heldur er ég óþolinmóð og óvægin. Ég skal alveg kaupa það að ég sé óþolinmóð og flumbra. Ég t.d. sleit í sundur jólaseríu í fyrrakvöld bara af því mér hugkvæmdist ekki að athuga afhverju hún væri föst – heldur væri ráðið bara að toga fastar. Meira vinnur vit en strit hjá hinum þolinmóðu trúi ég en mér. En ég held ekki óþolinmæðin stjórni lífi mínu, og hún er líka ákveðinn drifkraftur. Og hún er hluti af persónuleika mínum og ég vil helst ekkert breytast mikið í grunninn heldur vera færari um að takast á við sjálfa mig – og þá þarf víst þessa margfrægu þolinmæði og títtnefnt umburðarlyndi.

Glíman núna er sem sagt að finna þennan meðalveg í umburðarlyndinu. Ég held mér sé ekki hollt sérlega mikið umburðarlyndi. En ég má heldur ekki skjóta mig í tánna í hvert eitt sinn sem mér verða á mistök en einhvern veginn finnst mér þau vera óleyfileg hvað mig varða – í sumu að minnsta kosti.

Ofan á allt annað er ég móðursjúk – sem mér finnst nú kannski verst af þessu öllu því það vil ég síst af öllu vera. Sáli reyndi þó að útskýra fyrir mér að þessi móðursýki fælist í næmni fyrir umhverfi mínu og slík en ekki almennri hysteríu – og mér finnst það nú ekki vera neitt ljótt eða slæmt, nema náttúrulega þegar maður verður fyrir slæmum áhrifum vegna þessa. Ég tel hins vegar að þessi næmni sem ég hef – og ég hef mikið af henni það skal viðurkennast, geri mig að góðum kennara en hún getur líka verið slítandi. Og svo nemur maður ekki alltaf allt rétt. Það er náttúrulega ekki gott – þá verður maður kannski svolítið móðursjúkur!

Ég efast um að íþróttamaður sem ætlar sér í fremstu röð hafi þessi ósköp öll, – nema þau séu þá hluti af styrk hans og þori - hann hafi lært að nýta sér skrattakollana sína sér til framdráttar og það er það sem mig langar að gera. Þess vegna fór ég til sálfræðings og þess vegna tel ég mig hafa fullt erindi þangað.

En ég hef líka kosti sem hjálpa: Ég get séð skondnu hliðarnar á málunum, ég er úrræðagóð, ég horfi á heildina, ég hef kroppinn í verkefnið, ég hef líka keppnisskap þó ég vilji helst ekki viðurkenna það og kunni lítið með það að fara! Ég get hrundið ótrúlegustu verkefnum af stað og það sem meira er ég get fylgt þeim eftir (ef ekki áður þá héðan í frá ;-)). Ég er dugleg!

Meðganga lífsstílsbreytingarinnar

Það eru komnir 9 mánuðir – heil meðganga síðan ég fór fyrst í salinn. Það telst ekki langur tími af mannsævinni og það er ekki langur tími í samanburði við þann tíma sem ég eyddi utan ræktarinnar.

Mér finnst þetta samt vera langur tími – og mér finnst eins og mér hafi átt að miða lengra en raun ber vitni. Ég sit hér og hef ekkert hreyft mig í síðustu viku – hvorki gengið úti, farið í salinn, né synt. Ét sælgæti núna – þó skammturinn hafi átt að vera etinn í gær og það sem verra er mér finnst eins og ég standi frammi fyrir þeim valkosti að halda áfram að éta nammi og hætta að hreyfa mig. Mér finnst það raunverulegur möguleiki að hætta að leggja þetta á mig – það sé hreinlega ekki framkvæmanlegt að gera þetta hvort sem er og því sé það í boði að halda áfram fyrri háttum, vinna, reyna að bæta mataræðið og hreyfa mig á sumrin.
Ég veit samt alveg hvað ég vel – ég vel að hreyfa mig og halda áfram að róa með í átt að bættri heilsu en afhverju er ég að sökkva? Og hvenær hefst ferðin upp á yfirborðið?

