6.1.12

Ekki bæði haldið og sleppt

Gærdagurinn var ágætur um margt! Ég fór í sundleikfimi, blak og sund. Blakið er held ég alveg út úr myndinni í bili - ég get ekkert notað vinstri fótinn og kem mér því ekki frá A til B - sama hversu stutt er á milli þeirra staða og snöggar hreyfingar eru alveg út úr myndinni. Ég get hins vegar synt og eftir að hafa verið smá í blaki - eða um 40 mín fór ég og synti í hálftíma eða svo. Þannig að hreyfingin í gær var 150 mínútur - sem er gott! En ég borðaði eins og hestur! Cok og prins - er maður í lagi - ónei. En þetta var allt skráð samviskusamlega niður og mér sýnist ég ekki hafa farið yfir orkuþörf dagsins en þessi dagur var ekki nýttur til þess að léttast - og ætlaði ég að hafa það svoleiðis - uuuuuuuuu held ekki!

Þannig að það er smá svigrúm til bætingar ;) Dagurinn í dag er góður - eina er að ég er svakalega þreytt og lufsuleg eitthvað - já og get svona illa gengið, en ég skrifa hið fyrr nefnda á hve skart maður er að minnka skammtana eftir jólin - smá svona syfja kemur yfir mann.

En þetta er allt að koma - engin hreyfing í dag samt sem þýðir sund á morgun!

Þannig er það bara.

0 svör: