2.5.08
Góður dagur
Ég er byrjuð að borða Reductil aftur. Ætla að sjá hvort ég sé þroskaðari en í fyrra! Gangast í það að léttast. Jamm það get ég og geri hér með ;-).
Annars hef ég tekið afdrifaríka ákvörðun. Ég er lægsta talan sem ég vigtast (ja nema sko í kringum þessa USA ferð - þá nefnilega þyngdist ég - en er sem sagt jafn þung núna og áður en ég fór.)
Ég nefnilega fer niður - þyngist svo aftur smá og bwaaaahhhh verð rosa fúl en næ svo alltaf lágu tölunni aftur innan tíðar. Með þessu hef ég forðað mér frá algjöru fárviðri síðustu viku því eftir að hafa hrunið niður um 2 kg á milli vikna ruggaði svo aftur upp en var alveg sama híhí og svo viti menn þá var ég bara orðin 2,7 kg léttari í dag ha hó hí hó - flott hjá mér og mér alveg sama um þetta rugg mitt.
Það er svo gott að taka réttar ákvarðanir.
Held að Öldungamótið sé núna um helgina - í blaki. Ég er nú ekki þar... kannski á næsta ári.
Nú jæja.
Ég er ekki á neinum verkjalyfjum - ætla að prófa að vera laus við þau og sjá hvernig lappirnar á mér bregðast við. Gott að vita af Ibufen og Celebra ef í harðbakkann slær.
En það er líka gott að tékka aðeins á þessu. Ég er ekkert alveg afleit sko.
Jæja en mont dagsins er styrkferð og mega brennsla - loksins. Frábær æfing - fyrst og fremst vegna þess að ég nennti ekki - ætlaði ekki og þóttist svo bara ætla að gera smá til málamynda - en nei - konan tók rosaæfingu og brenndi eins og berserkur. Geggjað. Sigur vikunnar.
Og svo eru það morgungöngurnar sem eru öllu betri.
Verst með þennan rósaroða í kinnum mínum er er´að gera mér lífið leitt. Já og svo er náttúrulega svooooldið leiðinlegt að húðin mín er steinhætt að hafa nokkurn sveigjanleika - oj bara
1.5.07
Verði ljós

11.2.07
Það er ekkert eins og
Það er eitt af þessum undrum sem fylgir því að ganga meira en áður - líkurnar á því að detta aukast verulega með hverju skrefi - þó þær svo aftur minnki kannski svolítið líka - með aukinni færni í göngu.
Argh pargh ég datt á leiðinni út í bíl áðan - á einhverjum helv... hálkubletti - klessu. Við frostmark er mjög leiðinlegt hitastig. Argh pargh, þoli ekki að detta. Vil bara geta staðið í lappirnar. En já
Komin út í skóla, hæfilega aum eftir fallið - en svo fer ég í Styrk á eftir og sé svo til hvað ég geri meira.
Og ég sem var svo glöð að vera sæmileg í hálsinum en slingurinn áðan var ekki til bóta... En ég er amk ekki með glerbrot í tánni lengur.
Og Hekla er falleg héðan frá Sunnulæk. já og eitt og annað fleira gæti ég fundið til
10.2.07
Mikið búin að hugsa í dag
Svolítið vor í lofti!Stjörnuspáin mín - alltaf svolítið skemmtileg ;-)
You will not allow yourself to be sidetracked by minor considerations today, Inga; you'll go straight to the heart of matters. There's some likelihood that you have given little consideration to your environment and working conditions, and instead are concentrating on the goal you've set for yourself. When an Aries woman sets a goal, she's a force to be reckoned with, as we all well know!
Hér kemur svo lýsing á svefni mínum síðustu nótt - kannski það séu utanaðkomandi ástæður fyrir svefnleysi - eða svefnrofum mínum?
6.2.07
Fara yfir um

Ég er svona að velta því fyrir mér...
Það er nebbilega árshátíð og svo námsmat í næstu viku! Foreldraviðtöl og hvur veit hvað!
Svo er ég líka að velta því fyrir mér hvort ég eigi að verða vitlaus á sælgætisáti og kvöldnasli sem ég taldi mig algjörlega vera búna að venja mig af. Mér finnst ekkert galið að fá mér mjólk og kex (ætli það séu nema svona 4 ár síðan ég borðaði kex síðast sem kvöld nasl). Nammi og brauð, já nefnið það bara. Hvað finn ég í neðstu skúffum, innstu skápum - já eða jafnvel í frysti eða inni hjá krökkunum. Name it ég er til!
Matur - æ ég hef ekki neinn sérlegan áhuga á honum. Þetta ástand á mér kemur í kjölfar þess að ég ætlaði að verða sérlega einbeitt í mataræði. Jamm - þannig fer það nú!
Ég held þetta sé því ég get ekki sofið vegna hálsins - eða jafnvel vegna einhverja af þessum lyfjum sem ég er að éta! Er svo óglatt seinni partinn en fýrist upp matarlystin um miðnættið - já og hvað er ég að gera vakandi þá?
Og ekki hreyfði ég mig í dag. Það er allt úr lagi gengið þar sem ég má ekki fara að synda - og ekki nenni ég út að labba í þessum kulda - get jafnvel talið mér trú um að ég myndi bara verða enn verri við kuldann!

Jamm - best að rétta úr kryppunni, kýla hálsinn aftur og vagga minna.
Mér finnst enn ekki nema hæfilega flott að vera vaggandi í göngulagi og með framstæðan háls. Minnir óþarflega á hænu satt að segja!
Engin hreyfing í dag - en nálar. Er að vonast til að ég komist í gegnum morgundaginn með þeirra hjálp.
3.2.07
Margt í mörgu

Ekki orð meira um handbolta.
Ég er ekki nógu dugleg í mataræðinu. Ég er hins vegar mjög duglega í hreyfingunni þó ég sé ekki eins yfirnáttúrulega dugleg og í sumar og haust en það á nú sér sína eðlilegu skýringu. Ég er í mjög erfiðri vinnu sem tekur út á mér.
