![]() |
| Þetta er skóbúnaðurinn sem lýsir verkefninu best - klúðurslegt í meira lagi |
Ég tók góða vinnutörn í dag - frá 12:00 tiil 21:00
Hitti margt fólk og vann í stundaskrám. Gott mál
Ég er algjörlega búin að gefast upp á mér - og mínum hnjám.
Kannski er það magakveisan - eða andlegt atgervi - nema hvort tveggja sé. Ég ræð ekkert við mig!
Hnén eru ónýt - og ég finn til í þeim - jafnt í vöku sem draumi.
Aðgerðin hljómar æ betur. Nú er bara að fara til læknis og gera eitthvað í málinu og skipuleggja veturinn -
en mikið vildi ég að ég hefði mig í sund!
En - góðu fréttirnar eru þær að ég borða ekki nammi!

No comments :
Post a Comment