...
Þetta var það sem Baldur sagði við mig - einhvern tímann þegar mér ofbauð líkamsræktarálagið! Ég trúði honum svo sem - enda var hann ekki að skafa utan af því þá né nú!
Það er ekki nein hálftíma hreyfing við og við sem fellur honum í geð...
En það var nú ekki aðalmálið. Ég hef kviðið svo svakalega fyrir því að fara á vigtina eftir desember og jólin... Var helst á því að fara ekki neitt - en er nú orðin nokkuð þjálfuð í að eiga við mína. Niðurstaðan er að 1,5 kg hafa bæst við - og það er innan marka þess sem mér var kennt að mætti búast við af slíku át tímabili. Ég er því sátt - og held áfram að paufast við að halda í við mig. Það er allmikið mál að minnka matarskammtana hjá konunni - en verður gert. Þetta er nefnilega bæði spurning um skammtastærðir og hvað er borðað þó síðari liður stæðunnar sé sem betur fer oftar í lagi en hitt...

0 svör:
Post a Comment