Ég þoli ekki að ég sé að borða of margar hitaeiningar!
Af ofansögðu má sjá að ég steig á vigtina í gær! Það eru alltaf mjög slæmir dagar sem fylgja í kjölfarið. Það er alveg sama hvernig mér gengur mér finnst mér aldrei ganga nógu vel. Og þá skiptir engu máli að ég sé með hælspora dauðans og háls sem ber ekki uppi höfuðið. Set það ekki í nokkurt samhengi. Ef ég væri ekki að hreyfa mig svona mikið þá væri ég að þyngjast hugsa ég! Og samt þykist ég vera í einhverju aðhaldi - ja eða ekki...
Er líklega ekki í neinu aðhaldi því ég borða bara næstum það sem mér sýnist!
Ég bjó mér til matardagbók um daginn - sem náði yfir um 10 daga held ég. Þegar ég byrjaði að skrifa í hana ætlaði ég bara að skrifa niður allt það sem ég borðaði en ekki vera að breyta neinu til að fegra hana. Svo átti að hefja gáfulegt át með nýrri bók. Nú er komið að því.
Ekki í dag samt og ekki í gær- fuss og svei! Á morgun fer ég í Bónus og versla gáfulega inn og verð eins og manneskja í febrúar - reyni að taka þetta með trukki.
Baldur var svo sem ekki svo óánægður með bókarskrifið - finnst reyndar að hann hefði átt að vera óánægðari - held hann sé með aumingjagæsku í garð mín! Enda er ég svo sem ekki í neinum firna góðum gír.
Háls og herðar stífari en um langa hríð. Ég fékk nálar í gær og ég á alltaf góðan dag í kjölfarið. En þær virka svo sem ekki mikið lengur en það. En ég svaf fyrir vikið algjörlega dásamlega í nótt með smá hjálp lyfja að auki :-).
Ég fór svo í fínan göngutúr í Þrastarskóg í morgun og brenndi næstum 600 kal - fín ganga það. Sökk og rann og skautaði og því reyndi vel á kálfana. Hælsporinn bara þokkalegur. Við eigum eftir þrjú skipti í nálameðferðinni varðandi hann.
Baldur vill ég hætti að synda og sjái til hvort hálsinn lagist.
Ég fer þá í sundleikfimi, oftar í salinn (veit ekki alveg hvenær ég á að hafa tíma eða orku í það - sundið er nefnilega miklu meira slakandi en helv... salurinn).
Mér finnst ægilegt að hætta að synda. Það er svo gott að fara um kvöldmatarleytið... en það er kannski bara hreinlega ekki gáfulegt...
Ég svo sem hætti því í sumar þegar ég fékk í hálsinn og lagaðist en ég var ekki í sundi í haust þegar ég fékk í hálsinn síðast -en það er kannski ekki til að bæta ástandið.
En ég átti góðan dag í gær - fínan fram að þessu í dag.
Nú fer ég að hvíla mig og kannski get ég lært á morgun. Það væri frábært.
Það væri bara frábært ef mér gæti liðið svolítið betur punktur!
Og svo er ég búin að læra á ownzone hjá Polla. Polli er hins vegar með leiðindi við mig og skilur ekki að brennslupúlsinn minn er frá 96 eða svo - hann er með rugluna varðandi það og ég verð að reyna að koma vitinu fyrir hann.
annars vill hann stundum að ég sé á moderate hjartslætti en ég er alltaf í light að hans mati. Það er eiginlega þar sem okkur greinir á. En ætli mér takist ekki að gera hann meðvirkan eins og alla!
2.1.07
Áramót og sitthvað fleira
Ég hef eiginlega verið að humma það fram af mér að byrja hér á einhverjum pistli um síðasta ár og hið nýja sem nú trítlar inn eftir gangi eilífðarinnar. Strax er einn dagur að baki og annar framundan. Sá þriðji er á morgun og þá er eins og hið ókomna hætti að vera einmitt það heldur verði að hversdagsleika nús-ins.
Ég hef aldrei verið sérlega hrifin af gamlársdegi. Hann og nýársnótt hefur verið mér kvöð frekar en nokkuð annað - þessi skylda manns að skemmta sér, vera helst svolítið hífaður - já eða mikið, vera saman og síðast en ekki sísta óviðjafnanlega glaður en þó agnarsmá daufur í bland. Ég hef heldur aldrei - fyrr en nú áttað mig á þessu fári um að áramótin séu skil - nýtt upphafi og því beri að íhuga og ígrunda um leið og horft er fram á veginn og kúrsinn tekinn. Fyrr en nú... Þessi áramót skil ég þetta einhvern veginn miklu betur - og mér finnst meira að segja eins og ég bara verði að íhuga og ígrunda alveg undir drep til þess að nýta mér þessi ósýnulegu mannanna verk - áramótin sem best.
Hin síðari ár hef ég náð nokkurri sátt við uppistandið sem á að ríkja þennan dag. Fundið minn farveg- eyði deginum í að elda einhvern ótrúlega góðan mat, stundum dettur einhver í heimsókn og við spjöllum saman á meðan ég brytja grænmetið og drekkum jafnvel freyðivín eða Blush með.
Það er svo sjaldan sem ég elda eitthvað gott eða gef mér tíma í það og því er þessi eldamennska á síðasta degi ársins kærkomin og hreinlega notaleg. Nú síðustu tvö ár höfum við farið með Bjart útfyrir á í bílnum og setið þar og horft á dýrðina. Í ár sluppum við, við að gefa Bjarti róandi eins og í fyrra enda er hann ekki nærri eins hræddur og t.d. Trítla var og í reynd bara svolítið rólegur yfir þessu öllu saman nema þegar gólfið í húsinu nötraði við sprengjudyninn.