Ætti ég að hafa farið vigtina – mér finnst eins og hún veiti ákveðið aðhald og ekki veitir mér af aðhaldinu? Eða á ég að hugsa um að ná mér á flot og ekki vera að lemja á mér fyrir það sem ég veit að er ekki í lagi – einbeita mér að því að laga það og sækja svo fram og hafa þá vigtina með mér í sókninni frekar en að hafa hana sem andstæðing eins og staðan er óneitanlega núna?

Mér finnst hver dagur sem ég léttist ekki, hver vika sem ég stend mig ekki vera nagli í líkistuna – sönnun þess að ég geti þetta ekki. Sé ekki fær um að breyta mínum háttum. Sé aumingi. Ég horfi til þess að ég ætti að vera orðin 24 kílóum léttari 1. apríl 2007 en ég var 1. apríl 2006. Hvað ef ég verð það ekki? Þá hef ég fullkominn stimpil á rassinum sem á stendur auli!

En um leið og ég skrifa þetta þá kannski finnst mér nú kannski að ég nái þessu... 2 kg á mánuði og það eru kannski farin 15 – 20 kg þá kannski á ég möguleika. Þegar ég set dæmið svona upp...
Kannski bara get ég þetta? Kannski er ég bara fær um að gera eitthvað í mínum málum eftir allt saman! Kannski gengur þetta bara svona – niðursveifla og íhugun, sókn og dirfska.

Nú stend ég bara frammi fyrir því hvort ég fer í Styrk á eftir eður ei á eftir. Eða nei – ég stend ekki frammi fyrir því. Ég stend frammi fyrir því að ég fer í Styrk á eftir. (Fór ekki þar sem ég sofnaði fram á lyklaborðið eða því sem næst. Annað stendur óbreytt - óhaggað. Fyrri einbeitni verður tekin upp!)Næsta vika bíður með hreyfingu og vonandigóðri líðan. Vonandi fær Bjartur að njóta góðs af því – hann er búinn að vera í hálfgerðri einangrun því enginn labbar með hann ef ég geri það ekki. Ef ég næ ekki að hreyfa mig eins og hér segir hafa markmiðin verið of mörg. Markmið þar næstu viku gætu verið önnur bæði með tilliti til þess hvernig gengur að ná þessum en þó ekki síður breyttar aðstæður, jólafrí og það allt saman.

Markmið

Sem sagt markmið næstu viku:
Sofa – sem hefur vel að merkja gengið vel síðustu 3 nætur eða svo þó ég vakni ótrúlega oft sérstaklega fyrri partinn.
Slaka á í vinnunni – Róm var ekki byggð á einum degi
Huga vel að mataræði – muna 1 nammidag!
Svona ætla ég að hreyfa mig því ég ætla að vera dugleg næstu viku - ekkert múður.
Sunnudagur – Styrkur
Mánudagur – morgunbrennsla – helst ganga með Bjart.
Þriðjudagur – spinning
Miðvikudagur – morgunbrennsla og/eða
Fimmtudagur – morgunbrennsla

Föstudagur - salur

3.12.06

Að mörgu þarf að hyggja

Í upphafi skal nefna að það eru svei mér margir vöðvar í mannslíkamanum. Og það er heljarinnar vinna að átta sig á þeim! Hvar harðsperrurnar mínar voru hér um daginn og leynast enn er ekki gott að segja jafnvel þó ég sé búin að skoða þessa síðu hér ásamt mörgum öðrum. En amk er maður með eitthvað sem heitir á ensku transverse abdominis og það eru vöðvar sem liggja þvert á og eru inn í manni :-) ekki svona utanáliggjandi þeas ;-). Mikilvægir í öndun og svona - en ég skil mjög vel núna afhverju ég tók aldrei lífeðlisfræði hér í gamla daga eða neitt því tengt. Þetta bara hæfir ekki mínum gáfum - þær liggja annars staðar.



Stærstu fréttirnar eru að ég er komin með jólaskóna - og þeir eru skoho flottir og í því samhengi væri rétt að nefna að ég er viss um að ökklinn á mér er 5 sm mjórri (þeir báðir væntanlega) en þeir voru. Ég hefði held ég ekki getað verið í þessum skóm um síðustu jól... hælanna á þeim vegna og svo liggja þeir líka um ökklann - svoldið spes skór skoho.

