15.9.06

Við vigtin...


...erum svo miklir vinir þessa dagana að það er ROSALEGT! Ég er sko búin að missa 2 kg í september. Haldið þið að þetta séu morgungöngurnar hans Baldurs? Heyrðu ég efast ekki um það!
Mér finnst þetta reyndar vera meira í takt við það sem líkamsræktin ætti að skila mér og þó það sem ég er að gera í mataræðinu frekar en það sem hefur verið að skila sér í sumar en þegar upp er staðið erum við að tala um að 15 kg séu farin síðan í lok apríl þegar ég byrjaði að léttast. Ég hef kosið að velja þá dagsetningu frekar en þegar ég byrjaði í ræktinni því í fyrstu þyngdist ég bara. Iss það er bara skilgreiningaratriði - Baldur vill frekar taka hitt - frá því ég byrjaði í ræktinni, svoldið leiðinlegur með það karlinn :-) en meðvirknishópurinn minn segir mér að ég geti sko alveg haft það hinsegin :D.
Ég hef því lést um 750 gr á viku frá því í vor. Það er eitt og hálft smjörlíkisstykki. Alls hef ég misst 30 svoleiðis - er það ekki bara helv... gott?
Og það besta við þetta allt saman er að ég fór í styrk - og hjólaði í rúman hálftíma - fór smá á ógeðstækið mitt kæra og gerði þessar fínu fótaæfingar. Og mér líður svo vel að ég gæti flogið!
Og svo ætla ég að vinna um helgina og njóta lífsins líka - því það er gott.

4 comments :

Anonymous said...

Þú ert nottla bara frábær!! Ekki spurning!! Og æði að þér líði svona vel eftir æfingarnar - það ætti að hvetja mann til að halda áfram!
Gerður

Unknown said...

...það ÆTTI að gera það ;-)

Anonymous said...

Til hamingju með árangurinn. Þú ert hetja!!!!
(það er bara ekkert meira um það að segja). ´
Þú ert bara frábær.
kv Sigurlín .)

Unknown said...

Takk Sigurlín - hvað varst þú að gera á fótum svona seint? Ji minn einasti - þú veist það þýðir ekki að kjósa Magna lengur ;-)