Í ár var flugeldadýrðin sérlega glæsileg og það var ótrúlegt að sjá þennna ljósaleik mannanna bera við sjóndeildarhringinn. Í fyrsta skipti í 21 ár keyptum við enga flugelda hjónin. Fengum þetta bara beint í æð frá samborgurum okkar hér í Árborg - takk fyrir það!
En já...
Eins og þið sjáið þá er ég að humma uppgjörið og framtíðina svolítið fram af mér. Þetta er greinilega ekki alveg einfalt mál! Síðasta ár var svona með þeim flóknari á lífsleiðinni, ekki vegna atburðarrásarinnar heldur hins hvað stúlkan ég hugsaði og fékkst við í eigin kolli :D.
Þess vegna fannst mér svo upplagt að hefja árið á Þingvöllum. Viðurkenna og umlykja þá staðreynd að þeir eru mér kærir þó þar sé nú ekkert nema samkomustaður fólk. Bærinn orðinn að veislusal og sumarhúsi þeirra sem ráða, kirkjan músétin, skrefin okkar allra löngu horfin úr garðinu og trén vaxin yfir önnur. Þetta er samt minn staður þó hann sé almenningseign um leið. Enginn getur tekið - og enginn er heldur að reyna það, minningarnar frá mér sem margar hverjar eru svo bundnar öðru fólki, t.d. Björk, systkinum mínum og einfaranum mér. Stundum finnst mér eins og Núpverjarnir telji sig eina eiga minningar - vísast af umkomuleysi mínu þar sem ég kom ekki til sögunnar fyrr en löngu síðar. Stundum hefur mér líka fundist að ég ætti engar minningar ein og sér - allt sem ég gerði sem barn hafi verið upplifað af öllum mínum systkinum - bara fyrr. En auðvitað er það ekkert þannig - ég á mínar minningar sem eru bundnar órjúfanlegum böndum, samofnar Þingvöllum.
Ég labbaði endalaust um vellina, gjánna, túnin og vestari hallinn - heilu og hálfu dagana var ég í leiðöngrum oftast ein. Ég skil það núna afhverju mér finnst hreyfingin góð, göngurnar um náttúruna betri en þær sem ég fer eftir steinsteypunni. Ganga er hreinlega órjúfanlegur hluti af bernskunni minni. Ég held að varla hafi liðið sá dagur að ég fór ekki út að labba á Þingvöllum. Enda sagði mamma að það hefði komið snemma í ljós hve mikill göngugarpur ég var. Hún sagðist aldrei hafa séð barn vera jafn duglegt að labba og mig - Dísu og Ása til mikillar armæði vænti ég því oftast var ég kjagandi á eftir þeim - algjörlega óbeðin og ekki sérlega velkomin.
Og nú held ég að ég hvíli um sinn og íhugi aðeins betur 2006 - kem svo innan tíðar með vangaveltur mínar þar um. Þar má finna grunninn að 2007 svo mikið er víst. Þar byrjaði ,,lífsstílsbreytingin" - orð sem mér leiðist nú svona frekar en verknaðurinn er betri :-) þó seint verði hann sagður auðveldur.
1.1.07
Þingvallaferð í upphafi árs
Við Palli og Bjartur fórum á Þingvöll í dag í algjörlega yndislegu veðri. Mér fannst gott að hefja árið á þessum stað sem var mér svo kær og er það líklega enn. Þingvellir eru líklega eins og minn vinstri fótur. Órjúfanlegur hluti sem ég veit varla af.
Veðrið var algjörlega stórkostlegt og birtan - ... já birtan, - hún var eins og hún getur hvergi verið nema á Þingvöllum held ég svei mér þá. Dásamlegur dagur sem sagt. Góð byrjun og góð ganga þó herra Bjartur hafi náttúrulega ekki verið alveg upp á sitt besta!
Hér má finna myndir!
Verst að ég var ekki með púlsmælinn :-/
Og svo fórum við til Bangsa og Steinunnar á Heiðarbæ í kaffi!
27.12.06
Jólin eru komin
Sumir eru svo óheppnir að þurfa að vera að vinna í dag. Óskaplega er ég fegin að þurfa þess ekki enda sprengurinn fyrir jól þannig upp settur að maður þarf að hvíla sig í marga marga daga eftir hann!
Stundum hugsa ég - alltaf eftir á, afhverju voru þessi ósköp öll í gangi hjá mér? Hefðu gjafirnar ekki mátt vera færri, tiltekin tilkomuminni (svarið við því er nú alltaf strax og í hvelli, nei minni mátti hún nú ekki vera). Snúast jólin um öll þessi læti sem eru í mér fyrir jólin? Kannski hefði verði meira gaman að vera minna þreytt á aðfangadag og geta notið alls aðeins betur.
Í ár hugsaði ég þetta svolítið fyrir jólin. Reyndi að vera skynsöm en aðstæður spila nú ekki alltaf með mér í liði og gera mér svolítið erfitt fyrir. Og svo finnst mér þar að auki svolítið gaman af veseni ;-).
Ég vil gjarnan geta tekið almennilega til í jólafríinu - ekki endilega útaf jólunum heldur hinu að þá er ég í fríi og ég fer ekki í frí aftur fyrr en um páska. Ef ég kemst ekki niður úr bunkanum í þessu fríi þá kemst ég það bara alls ekki neitt!
En þessi sprettur tekur svolítið á - ég skrifa það þó ekki á jólin - ég elska jólin enda ekki furða:
Á aðfangadag var besti hamborgahryggur í heimi í matinn, eldaður eftir kúnstarinnar reglum sem margborgðu sig!
Ég fékk svo fallegar gjafir að ég man ekki eftir öðru eins - það skilar sér undir jólatréð að eiga tvö vinnandi börn ;-) elsku litlu grjónin mín- en nánar um gjafirnar síðar!