Önnur stór frétt er að ég fór að sofa bara um 9 held ég í gær - ég þurfti nú að hafa svolítið fyrir því að sofna og svo hringdu hinir og þessir alveg fram undir 23 og svo var ég að hafa áhyggjur af börnunum mínum fram eftir nóttu - öðru þeirra meira þó. Nú svo vaknaði ég oft og mörgum sinnum og þurfti að lemja mig niður og segjast víst vera þreytt og alltaf sofnaði ég aftur. Nú svo vaknaði ég hálf sex og fannst það góður tími til að fara á fætur en ákvað að snúast hugur og segja mér að ég þyrfti að sofa meira ég væri svo uppgefin - sem ég er, ég hef held ég aldrei á ævinni verið þreyttari en ég er núna. Ég er svo uppgefin að mér finnst ég vera stappaður banani.

Og ég fór því ekki á fætur fyrr en 8 og nú er ég að láta mig kvíða svoldið fyrir að fara í Styrk því ég á mjög mikið eftir að gera í litla jólahúsinu mínu - og ég gæti litið á það sem heilsurækt að hendast hér um allt út og suður...

En ég fer... Nógu fjandi er ég óeinbeitt þó ég afskrifi það nú ekki að fara.

Ég verð að fara að gera matardagbók - ekki afþví ég borða svo óhuggulega vitlaust heldur afþví ég er ekki einbeitt - ég geri vitleysu og þykist svo ekkert vita af því!

En ein góð saga. Mataræðið í gær var svona og svona - samanstóð of mikið af brauði svo mikið er víst en ég mundi þó eftir að borða við og við. Nú svo í gærkveldi þurfti mín að fá sér kvöldmat náttúrulega og skondraðist út í Horn að versla því hún Inga getur ekki enn farið í Bónus eins og vitiborin manneskja - hef held ég 4 vikur til þess að ná því markmiði - annars framlengist það - hef lært eitt og annað um markmið, en ekki viss um að sá lærdómur hæfi mér sérlega vel. Nú þar sem dagurinn var erfiður -föstudagurinn eiginlega enginn nammidagur og ég bara fullverðug þess að fá mér allt mögulegt var stefnan tekin á sukkferð mikla. Og víst var keypt ýmislegt heimskulegt! En ekki kvaðradrótin af því sem ég ætlaði að fara heim með því mig langaði sko í nammmi!

Ég keypti harðfisk og át hann með hóflegu smjöri, ég keypti litla pissusneið, camembert, vínber og epli, lax og meira brauð sem ég borðaði ekki! Ekki svo slæmt af mestu sukkverslunarferð síðari ára? Ég viðurkenni að það var kannski óþarfi að borða ALLLAN ostinn... en c'est la vie. Ég naut þess amk - og er ekki heilmikið kalk í honum ;-).

Viljið þið svo keyra varlega elskurnar mínar! Ragnheiður fór í bæinn í gær og var svolítið fyrr á ferðinni en það vesalings fólk sem lenti í slysinu í gær. Ég lét hana fara á Súbbanum með öll sín drif og varnir og púða og hvur veit hvað. Það var leiðinlegt færi og þá er best að pakka þeim sem manni þykir vænst um í betri bílinn á heimilinu. Það er amk ekki hægt að geyma þau í glerboxi þó stundum langi mig það mest af öllu.

En nú er best að leggja í smá tiltekt áður en salurinn tekur við. Dugir ekki annað en halda einhverri smá sjálfsvirðingu í þessu öllu saman. Nóg er ástandið slæmt þó maður gefi ekki allt upp á bátinn.

Ég er enn þeirrar skoðunar að ég hef ekki áhuga á því að vera mjög umburðarlynd gagnvart aumingjaskapnum í sjálfum mér. Því hann er bara of mikill á köflum til þess og hann er líka svo vel gefinn - á auðvelt með að tala mig til og því dugir ekkert umburðarlyndis dót á hann!

30.11.06

Magavöðvar og leti

Sko - það er ekki hægt að skilja þetta mannslíkamadót og alls ekki þá minn. Ég vil bara fá svona einhverja einfalda mynd af vöðvum mannslíkamans en það er eins og það sé verið að drepa þetta internet með því að biðja um það!

Hvað er að þessum íslensku heilsufríkum að hafa ekki almennilega síðu um þetta einhvers staðar. Nú sem sagt þarf ég að fara að læra um þessa vöðva all by myself og það er ekki eins og ég skilji eitthvað í þessu! Veit ekki einu sinni að ég er með vöðva nema þá í kálfunum og ekki veit ég hvernig þeir liggja eða hvers vegna! Dj...