Á jóladag horfði ég á sjónvarp og las. Við Palli fórum svo í heljarinnar göngu um Þrastaskóg þveran og endilangan - heldur of langan þar sem flóð komu í veg fyrir að við færum okkar venjulega 40 mín göngu og við vorum því í rúman klukkutíma. Færið var ömurlegt - holklaki og drulla og því reyndi mikið á þó ekki væri farið hratt yfir :-). Að því loknu fengum við okkur hangikjöt hjá tengdó og beint í bólið þar á eftir að hvíla mína þreyttu fætur.
Í gær lá ég og horfði á myndir, las og svaf allan heila daginn og kunnu því svona líka ágætlega. Og nú er ég að fara út að hjóla. Reyna að losna við þessar ókennilegu gastegundir sem hafa heltekið meltingarveginn í mér!
Ég held reyndar að hangikjöt og hamborgarahryggur sé eitraður matur. Getur bara ekki verið hollur!
17.12.06
Góðan daginn!

Það eru 3 dagar eftir í skólanum.
Og ég á eftir að gera mjög margt:
- Kaupa allar jólagjafirnar og sýsla með þær - pakka inn og koma á sinn stað
- Skrifa jólakortin - öll 70 eða hvað þau eru
- Gera nokkrar jólagjafir sem mér finnst endilega að ég ætti að gera!
- Kaupa allt inn til jólanna
- Finna á mig einhver föt sem ég get verið í sem og fyrir Pál
- Vorkenna Páli svolítið - það er heilmikil vinna skal ég segja ykkur
- Athuga með jólatré - afhverju langar mig allt í einu í gervijólatré - nokkuð sem ég hef aldrei þolað?
- Hætta að vera svona þreytt - afhverju er ég svona þreytt? ÉG meina hvers þreyttur getur maður verið.
Verst af öllu er að ég er á sælgætisfylleríi. Hef ekki guðmund um hvernig ég á að stöðva það. Og Styrkur er svo ógó staður að ég get ekki hugsað mér að stunda neina hreyfingu þar innan daga.
Áformin eru þó fögur og fín - sund og göngur næstu daga. Ég treysti á að Páll hjálpi mér við að koma mér af stað í þær - því mig svo sannarlega veitir ekki af hvatningunni og jafnvel toginu út fyrir hússins dyr.
En nú ætla ég að smyrja kremi á sörur, kíkja á pippmarengeið og jafnvel finna til handavinnuna og stilla henni upp á vel sýnilegan stað og ég geti gripið í hana á milli þreytuofsakastanna.
Lof jú Inga þreytta sem er búin að fatta allt mögulegt en er nú ekki farin að nýta sér það á nokkurn hátt - ja nema þá þannig að ég er ekki að drepast úr geðvonsku - bara þunglyndi ;-)
10.12.06
Verkefnið Lífsstílsbreyting Ingveldar

Í mörg horn að líta
Eftir því sem hefur liðið á haustið hefur mér orðið það betur og betur ljóst að þetta verkefni mitt - lífsstílsbreytingin, er ekkert sérlega auðvelt. Það er í sjálfu sér ekki erfitt að mæta í ræktina, einblína á að léttast og það allt saman - ég hef gert það - en það sem er erfitt er að halda út, missa ekki sjónar á því hvert skal haldið - vera viss um að maður vilji ná þangað. Mesta erfiðið er að breyta lífsmynstri sínu frá a til ö from now until eternity. Það er ekki bara mataræðið, heimilislífið, áhugamálin, lífssýnin - heldur það sem mér reynist kannski hve erfiðast - viðhorfið til vinnunnar. Þar þarf meira en lítið að ganga á, áður en ég næ lendingu. Ef maður er ófullnægður á einu sviði smitast það yfir á önnur svið. Maður getur sett upp augnhlífar eins og dráttarklárarnir einblínt á þyngdina, æfingarnar og saltað allt hitt en það kemur þá bara í hausinn á mér seinna. Það er bara ein leið til að gera þetta - og það er með því að taka á öllum hliðum mínum og þær eru margar, margbreytilegar og snúnar sumar hverjar. Kannski eins og hjá okkur flestum. Mesta kúnstin er þó að ætla sér ekki að gera það allt á sama tíma - og á sem skemmstum tíma!
Líkt er Ingveldi og íþróttamanni á leið á ÓL
The Mind Makes a Champion
Nú síðast þegar við Baldur spjölluðum þá var hann mér alveg sammála um það að verkefnið Lífsstílsbreyting Ingveldar væri vissulega erfitt - tröllaukið. Það var ákveðin fróun í sjálfu sér að fá staðfestingu á því fannst mér. Það væri ekki bara minn vesaldómur sem héldi því fram. Af því tilefni benti hann mér á að þetta væri eins og íþróttamaður ákveddi að fara á ÓL. Og mér fannst það nógu merkilega viðlíking til að hugnast hún vel ;-). Lífsstilbreytingin verður mín vegferð til Olympíu.
Það þarf að taka þátt í mörgum mótum, ná mörgum áföngum, þjálfa líkama og kannski ekki síður huga áður en settu marki er náð. Það eina sem truflar mig við þessa líkingu er að líklega hefur íþróttamaður sem ætlar sér stóra hluti traustari undirstöðu fyrir sinni ákvörðun en ég varðandi lífsstílsbreytinguna– ja að því gefnu að hann eigi eitthvað erindi á mótið – geti eitthvað í sinni grein en sé ekki eins og hvert annað nutcase!
Mér finnst ég bara hafa verið ferlega klár að hafa ekkert gert í mínum málum á skalanum almennilega fyrr – ekki eins klár að hafa látið hlutina þróast eins og þeir gerðu á bilinu 15 – 30 en um það er oft seint að fást núna. Ég hefði ekki komist úr sporunum ein – þetta er ekki eins manns verk það er alveg klárt og ekki heldur einhver hugdetta sem manni finnst eins og gæti verið sniðugt að framkvæma! Á einhvern undarlegan hátt hefur mér ekki dottið í hug fram að þessu að snúa ferlinu við, fara úr kyrrstöðu fíkilsins yfir á heilbrigða helminginn. Fyrir vikið er ég þó ekki með 100 skipsbrot á bakinu og veit blessunarlega lítið hvað bíður mín – annars gæti nú hörmungarhyggjan náð yfirhöndinni af enn meiri krafti en fyrir er! Ég hef sem sagt ekki skýra mynd af því að mistakast þetta verkefni í huganum – engin fyrirframgefin úrslit byggð á biturri reynslu.
Grunnurinn skiptir máli
En aftur að grunninum sem ég nefndi áður. Minn grunnur andlega er ekkert sérlega sterkur held ég ef við lítum til þess sem ég þarf að horfast í augu við. Lengi vel hef ég lítið leitt hugann að ókostum mínum og brestum. Hef haldið áfram á því sem ég hef talið mínar sterkar hliðar- falið hitt í algleymi þess sem þykist ekkert vilja af þeim vita nema þegar myrkirð sækir að. Þegar birtir er aftur horft fram á veginn og brestirnir víkja fyrir hinu sem ég get gert. Það þykir orðið nokkuð ljóst að ég er fíkill – það verður víst enginn svona feitur eins og ég nema hann sé fíkill. Mér finnst að vísu ekkert fínt að vera fíkill – myndi gjarnan vilja sleppa við þann stimpil en ég skal alveg venja mig við hann – tækla málin útfrá því. Er ég þá ekki komin með eina afsökunina enn? Ah mér er nú ekki sjálfrátt og því ætla ég bara að fá mér svolítið nammi og ,,njóta" lífsins? Ég tek því svo bara af þolinmæði og umburðarlyndi og geri eitthvað í því þegar ég er í betra standi til að berjast við fíknina? Fíklum er jú oft á tíðum ekki sjálfrátt!
Ekki er nóg með að ég sé fíkill heldur er ég óþolinmóð og óvægin. Ég skal alveg kaupa það að ég sé óþolinmóð og flumbra. Ég t.d. sleit í sundur jólaseríu í fyrrakvöld bara af því mér hugkvæmdist ekki að athuga afhverju hún væri föst – heldur væri ráðið bara að toga fastar. Meira vinnur vit en strit hjá hinum þolinmóðu trúi ég en mér. En ég held ekki óþolinmæðin stjórni lífi mínu, og hún er líka ákveðinn drifkraftur. Og hún er hluti af persónuleika mínum og ég vil helst ekkert breytast mikið í grunninn heldur vera færari um að takast á við sjálfa mig – og þá þarf víst þessa margfrægu þolinmæði og títtnefnt umburðarlyndi.
Glíman núna er sem sagt að finna þennan meðalveg í umburðarlyndinu. Ég held mér sé ekki hollt sérlega mikið umburðarlyndi. En ég má heldur ekki skjóta mig í tánna í hvert eitt sinn sem mér verða á mistök en einhvern veginn finnst mér þau vera óleyfileg hvað mig varða – í sumu að minnsta kosti.
Ofan á allt annað er ég móðursjúk – sem mér finnst nú kannski verst af þessu öllu því það vil ég síst af öllu vera. Sáli reyndi þó að útskýra fyrir mér að þessi móðursýki fælist í næmni fyrir umhverfi mínu og slík en ekki almennri hysteríu – og mér finnst það nú ekki vera neitt ljótt eða slæmt, nema náttúrulega þegar maður verður fyrir slæmum áhrifum vegna þessa. Ég tel hins vegar að þessi næmni sem ég hef – og ég hef mikið af henni það skal viðurkennast, geri mig að góðum kennara en hún getur líka verið slítandi. Og svo nemur maður ekki alltaf allt rétt. Það er náttúrulega ekki gott – þá verður maður kannski svolítið móðursjúkur!
Ég efast um að íþróttamaður sem ætlar sér í fremstu röð hafi þessi ósköp öll, – nema þau séu þá hluti af styrk hans og þori - hann hafi lært að nýta sér skrattakollana sína sér til framdráttar og það er það sem mig langar að gera. Þess vegna fór ég til sálfræðings og þess vegna tel ég mig hafa fullt erindi þangað.
En ég hef líka kosti sem hjálpa: Ég get séð skondnu hliðarnar á málunum, ég er úrræðagóð, ég horfi á heildina, ég hef kroppinn í verkefnið, ég hef líka keppnisskap þó ég vilji helst ekki viðurkenna það og kunni lítið með það að fara! Ég get hrundið ótrúlegustu verkefnum af stað og það sem meira er ég get fylgt þeim eftir (ef ekki áður þá héðan í frá ;-)). Ég er dugleg!
Meðganga lífsstílsbreytingarinnar
Það eru komnir 9 mánuðir – heil meðganga síðan ég fór fyrst í salinn. Það telst ekki langur tími af mannsævinni og það er ekki langur tími í samanburði við þann tíma sem ég eyddi utan ræktarinnar.
Mér finnst þetta samt vera langur tími – og mér finnst eins og mér hafi átt að miða lengra en raun ber vitni. Ég sit hér og hef ekkert hreyft mig í síðustu viku – hvorki gengið úti, farið í salinn, né synt. Ét sælgæti núna – þó skammturinn hafi átt að vera etinn í gær og það sem verra er mér finnst eins og ég standi frammi fyrir þeim valkosti að halda áfram að éta nammi og hætta að hreyfa mig. Mér finnst það raunverulegur möguleiki að hætta að leggja þetta á mig – það sé hreinlega ekki framkvæmanlegt að gera þetta hvort sem er og því sé það í boði að halda áfram fyrri háttum, vinna, reyna að bæta mataræðið og hreyfa mig á sumrin.
Ég veit samt alveg hvað ég vel – ég vel að hreyfa mig og halda áfram að róa með í átt að bættri heilsu en afhverju er ég að sökkva? Og hvenær hefst ferðin upp á yfirborðið?