Svo bara allt í einu og skyndilega er ég með einhverja ,,verki" í maganum og kemst ekki að neinni annarri niðurstöðu en að þetta séu harðsperrur eftir gríðarlegar magaæfingar á sunnudaginn og þennan líka litla spinningtíma dauðans á þriðjudag!

En veit ég og trúi að það sé til vöðvi innan í mér sem liggur þvert á kviðinn og inn í mig einhvern veginn! Vissi ég að það væru vöðvar þversum í mér inn að ... einhverju? 1 cm breiður eða svo? Nei það vissi ég ekki! OG VEIT EKKI ENN því þetta internet getur ekki sýnt mér neitt um þetta þannig að ég skilji það! Sigurlín segir að það sé til svoleiðis harðsperrur og þá líklega vöðvi! Trúi henni nú ekki alveg - vil sjá almennilega mynd af þessu svo ég haldi ekki að ég sé með samgróninga ;-).

Ég geri áreiðanlega aldrei nóg - ég fæ svo sjaldan harðsperrur - en ég vil nú meina að það sé vegna þess að ég sé svo dugleg að teygja!
´
Afrekaskráin mín í dag:

nennti ekki í búð
Fór ekki í morgunbrennslu
alls ekki í spinning
ekki í afternoon brennslu
ekki út með hundinn sem er í stofufangelsi
Mataræði - eplakaka með rjóma,kjúklingabitar, franskar, hmmmm já og nammi á kennarafundi! Borðið fulla lúku af súkkulaðirúsínum í gær - já og svolítið af piparkökum í dag!

Brilliant og ég get ekki einu sinni sagt með sæmilegri festu að mér þyki það miður. Ég er búin að missa alla einurð og einbeitingu - fer í Styrk ef ég man eftir því - hmm hvar eru íþróttabuxurnar? Já eða skórnir - iss piss geri bara það sem mér sýnist. Lífið er hvort sem er svo snúið um þessar mundir ha hu hummm

OG ÉG VAR AÐ FREGNA AÐ STYRKUR ER LOKAÐUR FRÁ 20 DES TIL GUÐ MÁ VITA HVAÐ! Christ og ég sem ætlaði að vera svo dugleg um jólin!

shit

Og svo get ég ekki einu sinni sagt að afköstin í vinnunni séu svo mjög gasaleg!

Lengi lifi Coke lite - vatn er vont og nammi gott! Elda er óþarfi og Bónus er óvinur númer 1 - 100. Jább hún Inga litla er á góðri leið með bros á vör og kampakát. Ætlar í bólið snemma og láta sem ekkert sé því það koma hvort sem er alltaf svona tímabil þar sem hlutirnir ganga ekki vel - og það er bara eðlilegt og ekki er hægt að halda sama tempói alltaf og það er bara í lagi að slaka aðeins á - Maður má nú ekki ofgera sér. Já og nóvember er nú erfiðasti mánuðurinn í kennslu!

oh í svona niðursveiflu er svo mikilvægt að halda haus og vera umburðarlyndur og þolinmóður!

Oh yeah

Er ekki bara kaffi krús eftir skóla á morgun og enginn Styrkur? Tjú tjú trallalala

Life is a wonderful thing

Fíkn, offita, þunglyndi, móðursýki, orkuleysi, búseta í skýjaborgum, kenna öðrum um, allt eru þetta gjafir sem svo gaman er að vinna með - styrkja persónuleikann, auka manni umburðarlyndi og þroska. þetta er allt lífsreynsla.

En kvíðn er konan ekki og það er nú fyrir mestu!

Ég hef samt eiginlega engan áhuga á því að verða umburðarlynd og þolinmóð - ég meina hver yrði ég þá? Ekki hún Inga og ég hef svo sem engan áhuga á að segja skilið við hana.

En nú er ég farin í bólið að leas bók um óþolinmæði!

Og ég bara verð að fara að setja hann Bjart ofar í forgangsröðina - þetta er ekki að gera sig!

Og auðvitað fer ég í Styrk og eitthvað fleira sem ég man ekki í augnablikinu af markmiðslistanum - en mig rámar í að mér hafi verið bent á að bæta svefninn. Nú fer ég í það.

Lof jú still

Inga