Ætti ég að hafa farið vigtina – mér finnst eins og hún veiti ákveðið aðhald og ekki veitir mér af aðhaldinu? Eða á ég að hugsa um að ná mér á flot og ekki vera að lemja á mér fyrir það sem ég veit að er ekki í lagi – einbeita mér að því að laga það og sækja svo fram og hafa þá vigtina með mér í sókninni frekar en að hafa hana sem andstæðing eins og staðan er óneitanlega núna?
Mér finnst hver dagur sem ég léttist ekki, hver vika sem ég stend mig ekki vera nagli í líkistuna – sönnun þess að ég geti þetta ekki. Sé ekki fær um að breyta mínum háttum. Sé aumingi. Ég horfi til þess að ég ætti að vera orðin 24 kílóum léttari 1. apríl 2007 en ég var 1. apríl 2006. Hvað ef ég verð það ekki? Þá hef ég fullkominn stimpil á rassinum sem á stendur auli!
En um leið og ég skrifa þetta þá kannski finnst mér nú kannski að ég nái þessu... 2 kg á mánuði og það eru kannski farin 15 – 20 kg þá kannski á ég möguleika. Þegar ég set dæmið svona upp...
Kannski bara get ég þetta? Kannski er ég bara fær um að gera eitthvað í mínum málum eftir allt saman! Kannski gengur þetta bara svona – niðursveifla og íhugun, sókn og dirfska.
Nú stend ég bara frammi fyrir því hvort ég fer í Styrk á eftir eður ei á eftir. Eða nei – ég stend ekki frammi fyrir því. Ég stend frammi fyrir því að ég fer í Styrk á eftir. (Fór ekki þar sem ég sofnaði fram á lyklaborðið eða því sem næst. Annað stendur óbreytt - óhaggað. Fyrri einbeitni verður tekin upp!)Næsta vika bíður með hreyfingu og vonandigóðri líðan. Vonandi fær Bjartur að njóta góðs af því – hann er búinn að vera í hálfgerðri einangrun því enginn labbar með hann ef ég geri það ekki. Ef ég næ ekki að hreyfa mig eins og hér segir hafa markmiðin verið of mörg. Markmið þar næstu viku gætu verið önnur bæði með tilliti til þess hvernig gengur að ná þessum en þó ekki síður breyttar aðstæður, jólafrí og það allt saman.
Markmið
Sem sagt markmið næstu viku:
Sofa – sem hefur vel að merkja gengið vel síðustu 3 nætur eða svo þó ég vakni ótrúlega oft sérstaklega fyrri partinn.
Slaka á í vinnunni – Róm var ekki byggð á einum degi
Huga vel að mataræði – muna 1 nammidag!
Svona ætla ég að hreyfa mig því ég ætla að vera dugleg næstu viku - ekkert múður.
Sunnudagur – Styrkur
Mánudagur – morgunbrennsla – helst ganga með Bjart.
Þriðjudagur – spinning
Miðvikudagur – morgunbrennsla og/eða
Fimmtudagur – morgunbrennsla
Föstudagur - salur
17.10.06
Já já er það ekki bara

ÉG þekki sko klárlega einhvern sem er þessi skór. Ég þekki svo margar blúndur. Hildur systir væri ein. Og svonan lítil falleg kona einhver, hmmmm já - tileinka hann bara öllum litlum fínlegum konum. Þær eiga nú skilið að fá sína athygli hér á þessu bloggi líka :-).
Heyrið þið mig. Ég fór í nudd í gær sem er í sjálfu sér ekki í frásögur færandi - er búin að vera þar í 8 mánuði slétta núna. Nema nú er minn kæri nuddari farinn að dútla sér á alveg nýjan hátt við herðarnar á mér og hálsinn. Oh my god - frekar vont verð ég að segja og ég er nú bara alveg helaum í dag eftir átökin í gær. Ég þarf náttúrulega að finna til tevatnsins þar sem kálfarnir eru úr sögunni í bili að minnsta kosti.
Og ekki tók svo betra við í dag. Ég hjólaði í gær um allt eins og berserkur þrátt fyrir mikið rok og kulda fór ekki heim fyrr en að verða 22 eftir að hafa föndrað smá jólaföndur frá 20 en fram að því hafði ég nú bara verið að vinna. Nú í morgun fór ég líka út að labba eins og í gærmorgun (heyriði og sunnudaginn en þá fór ég nú í klst göngutúr um Selfoss með Páli og Bjarti!) og svo á hjólið í sama dómadags rokinu að viðbættum svakalegum kulda - eiginlega fyrsta kuldanum í haust. Og þar sem ég hjólaði í Styrk í hádeginu og gatinu mínu þá bara hélt ég stundum að ég væri stopp en hvað um það - er sem sagt búin að hjóla heilmikið í strekking í gær og dag. Svo bætast við 11 mín á stigvélinni, ógeðstækið og fótaæfingar dagsins og saman gerir þetta þessar líka dómadags harðsperrur og strengi. Þetta er nú í alfyrsta skipti lengi lengi ef nokkurn tímann sem ég er bókstaflega eins og kvika frá toppi til táar. Ætti ég ekki bara að sleppa morgungöngunni í fyrramálið - ég meina vá.
En á móti kemur er ég hrædd um brennsluna. Er ég ekki eitthvað búin að minnka hana því ég er að hjóla - kannski er ég bara ekkert að brenna nóg. Kannski er það þess vegna sem Baldur er farinn að tala um spinning? Oh my god. Svona getur þetta verið.... Oh my god endalaust.
En jæja - enn að reyna að vera jákvæð eftir miklar sveiflur undanfarið - og sveiflurnar flestar verið niður á við... Ég meina hversu óánægður getur maður verið við sín og sín verk? Töluvert I tell you. Og þá er nú gott að eiga vesenislausar vörður til að leiða sig áfram.
Sem minnir mig á að ég er að fara að klára verkefnið mitt hjá Ingvari - hinum vesenislausa manninum í mínu lífi.
9.10.06
Sigh barasta
Ég er á bílnum í vinnunni í dag því ég ætla að vinna svo ótrúlega lengi að það verður komið kolniðamyrkur þegar ég fer heim! Tíhíhí. Verð að vinna upp allan vinnutímann minn sem ég ,,skulda" Maður má náttúrulega ekki láta eiga inni hjá sér - eins og mesta hættan sé á því.
En nú skal segja af hreyfingaáætlun Ingveldar. Sem kunnugt er gekk nú ekki sem best að hreyfa sig í síðustu viku og ekki var nú helgin hjá Gústu - og í hennar húsi sérlega kræsileg heldur varðandi hreyfingu og mataræði.
Ég borðaði t.d. heilan poka af Nóa rindlum eða vindlum eða hvað það heitir á leiðinni norður og svo heim. Svolítið af lakkrís og 15 makkinstosh mola um helgina en meira var það ekki. Jú 10 walkers karamellur á leiðinni norður líka. Ok ok svoldið mikið nammi verð ég að segja - en það verður bara að taka á í vikunni til að losa sig við það.
Ég eldaði þó ógeðslega hollan mat í gærkveldi þegar ég kom heim og borðaði mikið grænmeti með. Og borðaði ekkert eftir 21 og bara popp fram að því. Svoho þessi vonda helgi var nú ekki verri en þetta. Labbaði 20 mín með Trýnu litla grjónið. Hefði átt að labba með hana í gær líka en geri það síðar ;-).
Ok svo nú er ég búin að setja upp æfingaprógramm fyrir vikuna því nú þarf að taka á því:
Mánudagur:
Labba með Bjart í Hellisskógi - gekk vel
Fara í fulla brennslu í Styrk og heilan fótaæfinga hring og svo í nudd - Dásamlegt nema hvað ég var í svo ótrúlega sleipum buxum að ég hélst varla á hjólinu svo brennslan var 17 mín á hjólinu, 10 mín á ógeðstækinu (sem reyndi helling á hælinn vel að merkja en það lagaðist er á leið) og 10 mín á stigvélinni - yeah - samtals 37 mín - er í 13 mín skuld.
Þriðjudagur
Labba með Bjart kl 7 í Hellisskógi
Hjóla í vinnuna eins snemma og ég get göngunnar og hafragrautsins vegna
Hjóla í 15 mín amk og fara í styrk kl 12:10 og taka efrihlutaæfingar og taka 10 mín sprett á ógeðstækinu (og stigvél (ef ég er nógu spræk))
Hjóla svo í skólann í 10 mín. Samtals brennsla 30 - 40 mín. Dugir vegna þess að ég er á hjólinu í skólanum.
Hjóla heim fyrir myrkur (fínt aðhald)
Miðvikudagur
Labba með Bjart
Hjóla í vinnuna og heim
Hjóla í sund og synda 400 metra með blöðkum mest
Fimmtudagur
Labba með Bjart og hjóla í skólann ef það er gott veður.
Ef ég hjóla ekki fara þá og hjóla í Styrk í 25 mín.
Föstudagur
Labba með Bjart í Hellisskógi
Fara á hjólinu í skólann ef ég mögulega get vegna veður
Fara á hjólinu í Styrk og bæta við túr um hólahverfið til að lenga túrinn eða Tjarnirnar.
Taka rosalegan fótapakka :-)
Hjóla heim og fara svo á Súbbanum til Rvk og sækja Pallann minn.
Svo myndi ég gera það að tillögu minni að ég fengi skáp í Styrk - þessi burður á sjampói, handklæðum, og alls kyns drasli er alveg að gera mig vitlausa!
Helga Dögg getur þú ekki bara tekið að þér að hugsa um handklæðin mín. Vera að drösla þessu hægri vinstri hér um allan bæ. Frekar lítið spennandi verð ég að segja.
Svo verður konan að hvíla svoldið um helgina. Ætli það sé samt ekki hægt að labba í morgunsárið báða dagana? Er það of mikið?
Hmmm ætti kannski að spyrja að því þar sem ég hef ekki sérlega mikið vit á eigin mörkum.
Hvernig á kona eins og ég að hafa tíma til að hugsa um bæ, börn og vinnu? Vitlaust að ætlasts til þess bara verð ég að segja!
En mér finnst þið frábær, ég er líka frábær amk er ég með fallegar tær ;-). Ég verð að finna upp eitthvað fleira sem ég er góð í og er gott við mig. Ég er bara á þessu stigi ekki alveg nógu góð manneskja eitthvað... Þarf að endurhugsa þetta vel og vandlega
6.10.06
Ég bara get ekki ákveðið mig...
Nú jæja ég finn eitthvað út úr þessu. Það er amk brjáluð blíða núna - og ég labbaði í morgun! Og ég er í gati og allt! Það þýðir ekkert að vinna í þeim ég er alveg búin að sjá það. Best að nota tímann í andlega íhugun, pælingar og að blogga í þessu tilfelli! Tíhíhí.
Ég er sko búin að vera að hugsa um líf mitt og tilveru. Ég er búin að fatta (tímabundið amk) að ég verð að treysta á mitt hyggjuvit í þessu varðandi mataræðið og góð ráð frá völdum aðilum. Ég bara get ekki verið að taka inn á mig hvað öðrum finnst um hvað ég léttist hægt og lítið að þeirra mati.
Ég á eftir að vera í þessu svo lengi og þurfa að halda dampi í svo langan tíma að flestum óar við. Þetta er ekki 6 vikna átak sem öllu á að breyta - þetta er ekki einu sinni sex mánaða átak né heldur sex ára. Ég þarf áreiðanlega að stússast í þessu alla mína hunds og kattartíð og það er allt í lagi - ég vorkenni mér það ekki neitt. En ég verð að finna taktinn. Ég get ekki hugsað mér að hætta öllu því sem er gott að borða eða gleður mitt geð og maga í matarmálum. Það verður að líta raunsætt á þetta og þegar maður er ég þá fer ég ekki að neita mér um alla hluti. Það þætti mér svo leiðinlegt.
En ég eldaði hollustuhamborgara í gær fyrir okkur Aðalstein og franskar fyrir hann en ég borðaði soðnar gulrætur með - og fannst það bara gott. Eftir það borðaði ég ekki nokkurn hlut eða fra´19:30 og ég fór út og sá undurfagra sólarupprás í morgunsárið. Lífið er gott og ég hef fínan stuðning frá mörgum mörgum. Og jafnvel frá mér sjálfri.
1.10.06
Ég massaði Bónusferð

29.9.06
Holy moly fótaóeirð

Þetta er nú cirka ljótasti skór ever - eða að minnsta kosti óIngulegasti skór ever. Oh my god. Mér finndist hann þó áreiðanlega sniðugur á öðrum fæti en mínum. En ekki fyrir mig takk. Svona cirka eins og ég sjálf. Ég er ekki fyrir mig!
Mér leiðist ég.
Ég gerir bara tóma vitleysu.
Og ég nenni ekki að hlusta á að það sé bara ég sjálf sem eigi að redda því og breyta. er of vitlaus til þess að standa í því. Í augnablikinu amk.
Er með fótapirring dauðans. Fæ þetta stundum en var að lesa á doktor.is að ég verð áreiðanlega dauð úr þessu innan skamms en Gauti á hlaup.is (já ég fór aftur þangað inn omg) vill meina að of geyst sé farið. Ja það skyldi þó ekki vera...
Þetta jafnar sig samt alltaf hjá mér -og er ekki á háu stigi. en pirrandi er það maður minn. Drep... Gott að fá nýtt nú þegar hælsporinn minn er að lagast eftir einhverjar bylgjur og nudd dauðans á kálfana 2 sinnum í viku. Sigh...
Ég vildi að ég væri önnur en ég er þegar kemur að matar-ÆÐI. Ég er glötuð. Gjörsamlega.
Dagurinn er í dag er svo vitleysislegur að ég þverneita að opinbera hann hér.
Sigur dagsins er nú samt sá að hafa farið út að labba í morgun þó ég hafi tekið því fagnandi að Bald sagði að ég ætti að hvíla göngurnar um helgina og synda í staðinn og föstudagur er náttúrulega eiginlega helgi sko. Ætlaði því að sofa lengur og dúlla mér bara því ég er ekki að kenna í fyrsta tíma og þá dugir mér að mæta bara um 8. En ég fór og ég hjólaði líka í skólann með bakpokann fullan af Styrkdóti, þvottagræjum, hreinni treyju og ég veit ekki hverju og hverju. Það er rosalegt hvað ég er skipulögð orðin. En hrikaleg í mataræðinu. Christ... Afhverju er þetta ekki bara í lagi hjá mér alltaf?
27.9.06
Ég held ég fari að sofa

26.9.06
Fagurblátt og blúsað

Ha ha ha - þetta stígvél mar. Veit ekki hvort ég ætti að hlæja eða gráta! En amk þá er hællinn flottur en nokkuð ómanneskjulegur. Kannski eitthvað fyrir Ástu Björk og Sædísi ofurgellur!
Nú en sem sagt. Enn í svolítilli fýlu. Tek greinilega svona fýluköst...
En nú er þriðjudagur og þeir eru nú alltaf svolítið spari sko. Ég hef komist að því að það er ekki hægt að vinna í götunum mínum tveimur þannig að ég fer gjarnan í Styrk á þessum tíma og er þá lengur fram eftir í staðinn. Sú varð raunin í dag.
Ég fór í lítið labb í morgun í Hellisskógi með dúlluna mína og snúð hann Bjart, fór svo heim og braut um það heilann hvort ég ætti að fara í Styrk í gatinu eður ei og ákvað að gera það ekki - ég kæmi hvort eð er aldrei nestinu (yeah tók með mér nesti skoho í skólann), handklæðunum, íþróttafötunum og treyjunni minni í bakpoksgreyið. Setti það svo í backupplanið að ég gæti nú vel komið hér við og náð í íþróttafötin ef mér snérist hugur. Yfir þessu gat ég svo væflast í morgun - Styrkur eða ekki Styrkur eða kannski bara hjólatúr? Sigh
Ákvað á endanum að fara í Styrk - brunandi á mínu hjóli því ég hafði nú farið á því í vinnuna eins og hjólreiðakappa sæmir - var ekki nema 7 mín að fara göturnar (nenni ekki þessum göngustígsfársferðum). Sótti fötin, hjólaði í 12 mín í viðbót á gólffasta hjólinuvið þessar 15 sem mér hafði tekist að koma ferðinni í Gagnheiðina í með hoppum og skoppum í Heimahaganum. Tók svo bara vel á í efri - hluta líkamans æfingunum og teygði vel og lengi. Og leið svo þetta líka dáindis vel í kennslunni á eftir og var að vinna alveg til hálf átta þegar ég þorði ekki annað en fara heim þar sem engin lukt er komin á hjólið. Og ég stend á öndinni af undrun að ég geti bara yfirleitt komið sjálfri mér úr stað á hjólinu.
Og vonandi er ég nú að lagast í hælnum - ég er amk ekki að nota hann eins mikið og áður. Tók íbufen áður en ég fór að sofa í gær og gat þá sofið fyrir fótapirringnum.
Pirringurinn á sálinn er hins vegar töluverður og vigtin lætur eins og asni - eins og ég. Og ekki er ég farin að borða kvöldmat enn. En nú fer ég líka í það! Svoldið seint ha? Mataræðið er sem sagt ekki í sérlega góðum málum.
það er hins vegar veðrið...
25.9.06
Næturblues

24.9.06
Life goes on

